Morgunblaðið - 11.06.2018, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
✝ Sigurlína Þor-steinsdóttir
fæddist 6. júní 1946
á Hauganesi við
Eyjafjörð. Hún lést
á Landspítala í
Fossvogi 31. maí
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Anna Rósa-
munda Jóhanns-
dóttir, húsmóðir, f.
4.4. 1920, d. 4.6.
2011, og Þorsteinn Magnússon,
vélstjóri, f. 19.5. 1919, d. 26.12.
1992. Systkini hennar eru:
Magnús, f. 1942, maki Roxanna
Morales. Jóhanna Sigrún, f.
1948, maki Björn Jósef Arnvið-
arson. Viðar, f. 1950, maki Kol-
brún Ólafsdóttir. Björgvin, f.
1953, maki Jóna Dóra Krist-
insdótti,r og Gunnar, f. 1961,
maki Björk Bjarkadóttir.
Þann 22.12. 1978 giftist Sig-
urlína Gunnlaugi Hjaltalín Jóns-
syni eðlisfræðingi og MBA, f.
5.4. 1946. Foreldrar hans eru
hjónin Jón Hjaltalín Gunn-
laugsson, læknir, f. 8.6. 1917, d.
8.7. 1988, og Jóna Bjarnadóttir,
þaðan stúdentsprófi 1966. Eftir
stúdentspróf fór hún til Þýska-
lands og var þar í einn vetur við
þýskunám. Að loknu kennara-
prófi 1971 starfaði hún hjá
Barnavinafélaginu Sumargjöf,
kenndi við Laugarnesskóla í
Reykjavík jan.-maí 1975, við
Hlíðaskóla í Reykjavík 1975-76,
Laugarnesskóla 1976-79 og Ár-
bæjarskóla frá 1981 til starfs-
loka. Áður vann hún ýmis störf
á sumrin í sveit og niðursuðu-
verksmiðju, á Hótel Varðborg
og Hótel KEA, í skóbúð, var
læknaritari á FSA og vann í
banka.
Sigurlína kynntist Gunnlaugi
1970 og bjuggu þau í Grana-
skjóli fyrsta árið eftir að eldri
sonur þeirra fæddist. Þá bjuggu
þau í eigin íbúð á Sólvallagötu
64 frá 1972 þar til þau byggðu
raðhús í Árbæ 1980. Þau bjuggu
í Melbæ 26 frá 1980 og Glæsibæ
7 frá 2014. Gunnlaugur lærði
eðlisfræði og tók MBA í Eng-
landi á árunum 1966-71, starf-
aði við Orkustofnun til ársins
1988 og síðan við Háskóla Ís-
lands sem fjármálastjóri, há-
skólaritari og innri endurskoð-
andi þar til hann fór á eftirlaun
2016. Þau ferðuðust mikið sam-
an bæði innanlands og utan.
Útför Sigurlínu fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 11. júní
2018, og hefst hún klukkan 13.
húsmóðir, f. 27.12.
1921. Sigurlína og
Gunnlaugur eign-
uðust tvo syni 1)
Jón Hjaltalín, f.
1971, maki Helga
Guðjónsdóttir, f.
1968. Dætur þeirra
eru Kolfinna Eir, f.
1995, Úlfhildur Eir,
f. 1998, Arngunnur
Eir, f. 2001, og
Steingerður Eir, f.
2007. 2) Þór, f. 1979, maki Íris
Ólafsdóttir, f. 1980. Börn þeirra
eru Freyja, f. 2007, Atli, f. 2011,
og Bjarki, f. 2015. Fyrir átti
Sigurlína soninn Björn Axels-
son, f. 1968, faðir Axel Gíslason,
f. 1.7. 1945, d. 9.12. 2017. Maki
Björns er Birna Bessadóttir, f.
1947. Sonur Björns og Gunn-
hildar Helgadóttur, f. 1966, er
Guðni Þór, f. 1991. Börn Birnu
eru Vignir, Elva og Finnur
Bessi.
Árið 1947 flutti Sigurlína
með foreldrum sínum og bróður
til Akureyrar þar sem hún ólst
upp. Eftir barna- og gagnfræða-
skóla fór hún í MA og lauk
Elsku Lína.
