Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 153. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Taka ekki íslensk greiðslukort 2. Crossfit gefur vel 3. Launahæsti í fluginu með 3,2 m... 4. Dúxaði í Columbia Business ...  Í ár fagnar menningarmiðstöðin Hafnarborg í Hafnarfirði tvöföldu af- mæli þar sem bæði eru liðin 35 ár frá því að hjónin í Hafnarfjarðar Apóteki, Sverrir Magnússon og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, færðu Hafnar- fjarðarbæ húsnæði sitt á Strandgötu 34 að gjöf, ásamt listaverkasafni sínu, og fimm árum síðar, fyrir 30 ár- um, var Hafnarborg vígð formlega. Í tilefni af þessu verður í dag kl. 15 opnuð sýning á völdum verkum úr safneigninni. Sýningarstjórar eru Ágústa Kristófersdóttir, forstöðu- maður Hafnarborgar, og Unnar Örn Auðarson myndlistarmaður. Morgunblaðið/Ómar Afmælissýning opnuð  Sumartónleika- röðin Sumarjazz á Jómfrúnni hefur göngu sína í 23. sinn í dag með tónleikum Tóm- asar R. Einarsson- ar kontrabassa- leikara og latín- sveitar hans sem hefjast kl. 15. Að vanda verður leikið á Jómfrúartorgi fyrir aftan veitinga- húsið Jómfrúna við Lækjargötu. Tómas og latínsveit hans ríða á vaðið  Megas og gítarleikarinn Kristinn H. Árnason koma fram á fyrstu stofu- tónleikum sumarsins á Gljúfrasteini á morgun kl. 16. Á efnisskránni verður lýrík eftir Laxness, tónsett af Megasi og flutt af þeim fé- lögum. Megas á Gljúfrasteini FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í SV 8-15, hvassast NV-til, en bætir frekar í vindinn um kvöldið. Skýjað V-lands með dálítilli vætu og hiti 5 til 10 stig, en bjart á A-verðu landinu og hiti upp í 20 stig. Á sunnudag (sjómannadagurinn) Vestlæg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað S- og A- lands, annars að mestu skýjað en úrkomulítið. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast SA-til. Á mánudag Hæg suðlæg átt, skýjað með köflum og hiti 10 til 18 stig. „Þá má segja að ég hafi verið kominn í ákveðinn vítahring sem ég losnaði ekki út úr fyrr en á síðasta sumri þegar markvisst var farið í að byggja upp bakið á nýjan leik með æfingum samhliða breyttu mataræði þegar ég kom til West Wien. Það var allt tekið í gegn,“ segir handknattleiksmaðurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson, sem æfir nú með landsliðinu. »3 Venti sínu kvæði í kross við komuna til Vínar „Það er mjög erfitt að yfir- gefa þá fjölskyldu sem er í Vestmannaeyjum og liðið sem ég var orðinn ástfang- inn af en af persónulegum ástæðum, sem ég vil ekki fara nánar út í, þarf ég að flytja til Reykjavíkur,“ sagði Róbert Aron Hostert hand- knattleiksmaður, sem er einn þriggja nýrra leik- manna Vals sem kynntir voru til sögunnar í gær. »2 Alls ekki auðvelt að yfirgefa Eyjar Í kvöld klukkan 20.00 fer fram vin- áttuleikur Íslands og Noregs á Laugardalsvellinum. Leikurinn er hluti af lokaundirbúningi landsliðsins fyrir HM í Rússlandi og er mikilvægur fyrir margar sakir. Heimir Hallgríms- son landsliðsþjálfari þarf einnig að nota leikinn til þess að skerpa á takt- ískum áhersluatriðum og fá svör við þeim spurn- ingum sem hann hefur áður en al- varan hefst 16. júní. »1 Norðmenn á Laugar- dalsvelli í kvöld Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Brúðubíllinn er vorboði í hugum margra Reykvíkinga en hefð er orð- in fyrir því að