Morgunblaðið - 02.06.2018, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
kr. 6.400
kr. 8.900
kr. 9.800kr. 33.400
Bekkur 100x40 cm
Anton 3ja sæta sófi kr. 128.700
Unicorn stytta kr. 4.980kr. 14.900
kr. 97.500
Blómapottar kr. 2900 / kr. 3.550
Reynir Sveinsson íSandgerði á 70ára afmæli í
dag. Reynir er fæddur
og uppalinn í Sandgerði
og hefur búið þar alla
tíð, en foreldrar hans
voru Sveinn Aðalsteinn
Gíslason rafveitustjóri
og Guðbjörg Hulda
Guðmundsdóttir.
Reynir lærði rafvirkj-
un hjá föður sínum og
rak rafmagnsverk-
stæðið Rafverk ehf. í yf-
ir 30 ár en hætti því
fyrir um 20 árum og
hóf störf hjá Sandgerð-
isbæ sem forstöðumaður
Fræðaseturs í Sand-
gerði sem nú heitir
Þekkingarsetur Suður-
nesja. Þar starfaði
Reynir frá stofnun þess
þar til fyrir fimm árum, aðallega við móttöku gesta og leiðsögn.
„Fyrir um 11 árum fór ég í nám í svæðisleiðsögn um Reykjanes-
skagann og líkar það vel. Ljósmyndun hefur verið mikið áhugamál
frá fermingu og ég á mikið ljósmyndasafn sem stendur til að
flokka er fram líða stundir.“
Reynir hefur starfað mikið að félagsmálum á Suðurnesjum, setið
í bæjarstjórn Sandgerðis í 20 ár, í hafnarráði í 16 ár og verið for-
maður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, formaður
sorpeyðingarstöðvar Sorpu og formaður Markaðsstofu Suðurnesja.
„Svo var ég einn af stofnendum Hattavinafélags Sandgerðis og
höfuðpaur félagsins í 10 ár en þá lognaðist félagið út af.“
Reynir var mjög virkur í björgunarsveitinni Sigurvon ásamt
hörðum kjarna sem byggði SVFÍ-húsið í Sandgerði. Þá var Reynir
í Slökkviliði Sandgerðis í 40 ár og slökkviliðsstjóri í níu ár. Ferða-
mál á Suðurnesjum hafa til margra ára verið áhugamál Reynis og
hefur hann setið í stjórn Ferðamálasamtakanna til margra ára.
„Hvalsneskirkja hefur alla tíð verið mér hjartfólgin og er ég for-
maður sóknarnefndar og hef á undanförnum árum staðið fyrir
miklum framkvæmdum við kirkju, kirkjugarð og Safnaðarheimilið
í Sandgerði.
Í tilefni þessara tímamóta ætla ég að halda upp á daginn heima
og býð fjölskyldu, vinum og vandamönnum í smá kvöldveislu.“
Reynir á þrjú uppkomin börn og sjö barnabörn.
Lætur sig flest
varða í Sandgerði
Reynir Sveinsson er sjötugur í dag
Sandgerðingurinn Reynir Sveinsson.
S
igurborg Daðadóttir
fæddist á Ísafirði 2.6.
1958 en ólst upp í Kópa-
vogi og átti síðan heima í
Mosfellsbæ. Hún var í
Digranesskóla og Þinghólsskóla en í
sveit á sumrin, á Stóra-Ármóti í
Hraungerðishreppi, frá sjö ára aldri
í alls tíu sumur.
Sigurborg gekk í Verslunarskóla
Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi
1979. Hún vann við þjálfun sjúklinga
á hestum á Reykjalundi í tvö sumur,
stundaði síðan nam við Dýralækna-
háskólann í Hannover í Þýskalandi
og lauk embættisprófi í dýralækn-
ingum 1985.
Sigurborg var búsett á Akureyri á
árunum 1985-92. Hún var fram-
kvæmdastjóri Einangrunarstöðvar
ríkisins í Hrísey, flutti þá til Reykja-
víkur, vann hjá Hollustuvernd ríkis-
ins, var heilbrigðisfulltrúi í Kópa-
vogi og síðar einnig í Hafnarfirði,
Garðabæ og á Álftanesi. Auk þess
var hún framkvæmdastjóri Nauta-
stöðvar Búnaðarfélags Íslands á
Hvanneyri í tvö ár. Hún var gæða-
Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir – 60 ára
Yfirdýralæknar Hér má sjá allar þær konur sem eru yfirdýralæknar í sínum ríkjum. Myndin var tekin á aðalfundi
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar fyrir skömmu. Sigurborg er lengst til vinstri í efstu röð, í rauðum jakka.
Væntumþykja dýr-
anna er skilyrðislaus
Útreiðartúr Sigurborg er mikil hestakona og hefur haldið hesta í mörg ár.
Halldóra Helga Kristjánsdóttir á 90 ára í af-
mæli í dag. Hún ólst upp á Vopnafirði, býr í
Reykjavík og starfaði fyrst við verslunarstörf
en síðar sem sjúkraliði. Eiginmaður hennar var
Jónsteinn Haraldsson framkvæmdastjóri, d.
2016. Þau eignuðust tvö börn, Hafdísi, d. 2011,
og Borgar. Barnabörnin eru þrjú og barna-
barnabörnin tvö.
Árnað heilla
90 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.