Okkar leiðir lágu fyrst saman
árið 1991 þegar þú stóðst fyrir
utan hjá mér að leita að drengn-
um þínum sem átti að vera læra
undir stúdentspróf en hafði ekki
skilað sér heim um nóttina. Ég
held þú hafir ekki ætlað að láta
þessa stelpu eyðileggja framtíð
drengsins þíns. Þannig hófst
okkar samband. Ég man ég velti
því fyrir mér út í hvað ég væri
nú búin að koma mér. Þetta
reyndist nú samt vera upphafið
að annars ágætis sambandi.
Það kom fljótlega í ljós að þú
stóðst með þínu fólki og mikið
varstu nú glöð þegar drengurinn
náði stúdentsprófunum. Þá var
mér fyrirgefið. Gleði þín og stolt
jókst svo enn frekar þegar Jón
ákvað að fara í tannlækningar og
ég að feta í fótspor þín þegar ég
fór í kennaranámið. Menntun
fjölskyldu þinnar skipti þig mjög
miklu máli. Þú fylgdist náið með
hvernig okkur gekk í skólanum
og seinna hvernig dætrum okkar
gekk á menntabrautinni. Þú
varst alltaf boðin og búin til að
aðstoða þær ef þær þurftu á því
að halda og hringdir alltaf til að
fylgjast með hvernig þeim hefði
gengið í prófunum.
Þú varst mjög stolt af dætrum
okkar Jóns og sagðir frá þeim út
um allan bæ. Þú varst ánægð
með að þær væru í kórum og
gantaðist oft með að sönghæfi-
leikann hefðu þær ekki frá þér.
Þú tengdir það síðan við greind
þegar ein þeirra bað þig vinsam-
legast að hætta að syngja fyrir
sig. En það var víst eitt af því fáa
sem þú sagðist ekki geta. Þessu
sagðir þú öllum frá sem vildu
heyra, ekki því þú hefðir móðg-
ast heldur varstu svo ánægð að
barnið hefði svona næmt tón-
eyra. Þrátt fyrir þetta eigum við
fjölskyldan uppáhaldslag sem þú
raulaði svo oft með stelpunum.
Lagið fallega „Vem kan segla“.
Á þessum tæplega þrjátíu ár-
um höfum við gengið í gegnum
margt og ekki alltaf verið sam-
mála. Afskaplega var það mér
dýrmætt að hafa fengið að vera
með þér síðustu andartökin og
fengið að kveðja þig og segja þér
hversu vænt mér þótti um þig og
hvað ég er þakklát fyrir að þú
komst inn í líf mitt.
Elsku Lína, takk fyrir allt, ég
mun leggja mig fram við að
passa Nonna og stelpurnar.
Hvíl í friði.
Hver getur siglt þó að blási ei byr,
bát sínum róið án ára?
Hver getur kvatt sinn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára?
Ég get siglt þó að blási ei byr,
bát mínum róið án ára.
En ekki kvatt minn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára.
(Þýð. Hulda Runólfsd. frá Hlíð)
Helga.
Elsku amma Lína.
Takk fyrir að vera amma mín
og hjálpa mér að lesa og spila við
mig.
Takk fyrir allar leikhúsferð-
irnar með Freyju.
Takk fyrir að mæta á tón-
leikana mína.
Ég er glöð að ég fékk að
þekkja þig.
Ég veit að þér líður vel núna
og ég veit að þú munt vaka yfir
okkur.
Takk.
Þín,
Steingerður Eir.
Kæra amma,
mér finnst ótrúlegt að hugsa
til þess að þú sért farin frá okkur
en sem betur fer á ég margar
góðar minningar.
Þú varst alltaf tilbúin að
hjálpa mér þegar ég þurfti á því
að halda. Hvort sem það var að
lána mér bílinn þegar þið afi vor-
uð erlendis, gefa mér einka-
kennslu í stafsetningu, lesa yfir
ritgerðirnar mínar eða leiðrétta
málfarið hjá mér.
Þú gafst mér mikið og varst
alltaf stolt af mér jafnvel þó ég
gæti ekki lært hvernig ætti að
beygja orðið einkunn, þá sér-
staklega í fleirtölu.
Þú sagðir mér oft sögur og þá
oftast nær af þínum nánustu.
Sögurnar voru stundum svolítið
ýktar en það var allt í lagi þar
sem það sýndi bara hversu
hreykin þú varst af fólkinu þínu.
Þegar ég hugsa um það að við
fáum ekki að upplifa meira sam-
an fyllist ég mikilli sorg og finn
fyrir söknuði.
Ég veit nú samt að þú ert á
betri stað og kemur til með að
vaka yfir mér að eilífu.