Brúðuleikhúsið mæti á götur borgarinnar í upphafi sumars. „Þetta er orðin hálfgerð klassík hef- ur maður heyrt,“ segir Helga Steff- ensen, leikstjóri og brúðumeistari, sem snýr nú aftur með Brúðubílinn, 38. árið í röð. Brúðubíllinn er leikhús fyrir yngstu áhorfendurna þar sem krakkar eru hvattir til að syngja með og taka þátt. Sýningin er á veg- um ÍTR og er ætluð bæði til skemmtunar og fræðslu, en inntak sýninganna snýr m.a. að því að vera góð við dýr og blóm og sérstaklega hvert við annað. Sýningin í ár heitir Lögin hans Lilla, þar sem hljóma munu sígild barnalög í flutningi hinna ýmsu brúða á borð við Lilla apa og trúðinn Dúsk. Helga segir mikilvægt að börnin þekki lögin svo þau geti sungið með af lyst og þeim líði eins og þau taki fullan þátt í sýn- ingunni. Brúðubíllinn er hugarsmíð Helgu en inn í sýninguna fléttast þekktar sögur og leikrit sem flest börn ættu að kannast við. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir sem hefur verið leikstjóri Brúðubílsins lengst af en alls koma fimm konur að sýningunni í ár. Alltaf jafn skemmtilegt Helga býr til brúðurnar, leik- myndina og handritin sem eru nú komin vel yfir fimmtíu. Hún á að baki langan feril með börnum en fyr- ir utan að hafa samið og flutt brúðu- leikrit frá 1980 var hún umsjónar- maður Stundarinnar okkar í sjö ár, eða frá 1987 til 1994. Helga segir starfið alltaf jafn skemmtilegt enda umbunin ómetanleg, að fá að gleðja börnin, og nú foreldra þeirra einnig. „Við fáum til okkar mikið af yngri börnum þó þau séu yfirleitt á öllum aldri, er þetta oft fyrsta leikhúsferð þeirra og mikil upplifun. Skemmti- legt er að sjá nú marga fullorðna í áhorfendaskaranum sem virðast hafa jafn gaman af, enda margir þeirra upplifað sýningarnar sjálfir sem börn.“ Börnin stjórna sýningunni Helga á núorðið mikið safn af brúðum og velur þær brúður í sýn- ingar sem hún telur að muni vekja mestu lukku hverju sinni, þeirra á meðal er 5 ára apinn Lilli sem marg- ir landsmenn ættu að þekkja, hrekkjótti úlfurinn Úlli og vinalausi Blárefurinn. „Ég var reyndar komin með nóg af Lilla á tímabili og vildi hætta með hann en það þýddi ekki því alltaf var spurt eftir honum, það eru börnin sem eiga að ráða þessu og því hef ég haft hann með.“ Veðrið hefur sett strik í reikning- inn í vor við undirbúning og æfingar en allt fer fram undir berum himni. Helga vill þó gera sem minnst úr veðrinu. „Það hefur aldrei fallið nið- ur sýning hjá okkur, því sólin skín í Brúðubílnum þrátt fyrir veður.“ Forsýning á Brúðubílnum verður mánudaginn 4. júní klukkan 14 í Hallargarðinum í Reykjavík. Frum- sýning verður þriðjudaginn 5. júní í Árbæjarsafni klukkan 14. Upplýs- ingar um sýningar og dagskrá má finna á vef Brúðubílsins en sýningar verða í gangi á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið fram í lok júlí. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. „Sólin skín í Brúðubílnum“  Brúðubíllinn vinsæli snýr aftur í Reykjavík Morgunblaðið/Eggert Brúðubíllinn Aðstandendur Brúðubílsins í sumar. Efri röð frá vinstri: Ellen Margrét Bæhrenz, Sigrún Edda Björns- dóttir leikstjóri og Steinunn Arinbjarnardóttir. Neðri röð frá vinstri: Helga Steffensen og Gígja Hólmgeirsdóttir. Vinsælar brúður Apinn Lilli, gíraffamóðirin og gíraffarnir sjö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.