Morgunblaðið - 29.06.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.06.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Tvær nýjar sýningar ungra lista- manna verða opnaðar í sýningar- rými Kling og Bang í Marshall- húsinu á morgun, laugardag. Um ræðir sýningu listamannsins Fritz Hendricks IV sem nefnist Drauma- reglan (e. Routine Dream) og einn- ig samsýningu fimm listamanna sem nefnist Professional Amateur. Svefnrútína í málverkum Fritz Hendrick er ungur íslensk- ur listamaður sem útskrifaðist úr myndlistardeild LHÍ 2016 og hefur starfað við listsköpun undanfarin ár. Í verkum sínum hefur hann m.a. skoðað meðvitaða og ómeðvit- aða sviðsetningu sem einkennir líf- ið, listir og menningu. Þá hefur hann notið aðstoðar frá skáldaðri persónu sinni sem hann kallar Fræðimanninn, sem er fræðimaður og kenningasmiður sem skoðar líf- ið með gleraugum „gráu þulunn- ar“, þ.e. með gráum og ljóðrænum hætti. Draumareglan er sýning unnin undir áhrifum hugmynda Fræðimannsins um mikilvægi svefns og svefnrútínu. Verk Fritz samanstanda af málverkum og skúlptúrum en sýningin byggist einnig á texta sem Fræðimaðurinn hefur skrifað um mikilvægi stöð- ugrar svefnrútínu fyrir andlega vellíðan. Málverkin sýna línurit úr mælingum svefn-apps, sem sýna t.d. fram á hversu oft einstaklingur vaknar á nóttunni. Að sögn Fritz er svefnþemað byggt á áhuga hans sjálfs á svefni en svefnmynstur hefur verið honum hugleikið: „Inn- blásturinn kemur frá eigin reynslu en ég fór að halda mikið utan um eigið svefnmunstur og fannst það áhugavert. Svo er smá kaldhæðni í þessu öllu saman líka, en Fræði- maðurinn predikar svolitla sjálf- hjálp í texta sínum.“ Staða listamanna í nútímanum Samtímis verður opnuð sýningin Professional Amateur í Kling og Bang en að henni standa lista- mennirnir Arnar Ásgeirsson, Bergur Ebbi, Dagrún Aðalsteins- dóttir, Hrafnhildur Helgadóttir, Sæmundur Þór Helgason og Félag borgara. Dagrún Aðalsteinsdóttir, lista- maður og sýningarstjóri, átti hug- myndina að sýningunni: „Mig langaði til að búa til samsýningu í samstarfi við aðra listamenn þar sem við myndum velta fyrir okkur hver staða listamanna sé í dag og hvernig hún getur breyst í fram- tíðinni,“ segir Dagrún en hún er einnig með verk á sýningunni. Tilgangur sýningarinnar er að skoða óstöðuga stöðu og hlutverk listamannsins, þar sem verk hans sveiflast milli þess að vera talin mikilvæg eða ekki í samfélaginu. „Við lifum í samfélagi þar sem verk eru annaðhvort metin menn- ingarlega mikilvæg eða menning- arlegur úrgangur. Listamaðurinn er annaðhvort talinn amatör eða prófessjónal, og tekur sú staða sí- felldum breytingum. Forsend- urnar til að dæma verkin breytast líka í sífellu,“ segir Dagrún. „Við fjöllum einnig um þessar stöðugu tækniframfarir sem við búum við í dag og hvernig þær hafa áhrif á hugmyndir okkar um hvað teljist vinna eða fjárhagslegt framlag í framtíðinni.“ Maðurinn gegn tölvunni Hrafnhildur Helgadóttir er ein listamannanna sem taka þátt í samsýningunni en hún verður með gjörning á opnuninni. Verk hennar „Millenial Fall“ vísar í skák sem fram fór 1997 þar sem skákmað- urinn Kasparov tapaði fyrir gervi- greind, þ.e. tölvunni Deep Blue. Hrafnhildur notar þann leik sem útgangspunkt í samfélagsgrein- ingu á tímabilinu í kringum alda- mót þegar mannkynið hafði trölla- trú á tækninni og hennar hlutverki í samfélaginu, að sögn Dagrúnar. Opnunarteiti sýninganna verður klukkan 17 í Kling og Bang. Ungir listamenn spá í framtíðina  Tvær nýjar sýningar ungra listamanna opnaðar á morgun, laugardag, í Kling og Bang  Staða og hlutverk listamanna í nútímasamfélagi skoðuð ásamt svefnmynstri og svefnhegðun Morgunblaðið/Valli Spennt Dagrún Aðalsteinsdóttir og Fritz Hendrick í Kling og Bang-galleríinu í Marshall-húsinu í gær. Tríóið Tourlou heldur tónleika í Hannesarholti í kvöld kl. 20 og eru þeir fyrstu tónleikar þess hér á landi. Tourlou býður gestum í ferðalag til landa á borð við Búlg- aríu, Króatíu, Armeníu, Grikkland, Ítalíu og Spán, flytur þjóðlaga- tónlist í eigin útsetningum og er efnisskráin fjölbreytt, allt frá mel- ankólískum ballöðum til líflegrar danstónlistar. Tónlistarmennirnir eru líka frá ólíkum löndum, þ.e. Ís- landi, Spáni og Hollandi. Tríóið skipa Anna Vala Ólafsdóttir, sem leikur á selló og syngur, David Ala- meda Márquez, sem leikur á fiðlu, víólu d’amore og mandólín og syng- ur, og Mayumi Malotaux, sem leik- ur á fiðlu og mandólín og syngur einnig. Tourlou-tríóið var stofnað fyrir tveimur árum og hefur farið í tón- leikaferðir um Spán og Japan og gefið út geisladisk. Þá hefur tríóið einnig komið fram á tónleikum og tónlistarhátíðum í Hollandi og Belgíu. Tónleikar Tourlou í Hann- esarholti eru hluti af verkefninu Live Music Beyond Borders, sem gengur út á að bjóða upp á ókeypis tónleika fyrir fólk sem af ein- hverjum ástæðum hefur annars ekki tök á að sækja tónleika – hvort sem er af fjárhagslegum, heilsu- farslegum eða öðrum ástæðum, eins og segir í tilkynningu. Á tón- leikaferðalagi sínu um Ísland mun Tourlou m.a. koma fram í Vin – at- hvarfi fyrir geðfatlaða og á dval- arheimilinu í Stykkishólmi. Allur ágóði af tónleikunum í Hann- esarholti rennur til verkefnisins. Frekari fróðleik um tríóið má finna á tourloumusic.com. Tourlou Tríóið kemur fram í Hannesarholti í kvöld kl. 20. Tourlou heldur fyrstu tónleika sína á Íslandi Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.