Morgunblaðið - 11.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Skemmdarverk hafa aukist til muna
eftir að leiktæki voru fjarlægð af lóð
Breiðagerðisskóla, að sögn formanns
foreldrafélags skólans, Örnu Rúnar
Ómarsdóttur. Leiktækin sem um
ræðir eru körfuboltakörfur og ap-
aróla.
Í skriflegu svari frá Jóni Halldóri
Jónassyni, upplýsingafulltrúa
Reykjavíkurborgar, kemur fram að
„körfur og körfuboltaspjöld á velli við
lóðarmörk voru tekin niður í kjölfar
ítrekaðra kvartana um truflun á
næturfriði“.
Ekki kvartað vegna leiktækja
Arna segist ekki kannast við að
íbúar í Fossvoginum hafi verið
óánægðir vegna körfuboltakarfanna
eða aparólunnar.
„Ég hef aldrei heyrt neinar kvart-
anir yfir þessum leiktækjum og veit
ekki hvaðan kvartanirnar koma,“
segir Arna. Þorkell Daníel Jónsson,
skólastjóri Breiðagerðisskóla, hefur
aftur á móti eitthvað heyrt af kvört-
unum en segir þær ekki tilkomnar
vegna leiktækjanna sjálfra.
„Umkvörtunarefnið var háreysti
og læti á kvöldin og langt fram eftir
nóttu. Þeir íbúar sem ég talaði við
tóku fram að þeir væru ekki að gera
athugasemdir við leik barnanna eða
notkun skólans á svæðinu. Umhverf-
is- og skipulagssvið Reykjavíkur-
borgar brást við kvörtunum með því
að taka niður aparóluna og seinna
meir körfuboltakörfurnar. Það eru
auðvitað margir ósáttir. Ég gerði
athugasemd við breytinguna og sagði
það ansi hart að leiktækin tíndust
svona út af skólalóðinni hvert á fætur
öðru án þess að það kæmi eitthvað í
staðinn.“
Aukin skemmdarverk
Arna segir að foreldrum barna í
skólanum og yfirstjórnendum skól-
ans þyki þetta vond þróun.
„Allt líf á skólalóðinni eftir skóla
hefur dalað og því miður hefur það
aukist til muna að unglingar séu að
hópast við skólann seinni partinn og
skemmdaverk á skólanum og skóla-
lóðinni hafa aldrei verið eins mikil.
Krakkar leika minna á lóðinni eftir að
skólanum lýkur og það ýtir undir það
að skemmdarvargar hópist þar sam-
an á kvöldin.“
Þorkell vill ekki fullyrða um
ástæður skemmdarverkanna en er þó
sammála Örnu um að skemmdarverk
á skólanum og á leiktækjum skóla-
lóðarinnar séu allt of algeng. Hann
segir nauðsynlegt að sporna við því
og telur tvær leiðir vænlegastar.
„Önnur leiðin er að lögreglan fylg-
ist með, kíki inn á lóðina á kvöldin og
spjalli við unglingana sem eru á lóð-
inni en lögreglan er auðvitað undir-
mönnuð og mikið annríki hjá henni.
Þá er hin leiðin, samtakamáttur íbú-
anna í hverfinu. Íbúar hér í hverfinu
gætu tekið upp hverfarölt og varið
sitt nærumhverfi með því.“
Þorkell segir skemmdarverkin á
lóðinni þau mestu sem hann hafi séð í
sinni vinnu í grunnskólum. „Þetta er
fjórði skólinn sem ég starfa við og
skemmdarverkin eru mest hér.“
Körfurnar fjarlægðar á sumrin
Reykjavíkurborg ætlar að færa
skólalóðinni aparóluna aftur í sumar
og verður hún þá innar á skólalóðinni
en áður. Einnig er fyrirhugað að setja
upp körfuboltakörfur í skólabyrjun
og að lýsingu á þær verði stýrt á þann
hátt að það slokkni á kösturum
klukkan tíu að kvöldi til. Að sögn Þor-
kels munu þessar körfur vera teknar
niður árlega í maí og settar aftur upp
í september. „Ég sat fund nýverið
með fulltrúum frá umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
þar sem þetta kom fram. Mér líst vel
á að færa aparóluna um set en ég er
ekki sáttur við að körfuboltakörf-
urnar verði teknar niður yfir besta
tíma ársins.“
Skortur á leiktækjum
„Það er í raun ekkert mikið um
leiktæki á lóðinni,“ segir Arna, sem
er ósátt við stöðu mála. „Nýlega var
öll lóðin gerð upp og það er auðvitað
frábært. En svo hefur ýmislegt verið
skemmt og það er auðvitað mjög leið-
inlegt að sjá þessa nýuppgerðu lóð
skemmast. Lóðin er mjög skemmti-
leg þrátt fyrir að ég vilji alltaf sjá
meira af leiktækjum,“ segir Þorkell.
