Morgunblaðið - 11.06.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ríkisforstjórar enn á borði kjararáðs
Fjölmörg erindi óafgreidd hjá kjararáði Niðurfelling laga um kjararáð til umræðu á Alþingi í dag
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Um þrjú ár eru síðan ríkisforstjórar fengu
síðast launahækkun en kjararáð, sem stendur
til að leggja niður, hefur ekki enn tekið
ákvörðun um kjaramál ríkisforstjóra, að sögn
Gissurar Péturssonar, formanns Félags for-
stöðumanna ríkisstofnana. Hann segir einnig
að fjölmörg önnur erindi liggi enn óafgreidd
hjá ráðinu.
„Ég veit að það bíða tugir erinda hjá
ráðinu sem eru kannski jafnvel eins og hálfs
árs gömul. Það er alveg með ólíkindum
hvernig þetta stjórnvald hagar sér. Kjararáð
ákvað hækkun til stjórnmálamanna, dómara
og einhverra örfárra forstjóra stofnana, að-
allega stofnana sem eru opinber hlutafélög.
Eftir situr langstærstur hópur ríkisforstöðu-
manna sem hafa ekki einu sinni fengið kjara-
samningsbundnar hækkanir núna síðastliðin
ár,“ segir Gissur.
Framhald óafgreiddu málanna óskýrt
Skipunartími kjararáðs rennur út 30. júní
og er önnur umræða um lög sem leggja til að
nýtt ráð verði ekki skipað á dagskrá Alþingis
í dag. Gissur segir framhaldið óskýrt og ekki
sé vitað nákvæmlega hvernig óafgreiddu mál-
in verði afgreidd.
„Það er ætlunin að þetta verði ákvörðunar-
efni kjara- og mannauðssýslu ríkisins en allt
það verklag er alveg óklár-
að. Þess vegna erum við al-
veg óskaplega pirraðir á
þessu. Við erum náttúrlega
stjórnendur stjórnvalds og
við bara þekkjum ekki
svona vinnubrögð, eins og
þessi nefnd viðhefur.“
Ríkisforstjórar hafa sent
beiðni til kjararáðs um af-
greiðslu sinna mála en að
sögn Gissurar hafa engin
svör borist. „Nei engin. Ég hef ekki heyrt af
því að það liggi neitt fyrir um það.“
Hann segir útilokað annað en að kjararáð
eigi að afgreiða þau erindi sem eru á þess
borði áður en það verði lagt niður enda er
langt síðan ríkisforstjórar fengu launahækk-
un. Spurður hvenær ríkisforstjórar fengu síð-
ast launahækkun segir hann það vera um
þrjú ár síðan og bætir við að slíkur dráttur
valdi rýrnun og síðar stórum hækkunum sem
gætu farið illa í fólk.
„Ég held að það séu þrjú ár frá síðustu
hækkun. Það er það sem gerir þetta erfitt því
þá safnast þetta upp og þá er auðvitað bara
komin stórkostleg rýrnun og svo reyna þeir
að svara því á einhverjum einum tímapunkti
með mikilli hækkun sem fer óskaplega illa í
fólk og eðlilega,“ segir Gissur sem bætir við
að allir séu búnir að fá nóg af kjararáði og þá
ekki síst þeir sem heyra undir ráðið.
Gissur
Pétursson
Þingi verður lík-
legast slitið á
morgun, að sögn
Steingríms J. Sig-
fússonar, forseta
Alþingis. Hvort
þing muni starfa
lengur en það
veltur að mestu á
því hvernig tekst
að ljúka við nýju
persónuverndar-
löggjöfina. Allsherjar- og mennta-
málanefnd þingsins var að störfum
um helgina við að koma frumvarpinu
úr nefnd og gat Steingrímur ekki full-
yrt hvort persónuverndarfrumvarpið
kæmi úr nefnd í dag, þegar Morgun-
blaðið hafði samband við hann í gær-
kvöldi. „Miðað við þær upplýsingar
sem ég hef er það ekki alveg ljóst.
Það þarf bara þann tíma sem það þarf
og það þarf að ljúka því sómasam-
lega,“ sagði Steingrímur. Alþingi
mun í dag halda áfram með þau mál
sem sett höfðu verið á dagskrá á
föstudag áður en ný mál verða sett á
dagskrá. „Þetta er enginn óskaplegur
málafjöldi. Dagskrá er í svona 20 mál-
um og svo styttist hún eftir að mál
tínast út. Þetta er bara spurning um
hversu marga daga, vonandi dugar
fyrri hluti vikunnar okkur.“
Þinglok
líklegast á
þriðjudag
Steingrímur J.
Sigfússon
Ný persónu-
verndarlög enn eftir
Félagsmenn Sniglanna – Bifhjólasamtaka lýð-
veldisins fjölmenntu í gær við Gufunesbæ í
Reykjavík og stilltu þar upp vélfákum sínum
fyrir gesti og gangandi. Meðal þeirra sem fengu
að njóta hjólanna voru langveik börn sem mörg
hver sýndu tryllitækjunum mikinn áhuga. Hjólin
voru af hinum ýmsu gerðum, en fremst má sjá
Harley Davidson sem á rætur sínar að rekja til
borgarinnar Milwaukee í Wisconsin-ríki.
