Morgunblaðið - 11.06.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Í KABARDINKA
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Fjölmenni fylgdist með í gærmorg-
un þegar íslenska fótboltalandsliðið
æfði fyrsta sinni eftir komuna suður
að Svartahafi. Heimamenn í sjávar-
þorpinu Kabardinka, þar sem liðið
býr og æfir, eru bersýnilega stoltir
af að hýsa fulltrúa fámennustu þjóð-
ar sem nokkru sinni hefur tekið þátt
í lokakeppni heimsmeistaramóts og
tóku fagnandi boði um að vera við-
staddir æfinguna í gærmorgun.
Mjög heitt var í veðri; heiður him-
inn, stafalogn og líklega um 30 stiga
hiti um hádegisbil. Ungir sem aldnir
komu sér vel fyrir í stúkunni við völl-
inn og sátu þar allan tímann, þrátt
fyrir steikjandi hitann. Sumir höfðu
vit á að hafa með sér skyggnishúfur
og sólhlífar. Ekki veitti heldur af.
Gefið hafði verið í skyn að fólk
gæti hitt leikmennina og fengið
eiginhandaráritanir en vegna þess
hve margir mættu á svæðið var horf-
ið frá því, af öryggisástæðum.
Nokkrir leikmanna gáfu sér hins
vegar góðan tíma eftir æfingu og
skrifuðu á treyjur, bolta og myndir
sem áhorfendur í stúkunni köstuðu
niður til þeirra. „Aron, please“ eða
„Sigurdsson“ og „Alfreð“ var kallað
úr stúkunni; íbúar heimabæjar Ís-
lands þekktu greinilega sína menn í
sjón.
Ferðin suður að Svartahafi gekk
prýðilega á laugardaginn.
Eftir um það bil sex klukkutíma
flug með Herðubreið, þotu Iceland-
air, beint frá Keflavíkurflugvelli,
lenti landsliðshópurinn í Gelendzhik
um áttaleytið að staðartíma um
kvöldið. Það er aðalborgin hér við
ströndina en Kabardinka samfast
þorp.
Haft var á orði á Keflavíkurflug-
velli að fall væri fararheill.
Ferðataska Heimis Hallgríms-
sonar landsliðsþjálfara lenti nefni-
lega í vitlausri rútu við hótelið þaðan
sem landsliðið hóf ævintýraförina;
þegar KSÍ-hópurinn ók á brott í
suðurátt var taskan á leið upp á
Akranes! Mistökin komu sem betur
fer í ljós áður en í óefni var komið og
Heimir hló mest sjálfur að öllu
saman. Engum varð meint af …
Landsliðið býr á glæsihóteli ná-
lægt ströndinni þar sem vel fer um
alla að sögn.
Með í för eru meðal annars tveir
matreiðslumenn sem sjá um að öll-
um líki það sem þeir setja ofan í sig
og enginn fái magakveisu.
Æfingin í gær fór fyrst og fremst í
að ná úr mönnum ferðaþreytunni en
alvaran hefst af fullum krafti í dag
enda ekki nema fimm dagar þar til
litli risinn Messi og félagar í lands-
liði Argentínu taka á móti okkar
mönnum. Þá þarf að vera búið að
skola öllu ferðarykinu burt.
Himinlifandi Þessi ungi piltur og kennarinn hans
voru ánægð með að fá áritanir hjá Aroni Einari.
Svalandi Gylfi Þór Sigurðsson fær
sér vatnssopa á æfingunni í gær.
Bjart yfir við
Svartahaf
Heimamenn áhugasamir um landsliðið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mjög heitt Emil Hallfreðsson lét ekki duga að svala þorstanum heldur skvetti vatni líka yfir skallann. Ekki veitti af!
Í réttum lit Vinirnir þrír ákváðu að koma klæddir landsliðs-
litum Íslands og biðu spenntir eftir að fá að hitta hetjurnar.
5 DAGAR Í FYRSTALEIK ÍSLANDS
Spenntar Þessar rússnesku dömur fylgdust af áhuga með æfingunni.
Samfélagsmiðlar Magnús Gylfason skráir samtímasöguna um leið og Jó-
hann Berg Guðmundsson athugar líkast til hvort eitthvað nýtt sé í fréttum.