Leiktæki fjarlægð vegna kvartana
Ósætti vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar að fjarlægja körfuboltakörfur og rólu Skemmdarverk
mögulegur fylgifiskur breytinganna Brýn þörf á eftirliti með skólalóð Breiðagerðisskóla á kvöldin
Morgunblaðið/Valli
Körfuboltaspjald Á spjaldið vantar körfu, en körfur á leiksvæðinu voru fjarlægðar fyrir skömmu.
Rætt verður um hágengi krónunnar, áskoranir á vinnumarkaði, samkeppnismál og
regluverk, þróun skattbyrði fyrirtækja, menntastefnu fyrir atvinnulífið og leiðir til að gera betur.
Til máls taka Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, Ásta S. Fjeldsted,
framkvæmdastjóri VÍ, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Finnur Árnason,
forstjóri Haga, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráðherra.
Boðið verður upp á létta hádegishressingu, súpu og nýbakað brauð.
SAMKEPPNISHÆFT
ÍSLAND?
HÁDEGISVERÐARFUNDUR UM SAMKEPPNISSTÖÐU
ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA.
Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK, ÞRIÐJUDAGINN 12. JÚNÍ KL. 12.00-13.30
Finnur
Árnason
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Bjarni
Benediktsson
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Ásdís
Kristjánsdóttir
Lilja
Alfreðsdóttir
Ásta S.
Fjeldsted
Vinsamlega skráið þátttöku á www.sa.is
Bjarni Siguróli Jakobsson mun í dag
keppa fyrir Íslands hönd í Evrópu-
forkeppni Bocuse d‘Or-matreiðslu-
keppninnar sem haldin er í Torino á
Ítalíu. Matreiðslukeppnin er ein sú
virtasta í heimi en 20 Evrópuþjóðir
keppa um 12 sæti í aðalkeppninni
sem haldin verður í Lyon í Frakk-
landi á næsta ári. Alls verða 24 þjóð-
ir frá nokkrum heimsálfum með
þátttökurétt í lokakeppninni. Undir-
búningur fyrir Bocuse d‘Or-
keppnina hefur nú staðið yfir í
marga mánuði, en í aðdraganda
keppninnar voru nokkur tonn af eld-
húsáhöldum og tækjum send frá Ís-
landi til Torino.
Bjarni verður þriðji keppandi í
eldhúsinu í Torino í dag en hann
mun hefja leik rétt fyrir klukkan tíu.
Bjarni er ekki ókunnugur mat-
reiðslukeppnum, en hann hefur áður
verið valinn kokkur ársins 2012 auk
þess að landa öðru sæti í keppninni
um matreiðslumann Norðurlanda
árið 2013. Auk Bjarna verða þjálfari
hans, Viktor Örn Andrésson, og að-
stoðarmaður, Ísak Þorsteinsson,
viðstaddir mótið. Þetta er í 31. sinn
sem Bocuse d‘Or matreiðslukeppnin
er haldin og um leið í 19. skipti sem
Ísland tekur þátt í mótinu.
Úrslit keppninnar í ár verða
kunngerð síðdegis á þriðjudag.
Keppir í einu virtasta
matreiðslumóti heims
Nokkur tonn af tækjum send út
Undankeppni Keppnin mun fara
fram í dag og á morgun.
„Þetta er hvatning til frekari til-
rauna á óperusviðinu,“ segir Daníel
Bjarnason, sem hlaut um helgina
sviðslistaverðlaunin Reumert fyrir
óperu ársins. Það var sýningin
Bræður sem Daníel hlaut verðlaunin
fyrir en hann fékk fréttirnar frá
sviðsmanni í Hörpu þegar hann hafði
nýlokið við að stýra sömu sýningu.
„Ég stóð við hliðina á Kasper Hol-
ten leikstjóra þegar sviðsmaður
færði okkur fréttirnar. Við óskuðum
hvor öðrum til hamingju og þetta
var auðvitað mikil gleði,“ segir Daní-
el og bætir við að það sé mikill heið-
ur að hljóta verðlaun fyrir óperu
sem hann samdi
og stýrði. Þetta er
í fyrsta sinn sem
Daníel stýrir eig-
in óperu. „Þetta
er allt öðruvísi en
að vera úti í sal.
Maður er nær
verkinu að mörgu
leyti og mér
finnst það frá-
bært. Að koma að
flutningnum er lifandi listform sem
verður til á staðnum,“ segir hann, en
fram undan eru tónleikar með Sin-
fóníunni auk annarra verkefna.
Fékk verðlaun fyrir óperu
sem hann samdi og stýrði
Daníel
Bjarnason