Hvíldu í friði, elsku amma
mín.
Þín,
Kolfinna.
Sigurlína
Þorsteinsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Sigurlína Þorsteinsdóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
✝ Halla Guðnýfæddist á
Jörfa í Kolbeins-
staðahreppi,
Hnappadalssýslu,
11. júlí 1928. Hún
lést eftir stutta
sjúkdómslegu 30.
maí síðastliðinn á
Landspítalanum
við Hringbraut.
Foreldrar
hennar voru
hjónin Anna Jónsdóttir frá
Kaldárbakka, f. 1904, d. 1999,
og Erlendur Ólafsson frá
Jörfa, f. 1897, d. 1994. Systk-
ini Höllu eru Ólafur, f. 1926,
d. 2005. Pétur Ágúst, f. 1929,
Halla eignaðist fimm börn;
Önnu Erlu, f. 1948, sem hún
átti áður en hún hóf búskap
með Trausta og hann átti
eina dóttur, Málhildi, f. 1942,
frá fyrra hjónabandi en sam-
an áttu þau Margréti, f. 1956,
Hjördísi Steinu, f. 1958, Er-
lend, f. 1960, og Þórð Ólaf, f.
1962. Barnabörnin eru orðin
14 og barnabarnabörnin 21.
Halla starfaði fyrir hjóna-
band í Félagsprentsmiðjunni
í um 10 ár. Með barnauppeldi
saumaði hún og prjónaði flík-
ur á fjölskyldu, vini og
vandamenn og prjónaði lengi
lopapeysur fyrir Álafoss og
Handprjónasambandið. Hún
var virk í starfi aldraðra í
Hallgrímskirkju hin síðari ár
sér til mikillar ánægju.
Útför Höllu fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, 11.
júní 2018, og hefst klukkan
13.
og Agatha Heiður,
f. 1933, d. 2015.
Halla fluttist til
Reykjavíkur með
fjölskyldu sinni
haustið 1935 og bjó
þar alla tíð eftir
það, lengst af á
Laufásvegi 50 eða
frá árinu 1952.
Hinn 19. október
1958 giftist hún
Trausta Kristins-
syni bifreiðastjóra, f. 1921, d.
2012. Foreldrar Trausta voru
hjónin Margrét Magnúsdóttir,
f. 1883, d. 1961, og Kristinn
Steinar Jónsson, f. 1889, d.
1965.
Elsku fallega amma mín.
Minningar mínar um þig eru
margar og mér mjög dýrmætar.
Það var alltaf í miklu uppáhaldi
hjá mér þegar ég kom til
Reykjavíkur að fara til ykkar afa
og þegar ég fékk að gista þá fór
ég ekki að sofa fyrr en þú varst
búin að fara með bæn fyrir mig.
Ég man hvað þú áttir mikið af
fallegum slæðum og skartgrip-
um sem ég og frænkur mínar
fengum að leika okkur með. Þú
varst alltaf svo fín og smekkleg
kona. Ég er svo heppin að eiga
fallegar flíkur sem þú prjónaðir
á mig og mikið komu sér vel allir
ullarsokkarnir sem þú prjónaðir
handa mér þegar ég var að byrja
í fiskvinnu. Ég mun sakna þess
að sitja ekki með í eldhúsinu á
Laufásveginum að spjalla um líf-
ið og tilveruna, með ristað brauð
með bönunum og mjólkurglas
við hönd, sakna kótelettuveisln-
anna sem þú bauðst í en mest
mun ég sakna hlýju faðmlaganna
sem ég fékk alltaf þegar ég kom
í heimsókn. Takk fyrir allt, elsku
amma Halla.
Ég mun sakna þín.
Halla Kristín Kristinsdóttir.
Halla frænka, ein af uppá-
haldsfrænkum okkar, er látin í
hárri elli en hún hefði orðið ní-
ræð núna í júlí næstkomandi.
Fjölskyldur okkar voru mjög
nánar og mikill samgangur og
símtöl á milli, sérstaklega á ár-
um áður þegar fólk heimsótti
hvað annað og gjarnan án þess
að gera boð á undan sér. Halla
frænka var systkinabarn við
Soffíu (Doddý), móður okkar
Viggós, Helgu og Sigga en for-
eldrar þeirra og systkini voru
ættuð frá Jörfa í Kolbeinsstaða-
hreppi. Amma okkar Helga, sem
var föðursystir Höllu, var líka
mikil vinkona hennar og töluðu
þær mikið saman í síma og heim-
sóttu hvor aðra og fjölskylduna
alla með tilheyrandi kaffi-
drykkju og tertuáti. Systkinin
frá Jörfa voru afar glaðsinna og
afkomendur almennt og var því
oft glatt á hjalla með tilheyrandi
hlátrasköllum og skemmtileg-
heitum og var þá Halla frænka
aldeilis í essinu sínu en hún
kunni vel við mannfagnaði og að
hópnum væri haldið saman.
