Morgunblaðið - 11.06.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Við erum ekki ein um þennan
vanda,“ segir Elfa Björk Ellerts-
dóttir, upplýsingafulltrúi velferðar-
sviðs Reykjavíkurborgar, í svari til
Morgunblaðsins vegna fyrirspurnar
um heimaþjónustu og -hjúkrun í
sumar, en fyrirséð er að draga þurfi
úr þjónustunni.
Hún bendir í því samhengi á frétt
frá Noregi sem birtist á vef norska
ríkisútvarpsins 31. maí sl., en þar
kemur fram að skortur sé á hjúkr-
unarfræðingum og sérhæfðum
hjúkrunarfræðingum í öldrunar-
þjónustu.
Mannekla vaxandi vandamál
Í fyrra vantaði þar 4.000 hjúkr-
unarfræðinga og hafi sú tala nú
hækkað upp í 5.900, en það er
hækkun um 47% á milli ára. Ástand-
ið sé slæmt og fari mjög hratt
versnandi. Um langtímavanda sé að
ræða sem ekki verði leystur nema
með því að stjórnvöld þarlendis
bregðist við.
Mikill skortur sé einnig á fé-
lagsliðum hérlendis en þeir starfa
við heimaþjónustu. Aðspurð segir
Elfa Björk ekkert til sem heitir
ófaglærður félagsliði, en starfsmað-
ur í félagslegri heimaþjónustu geti
farið á félagsliðanámskeið hjá stétt-
arfélagi, eða hafa lokið því í
tengslum við sambærileg störf.
Aðspurð hverjar Elfa Björk telji
helstu ástæður vandans hérlendis
vera segir hún: „Fáar umsóknir eru
að berast okkur um þessar stöður
og það er helsta ástæða þess að illa
gengur að manna þær. Ástæðu
manneklunnar má að miklu leyti
rekja til góðs atvinnuástands og
mikillar samkeppni á markaði um
hæfa umsækjendur.“
Ástandið nú sé svipað og í fyrra
en reiknað er með að álagið verði
aukið í sumar vegna meiri sumar-
lokana á Landspítalanum í ár, sér-
staklega á hjartagáttinni, en lokanir
þar valda auknu álagi á heimaþjón-
ustuna. „Velferðarsvið hefur verið
með mikið átak síðustu mánuði til
að auglýsa störfin og vekja athygli á
þeim. Áfram verður reynt að manna
stöður, en eins og staðan er í dag er
fyrirsjáanlegt að draga verði úr
þjónustunni. Verkefnum er for-
gangsraðað eftir mikilvægi, þ.e. þeir
ganga fyrir sem mest þurfa á þjón-
ustunni að halda.“
Morgunblaðið/Ómar
Hjúkrun Illa gengur að manna stöður þeirra sem sinna eiga þjónustunni.
Draga þarf
úr heimaþjón-
ustu í sumar
Álag vegna sumarlokana Landspítala
og skortur á starfsfólki segir til sín
„Þetta vekur athygli og viðbrögð
hjá fólki,“ segir Guðjón Arngríms-
son, upplýsingafulltrúi Icelandair,
um Boeing 757-300 farþegaþotu
sem nýverið bættist í flota félagsins.
Þotan hefur verið máluð í fánalit-
unum í tengslum við 100 ára full-
veldi Íslands og þátttöku karla-
landsliðsins á heimsmeistaramótinu
í Rússlandi. Guðjón segir að vélar
sem málaðar hafa verið síðustu ár
hafi dregið að fjölda ljósmyndara
auk mikillar umfjöllunar á sam-
félagsmiðlum. „Við höfum t.d. áður
sett vél hjá okkur í norðurljósalitina
og það vakti mikla athygli. Það voru
margir ljósmyndarar sem komu og
tóku myndir af vélinni. Þá voru
mjög margir að tala um þetta á hin-
um ýmsu samfélagsmiðlum,“ segir
Guðjón og bætir við að vélin muni
flytja stuðningsmenn Íslands til
Rússlands.
Ráðgert var að leikmenn Íslands
færu með vélinni til Rússlands en
ekki tókst að klára málningarvinn-
una í tæka tíð. „Við ákváðum að
drífa okkur ekki of mikið með að
mála vélina. Þess í stað fóru strák-
arnir með sömu vél og þeir fóru á
EM í Frakklandi,“ segir Guðjón.
aronthordur@mbl.is
Ljósmynd/airliners.net
Farþegaþotan Nýjasta viðbót Icelandair er nýkomin úr málun á Englandi.
Boeing-þota í fánalitunum
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta gekk smurt fyrir sig enda
var mjög góður andi í viðræðun-
um,“ segir Birkir Jón Jónsson,
oddviti Framsóknarflokks og
verðandi formaður bæjarráðs í
Kópavogi, um samkomulag við
Sjálfstæðisflokkinn um myndun
nýs meirihluta í Kópavogi.
Í tilkynningu sem oddvitar
flokkanna sendu frá sér í gær
kemur fram að Ármann Kr.
Ólafsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, verði
áfram bæjar-
stjóri og nýr
málefnasamn-
ingur verði
lagður fyrir full-
trúaráð flokk-
anna í kvöld.
Samkvæmt
heimildum
Morgunblaðsins
verður málefna-
samningurinn lagður fyrir klukk-
an 20.
Spurður hvort áherslubreyt-
inga sé að vænta með tilkomu nýs
meirihluta kveður Birkir já við.
„Áherslur komandi kjörtímabils
munu endurspeglast í þeim
stefnuskrám sem flokkarnir lögðu
fram fyrir kosningar,“ segir Birk-
ir og bætir við að áherslur flokk-
anna fari vel saman. „Þetta eru
flokkar sem hafa unnið vel saman
í gegnum tíðina hér í bænum.
Þess utan eru áherslur flokkanna
ekki mjög ólíkar,“ segir hann.
Fyrsti bæjarstjórnarfundur nýs
meirihluta mun fara fram klukk-
an 16 á morgun.
Nýr meirihluti í Kópavogi
Birkir Jón
Jónsson