Morgunblaðið - 11.06.2018, Page 15

Morgunblaðið - 11.06.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018 Vél atvinnuman Japönsku MITOX-Kawasa vélorfin hafa um árabil ver val atvinnumannsins þeg kemur að því að velja öflu og endingargott vélorf krefjandi slátt. nsins ki ið ar gt í ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna, og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, komu báðir til Singapúr í gær, en leiðtogafundur þeirra fer þar fram á morgun. Efst á dagskrá fundarins er umræða leiðtoganna um kjarnorkuvopnabúr Norður-Kóreu og sagði Trump í gær að samtalið yrði einstakt tæki- færi fyrir Kim til að semja um frið. Fundurinn er sá fyrsti sem leiðtogi Norður Kóreu á með sitjandi for- seta ríkis sem Norður-Kóreumenn telja svarinn óvin sinn. Kim kom til Singapúr með flugi Air China frá Pyongyang, höfuð- borg Norður-Kóreu, til Peking í Kína. Þrjár flugvélar tóku á loft og leynd ríkti um það í hverri þeirra leiðtoginn væri. Á miðri flugleið var skipt um flugnúmer flugs Air China og stefnan tekin til Singapúr. Mikil öryggisgæsla er um Kim Jong-un og fjöldi lífvarða með í för. Í gær átti hann fund með Lee Hsien Loong, forseta Singapúr, þar sem eftir Kim var haft að þáttur Singa- púr í fundarhöldunum yrði sögu- legur bæru samræður leiðtoganna árangur. Ekki allt sem sýnist Ekki eru allir jafn sannfærðir um að fundurinn muni bera árangur og sérfræðingar um Norður-Kóreu telja margir afar ólíklegt að óskum Bandaríkjamanna um algjöra og óafturkallanlega afvopnun Norður- Kóreu verði mætt. Kim Jong-un hefur aðeins gefið óljósar yfirlýs- ingar um vilja Norður-Kóreu til að ganga að kröfum Bandaríkjamanna. Norður-Kóreumenn fara fram á að öryggi þeirra verði tryggt. Richard Armitage, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er einn þeirra sem hafa lýst efa- semdum sínum. Hann sagði í gær að árangur af fundinum yrði varla mældur með öðru en fjölda ljós- mynda sem þar yrðu teknar, þ.e. að leiðtogarnir fengju báðir þá athygli sem þeir vildu, en að öðru leyti væri fundurinn tilgangslaus. Trump telur sjálfur að fundurinn geti liðkað fyrir samskiptum þjóð- anna og að með honum hefjist veg- ferð sem að lokum muni leiða til samkomulags. „Það ræðst strax á fyrstu mínútunni í samtali okkar hvort mögulegt sé að ná lendingu og komast að samkomulagi. Ef ég tel að það gerist ekki, þá mun ég ekki eyða tíma mínum frekar,“ sagði hann. Christopher Hill, fyrrverandi yfir- samningamaður Bandaríkjanna við Norður-Kóreu í kjarnorkumálum, segir að fundurinn sé ekki jafn sögu- legur og margir haldi. „Það er mikilvægt að hafa í huga að allir forsetar Bandaríkjanna hafa staðið frammi fyrir möguleika á fundi með leiðtoga Norður-Kóreu. Enginn þeirra hefur viljað það og það eru góðar ástæður fyrir því,“ sagði hann. Ná leiðtogarnir lendingu?  Donald Trump og Kim Jong-un lentu í Singapúr  Leiðtogafundur á morgun  Óvíst er hvort samkomulag verður að veruleika  Trump fullur sjálfstrausts AFP Lentur Kim Jong-un kom til Singapúr með flugi Air China í gær. Honum fylgir fjöldi lífvarða frá Norður-Kóreu. Fundur Kim Jong-un, leiðtogi N-Kóreu, og Lee Hsien Loong, forsætisráð- herra Singapúr, hittust skömmu eftir komu hins fyrrnefnda til Singapúr. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fjölskylda Oleg Sentsov, úkraínsks kvikmyndagerðarmanns, hefur farið fram á það við Vladimír Pútín, for- seta Rússlands, að Sentsov verði sleppt úr fangelsi í Moskvu áður en heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst á fimmtudag. Sentsov var dæmdur í 20 ára fang- elsi í rússneskum herrétti fyrir um þremur árum, en hann var sakfelld- ur fyrir hryðjuverkastarfsemi. Var hann handtekinn í Kænugarði eftir að hafa tekið þátt í mótmælum þar sem þess var krafist að þáverandi stjórnvöld í Úkraínu hæfu frekari viðskipti við ESB. Einnig mótmælti hann stjórnarandstæðingum sem börðust fyrir því að Krímskagi yrði rússneskt landsvæði. Sentsov hefur verið í hungurverk- falli frá því 14. maí sl. og hyggst hann ekki ljúka því fyrr en allir úkraínskir pólitískir fangar verða látnir lausir. Lögfræðingur Sentsovs kveður hann hafa misst átta kíló síðan hungur- verkfallið hófst og að hann líti ekki vel út. Yfirmenn fangelsins munu þvinga mat ofan í Sentsov, telji þeir hungurverkfallið ógna lífi hans. AFP Fangi Sentsov er í hungurverkfalli og lítur illa út að sögn lögmanns hans. Myndin að ofan er þó frá 2015, þegar hann var hnepptur í hald. Láti Sentsov lausan áður en HM hefst  Setið í hungurverkfalli frá 14. maí Fjöldamótmæli hafa brotist út í Gvatemala í kjöl- far mikils mann- falls eftir gos í eldfjallinu Fúegó á sunnudag fyrir viku. Mótmælendur krefjast afsagnar Jimmy Morales, forseta landsins, vegna meintrar vanrækslu hans í að grípa til viðeigandi ráðstafana vegna eldgossins. Einnig fara mót- mælendur fram á að Sergio Cab- anas, yfirmaður almannavarna í landinu, og Sandra Jovel utanríkis- ráðherra segi af sér. 109 hafa fundist látnir frá því eldgosið hófst og fjölda fólks er enn saknað. Ásakanir mótmælendanna felast í því að hvorki almannavarnir né önnur stjórnvöld hafi látið vita af hættunni af eldfjallinu með næg- um fyrirvara. Fyrst beindust sjónir að jarðvísindastofnun Gvatemala, en forsvarsmenn stofnunarinnar bentu þá fingri að Cabanas. Er til- kynning almannavarna sögð hafa verið óskýr og að hún hafi verið send út of seint. GVATEMALA Fjöldamótmæli vegna eldgoss Leit Fjölda fólks er enn saknað. Stórbruni varð í vöruskemmu í Al- Russafa í austur- hluta Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gær þar sem fjöldi kjör- seðla og kosn- ingavélar úr þingkosningum 12. maí sl. voru geymd. Bandalag sjíaklerksins Moqtada Sadr og kommúnista sigraði í kosn- ingunum. Yfirvöld segja að engir kjörseðlar hafi skemmst og að bruninn muni ekki hafa áhrif á endurtalningu sem ráðgerð er á næstu dögum vegna ásakana á hendur bandalaginu um kosn- ingasvindl. ÍRAK Stórbruni í skemmu fullri af kjörseðlum Bruni Mikill eldur blossaði upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.