Sniglarnir sýndu mótorfáka sína
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmenntu við Gufunesbæ og leyfðu fólki að berja tækin augum
Nú þykir orðið nokkuð ljóst að við-
ræður Vinstri grænna, Samfylking-
ar, Pírata og Viðreisnar um nýjan
borgarstjórnarmeirihluta muni bera
ávöxt, en í samtali við Morgunblaðið
segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
oddviti Viðreisnar í Reykjavík: „Við
gerum ráð fyrir að kynna þetta í
fyrri hluta vikunnar.“
Formlegar viðræður flokkanna
hafa nú staðið yfir í tæpar tvær vik-
ur en sumir höfðu gert sér vonir um
að nýr meirihluti yrði kynntur í dag
þar sem síðasti borgarstjórnarsátt-
máli var kynntur fyrir nákvæmlega
fjórum árum, 11. júní 2014. Spurð
út í þetta segir Þórdís: „Nei, við
gerum það nú ekki. Við erum ekki
komin svo langt.“
Eins og áður hefur komið fram
hafa oddvitar flokkanna lítið viljað
tjá sig um hver það verður sem
mun setjast í borgarstjórastólinn.
„Þetta er þessi
klassíska spurn-
ing,“ segir Þór-
dís, spurð út í
sætið, og bætir
við: „Við erum
akkúrat í þessum
fasa núna að
ræða verkefni og
hlutverk.“ Þrátt
fyrir að Þórdís
vilji lítið gefa upp
um hlutverk borgarfulltrúa segir
hún viðræður hafa gengið vel. „Við
komum til með að boða til blaða-
mannafundar og kynna sáttmálann
og verkefni.“
Þá sagði Líf Magneudóttir, odd-
viti Vinstri grænna, í viðtali á mbl.is
um helgina ekkert formlegt hafa
verið ákveðið varðandi hlutverka-
skiptingu hugsanlegs nýs meiri-
hluta. teitur@mbl.is
Meirihluti líklega
kynntur í vikunni
Oddvitar ræða um hlutverk og verkefni
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Sú staða að nýir læknar komist ekki
að á rammasamning hjá Sjúkratrygg-
ingum Íslands brýtur í bága við lög að
mati Steingríms Ara Arasonar, for-
stjóra Sjúkratrygginga Íslands. Þetta
kom fram í viðtali við Steingrím Ara í
þættinum Þingvöllum á K100 í gær.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra tók ákvörðun um að fleiri
læknar fengju ekki aðild að samn-
ingnum, í óþökk Steingríms.
Telur hann að framkvæmdin sé í
bága við rammasamninginn og rétt-
indi sem sjúklingum eru fengin í lög-
um. Hann hefur gagnrýnt að þurfa að
synja sérfræðilæknum um aðild að
samningnum undir þeim formerkjum
að fjármagn sé af skornum skammti.
Ljóst sé að mikil þörf sé á sérfræði-
læknum. „Það á ekki að skipuleggja
heilbrigðisþjónustuna út frá veitend-
um heldur út frá notendum og gera
allt sem hægt er til að standa vörð um
þeirra réttindi,“ segir Steingrímur.
Fjallað hefur verið um mál Önnu
Björnsdóttur sérfræðilæknis, sem
hefur lagt fram stjórnsýslukæru í
ljósi þess að hún fær ekki aðild að
samningnum. Var umsókn hennar
hafnað af Sjúkratryggingum Íslands
eftir fyrirmælum ráðherrans.
Anna, sem er sérhæfð í parkinsons-
sjúkdómnum, lagði fram stjórnsýslu-
kæru vegna málsins. Málið fór því
fyrir heilbrigðisráðuneytið sem er
æðra stjórnvalds gagnvart Sjúkra-
tryggingum Íslands. „Það kom mér á
óvart að ráðuneytið hafi talið sig hæft
til að úrskurða í málinu. Vegna þess
að við gerðum ekkert annað en að fara
eftir fyrirmælum ráðuneytisins, og
það er hafið yfir allan vafa að við átt-
um að gera það, þá gaf maður sér það
að ráðherra myndi víkja sæti og fela
öðru ráðuneyti að úrskurða í málinu.
Það kemur manni spánskt fyrir sjónir
að hún hafi tekið að sér að vera dóm-
ari í eigin sök,“ segir Steingrímur.
„Aðalefnisniðurstaða vegna kær-
unnar var að Sjúkratryggingar hefðu
farið eftir fyrirmælum ráðherra, en
það var ekki það sem málið átti að
snúast um, heldur hvort það var laga-
heimild fyrir fyrirmælum ráðherra til
að byrja með,“ segir Steingrímur.
Hann nefnir að í upphafi hafi verið
gert ráð fyrir því að „gjá“ myndaðist
milli þjónustu- og fjárhagsmarkmiða
samningsins. „Gengið var út frá því að
ráðherra gæti annars vegar hækkað
notendagjöldin eða tekið upp stýringu
inn í þjónustuna, t.d. með innleiðingu
tilvísunarkerfis,“ segir Steingrímur.
Ekki hafi verið gert ráð fyrir því að
ráðherrann gæti stýrt aðgangi lækna
að samningnum.
Ráðherra hafi brotið lög
Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands gagnrýnir heilbrigðisráðherra
Steingrímur Ari
Arason
Svandís
Svavarsdóttir