Halla frænka var, eins og áður
er getið, ein af uppáhaldsfrænk-
um okkar og héldum við aldrei
boð eða veislur í okkar fjöl-
skyldu án þess að skreyta boðin
með henni og Öggu systur henn-
ar sem var í sama flokki, sem
sagt gull af manni. Það lék allt í
höndunum á Höllu frænku okk-
ar, hún var mikil hannyrða- og
saumakona en að auki var hún
með afbrigðum ættfróð og stál-
minnug í þokkabót fram til hins
síðasta. Hún gat þulið upp ótrú-
legustu hluti og mundi m.a. alla
afmælisdaga ættarinnar. Halla
frænka giftist ung honum
Trausta sínum og voru þau óað-
skiljanleg uns hann lést fyrir
nokkrum árum. Saman ólu þau
upp barnahópinn og voru þau af-
ar stolt af börnum sínum og
barnabörnum og barnabarna-
börnum, enda allt saman mann-
kostafólk og með eindæmum
hresst og skemmtilegt.
Við fjölskyldan erum um þess-
ar mundir í útlöndum og þykir
mjög miður að geta ekki fylgt
frænku okkar síðasta spölinn.
Við viljum með þessum fáu orð-
um þakka frænku okkar fyrir
samfylgdina, tryggðina og vænt-
umþykjuna í okkar garð til ára-
tuga og sendum afkomendum
hennar og venslafólki okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Soffía (Doddý), Helga,
Helgi og fjölskylda.
Halla Guðný
Erlendsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG ERLA HARALDSDÓTTIR
Hólagötu 26, Vestmannaeyjum,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
þriðjudaginn 5. júní.
Hún verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
miðvikudaginn 13. júní klukkan 14.
Viðar Einarsson
Matthildur Einarsdóttir Ríkharður Zoega
Guðný Hrefna Einarsdóttir
Ágúst Ómar Einarsson
Einar Birgir Einarsson Guðrún Snæbjörnsdóttir
Halla Einarsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Móðir okkar, amma og tengdamóðir,
ANNA RAGNHEIÐUR ERLENDSDÓTTIR
Klettahrauni 6, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 4. júní á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 14. júní
klukkan 13.
Steina Borghildur Níelsdóttir Gunnar Níelsson
Hafdís Erla Gunnarsdóttir
Anna Lilja Dögg
Gunnarsdóttir
Víglundur Þorsteinsson Svava Theodórsdóttir
Lovísa María Erlendsdóttir
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖNNU DAGRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Árskógum 8, Reykjavík.
Sigríður Jónsdóttir
Kolbrún Gunnlaugsdóttir
Rannveig Gunnlaugsdóttir Pálmar Guðmundsson
Gunnlaugur Gunnlaugsson Guðríður Ágústsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og
langafi,
MAGNÚS GUÐJÓNSSON
prentari
Engjavöllum 5a, Hafnarfirði,
lést á Landakotsspítala 1. júní
Útför hans fer fram í Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 12. júní klukkan 15.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en við viljum gjarnan benda
þeim sem vilja minnast hans á Alzheimersamtökin á Íslandi.
Þórunn Haraldsdóttir
Bylgja Magnúsdóttir
Þórunn Maggý Jónsdóttir
Birta Sól Utley og Rebekka Huld Utley
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSDÍS VALDIMARSDÓTTIR
Hamrahlið 3, Grundarfirði,
lést á St. Franciskussjúkrahúsinu
fimmtudaginn 7. júní.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Kolbrún Sjöfn Matthíasdóttir Ólafur F. Magnússon
Lárus G. Þorvarðarson Pía Bertelsen
Jóhannes G. Þorvarðarson Kolbrún Reynisdóttir
Sigurður Ólafur Þorvarðars. Sjöfn Sverrisdóttir
Sævör Þorvarðardóttir Einar Guðmundsson
Jón Bjarni Þorvarðarson Anna Dóra Markúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn