Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 2
Fyrsti fundur nýs borgarráðs var
haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gærmorgun. Fundinn sátu Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri, Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir, sem kjörin var for-
maður, Líf Magneudóttir, sem verð-
ur varaformaður ráðsins, Sigurborg
Ósk Haraldsdóttir, Heiða Björg
Hilmisdóttir, Eyþór Laxdal Arnalds,
Hildur Björnsdóttir og Marta Guð-
jónsdóttir auk þriggja áheyrnarfull-
trúa sem eru fremst á myndinni.
Lengst til vinstri er Sanna Magda-
lena Mörtudóttir, þá Kolbrún Bald-
ursdóttir og Baldur Borgþórsson.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
áheyrnarfulltrúar Miðflokksins,
Flokks fólksins og Sósíalista létu
bóka óánægju með að fundir borgar-
stjórnar væru felldir niður í júlí og
ágúst: „Eðlilegt hefði verið að ný-
kjörin borgarstjórn hefði verið að
störfum í sumar vegna allra þeirra
brýnu mála sem nauðsynlegt er að
hefja vinnu að strax,“ sagði í bókun
þeirra.
Borgarráð fer ásamt borgarstjóra með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn
Nýtt borg-
arráð tekur
til starfa
Morgunblaðið/Valli
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Afgreiðslutími bersýnilega tilhæfu-
lausra umsókna um alþjóðlega vernd
hjá Útlendingastofnun hefur styst
úr 69 dögum að meðaltali árið 2017 í
fjóra daga, það sem af er árinu 2018,
og hlutfall slíkra umsókna frá örugg-
um upprunaríkjum hefur lækkað úr
52% árið 2017 í 26% á fyrstu fjórum
mánuðum ársins. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í svari dóms-
málaráðherra, Sigríðar Á. Ander-
sen, við fyrirspurn þingmannsins
Ólafs Ísleifssonar á Alþingi.
„Mér er til efs að farið hafi verið
jafn ítarlega yfir þessa þætti áður
eins og í svarinu. Dvalartímarnir
voru mjög langir en eru nú að stytt-
ast vegna aðgerða stjórnvalda. Þetta
er mjög þungur fjárhagslegur baggi
fyrir ríkið að bera, en í eldra svari
ráðherra við annarri fyrirspurn
minni kom fram að kostnaður rík-
issjóðs vegna hælisumsókna hefur
vaxið úr 220 milljónum í rúma þrjá
milljarða frá árinu 2012,“ segir Ólaf-
ur í samtali við Morgunblaðið, en
hann situr í fjárlaganefnd Alþingis.
Í fyrirspurninni var óskað eftir
upplýsingum, sundurliðuðum fyrir
árin 2012-2017, um fjölda hælisleit-
enda og hælisveitinga, meðaldvalar-
tíma þeirra sem fengu synjun,
lengsta dvalartíma og dreifingu
hans, hvaða þættir hafi áhrif á lengd
dvalartíma, aðgerðir til að stytta
dvalartíma, árangur þeirra og hvaða
aðgerðir séu fyrirhugaðar. Eins var
spurt um endurkomur þeirra sem
var synjað og fylgt af lögreglu úr
landi.
Umsóknum um alþjóðlega vernd
hérlendis fjölgaði úr 118 árið 2012 í
1.096 árið 2017 og þeir sem sóttu aft-
ur um eftir synjun og lögreglufylgd
úr landi voru níu árið 2016 og sjö árið
2017, skv. svarinu.
Dvalartími umsækjenda um al-
þjóðlega vernd er tíminn sem það
tekur stjórnvöld að afgreiða um-
sókn, að viðbættum tímanum sem
það tekur að framkvæma synjun
með sjálfviljugri heimför eða flutn-
ingi úr landi eða tímanum sem það
tekur þá sem veitt er vernd að út-
vega húsnæði.
Meðaldvalartími og lengsti dval-
artími umsækjenda um alþjóðlega
vernd, sem synjað var um efnislega
meðferð eða synjað um vernd, við-
bótarvernd eða dvalarleyfi af mann-
úðarástæðum, hefur styst úr því að
vera 355 og 1.432 dagar þegar hann
var lengstur árið 2014, í 166 og 531
dag árið 2017.
Einstaklingum sem veitt var al-
þjóðleg vernd fjölgaði úr þremur ár-
ið 2012 í 88 manns árið 2017, þeim
sem fengu viðbótarvernd fjölgaði úr
tveimur árið 2012 í 36 manns árið
2017. Engum var veitt svokallað
mannúðarleyfi árið 2012 en hefur
fjölgað í 54 manns árið 2017.
Veitt vernd sem hlutfall af um-
sóknum sama árs hefur því aukist úr
því að vera um 4,2% árið 2012 í að
vera um 16,2% árið 2017.
Málsmeðferð hefur mikil áhrif á
lengd dvalartíma, þ.e. hvort um er að
ræða bersýnilega tilhæfulausa um-
sókn einstaklings frá öruggu upp-
runaríki, hvort umsókn er afgreidd án
efnislegrar niðurstöðu á grundvelli
Dyflinnarreglugerðarinnar, eða hvort
umsókn er tekin til efnislegrar með-
ferðar. Einnig kærur á ákvörðunum
og óskir um frestun réttaráhrifa nið-
urstöðu, skortur á skilríkjum og auð-
kenning umsækjenda ásamt þeim
tíma sem samvinna við heimaríki við-
komandi tekur.
Á undanförnum árum hefur
stærstur hluti umsækjenda um al-
þjóðlega vernd hér á landi komið frá
öruggum upprunaríkjum og hafa
stjórnvöld því lagt ríka áherslu á að-
gerðir til að draga úr og hraða af-
greiðslu umsókna þaðan og stytta
dvöl umsækjendanna með skilvirkri
málsmeðferð. Áfram verði unnið að
því að bæta kerfið, því móttaka og
málsmeðferð umsækjenda um alþjóð-
lega vernd sé ekki verkefni sem verði
leyst með átaksaðgerðum, heldur við-
fangsefni sem er komið til að vera í
vestrænum ríkjum.
Dvalartími hælisleitenda styttist
Fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd hefur nær tífaldast á sex árum Veiting verndar eykst talsvert
hlutfallslega Meðal- og lengsti dvalartími þeirra sem fá synjun hefur verið styttur allverulega
Mun færri dvalardagar
» Dvalartími vegna tilhæfu-
lausra umsókna styttist úr 69
dögum 2017 í 4 daga 2018.
» Lengsti dvalartíminn var
áður um 4 ár en er nú 1,5 ár.
» Umfang veittrar verndar
eykst.
» Hægt að sækja endurtekið
um hæli þrátt fyrir synjun.
Ólafur
Ísleifsson
Sigríður Á.
Andersen
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Við erum að rífa og hreinsa og þetta
gengur bara ágætlega,“ sagði Jón
Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri
hjá Samherja fiskeldi, í samtali við
Morgunblaðið. Húsnæði fyrirtækis-
ins brann í eldsvoða aðfaranótt mið-
vikudagsins síðasta. Fyrirtækið hef-
ur fengið brunavettvanginn afhent-
an og hafið þar vinnu. „Það er fólk
hérna í hreinsunarstarfi og gjör-
gæslu með seiðin sem sluppu lif-
andi,“ segir Jón Kjartan, en eitt ker-
ið bráðnaði í eldinum og seiðin í því
drápust.
„Ég get ekki tjáð mig um það
núna, málið er í eðlilegum farvegi hjá
lögreglunni og við þurfum að átta
okkur á umfangi tjónsins fyrst,“
sagði Hermann Björnsson, forstjóri
Sjóvár, aðspurður hvort tilefni væri
til að gefa út afkomuviðvörun hjá
tryggingafélaginu vegna brunans í
fiskeldi Samherja á Núpi í Ölfusi.
Hann vænti þess að frekari upplýs-
ingar fengjust á allra næstu dögum.
Forstjóri Mannvirkjastofnunar,
Björn Karlsson, gat ekki veitt neinar
upplýsingar þar sem stofnunin vinn-
ur að rannsókn málsins fyrir lög-
reglu og vísaði á lögregluna á Suður-
landi um upplýsingar af framgangi
rannsóknarinnar.
Oddur Árnason yfirlögregluþjónn
kvað ekkert nýtt að frétta af rann-
sókn málsins og vænti þess ekki fyrr
en í fyrsta lagi eftir helgi, enda tals-
verð vinna fólgin í að rannsaka stór-
bruna.
Niðurrif hafið á bruna-
rústum fiskeldisins á Núpi
Enn verið að meta umfang tjónsins hjá tryggingafélaginu
Ljósmynd/Sigmundur Sigurgeirsson
Stórbruni Hreinsunarstarf er hafið
á vettvangi á Núpi í Ölfusi.DimmalimmReykjavik.is
Útsalan
er hafin
40-60%
afsláttur
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.