Morgunblaðið - 29.06.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og
Viðtal í Morgunblaðinu í gær viðAlexöndru Björk Adebyi um
lokaritgerð hennar í lögfræði hefur
vakið verðskuldaða athygli. Loka-
ritgerðin fjallar um
„Fyrirkomulag
valdaframsals vegna
EES-samningsins“
og niðurstöðurnar
eru umhugs-
unarverðar.
Alexandra segirað samning-
urinn beri í dag mörg einkenni þess
að vera yfirþjóðlegs eðlis. „Þegar
skoðað er hvernig fyrirkomulag
valdaframsals vegna EES-
samningsins hefur þróast verður
hann ekki talinn standast þær for-
sendur sem byggt var á þegar
valdaframsal vegna samningsins
var talið samrýmast stjórnar-
skránni. Fræðimenn hafa m.a. haft
uppi varúðarorð um þróunina og
hefur þeim fjölgað í gegnum tíð-
ina,“ segir hún.
Styrmir Gunnarsson segir aðfróðlegt verði að sjá hvort ein-
hver alþingismaður sjái ástæðu til
að taka þetta mál upp, þegar þingið
kemur saman í haust.
Björn Bjarnason er sammálaAlexöndru um að samningnum
hafi ekki verið „ætlað að vera yfir-
þjóðlegs eðlis með sama hætti og
ESB“.
Þessi mál þarf að taka til umræðuog hægt er að taka undir með
Styrmi að í ljósi umræðna fyrir
skömmu um afgreiðslu Alþingis á
persónuverndarlöggjöf ESB séu
þessar niðurstöður mjög athyglis-
verðar.
En ætli þær verði til þess að þing-menn velti því fyrir sér hvort
færibandavinnan á Alþingi fyrir
ESB þurfi að taka breytingum?
Alexandra Björk
Adebyi
Þarf færibanda-
vinnan að breytast?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 súld
Bolungarvík 10 rigning
Akureyri 13 alskýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 12 léttskýjað
Ósló 26 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 heiðskírt
Stokkhólmur 26 heiðskírt
Helsinki 25 heiðskírt
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 26 heiðskírt
Glasgow 25 heiðskírt
London 26 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 24 heiðskírt
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 22 skúrir
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 25 þrumuveður
Mallorca 29 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 24 léttskýjað
Montreal 17 þoka
New York 22 rigning
Chicago 27 léttskýjað
Orlando 31 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:03 24:01
ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20
DJÚPIVOGUR 2:19 23:44
Um 100 um-
sóknir bárust
Sinfóníu-
hljómsveit
Norðurlands
þegar auglýst
var eftir hljóð-
færaleikurum á
samning til að
leika í verk-
efnum hljóm-
sveitarinnar.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson,
tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands, segir áhugann hafa
komið sér á óvart: „Það kom
skemmtilega á óvart hvað það eru
margir menntaðir og hæfir atvinnu-
hljóðfæraleikarar á Íslandi.“ Við-
brögð við auglýsingu Menningar-
félags Akureyrar gefa til kynna að
framboð á atvinnuhljóðfæraleik-
urum sé mjög gott og hefur Sinfón-
íuhljómsveitin nú þegar boðið 50
hljóðfæraleikurum samning.
„Og 30 öðrum verður boðið að
taka þátt í öllum stærri verkefnum.
Þetta sýnir að það er enginn vafi á
því að það er tilefni til að reka tvær
sinfóníuhljómsveitir á Íslandi,“ segir
Þorvaldur.
Margir
vilja leika á
hljóðfærin
Sinfónía Norður-
lands mjög eftirsótt
Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson
Alþjóðlegt fornsagnaþing verður
haldið í 17. skiptið, að þessu sinni í
Reykjavík og Reykholti, dagana 12.-
17. ágúst. Þingin hafa verið haldin
víða um heim og var seinasta þing
t.a.m. fyrir þremur árum í Sviss.
Yfirskrift og aðalviðfangsefni
þingsins eru Íslendingasögur en þess
verður einnig minnst að nú eru liðin
900 ár frá upphafi lagaritunar á Ís-
landi. Þá verða flutt yfir 200 erindi
um hvaðeina sem tengist uppruna,
þróun og list Íslendingasagna en auk
þess munu hátt í 40 fræðimenn ræða
um lög og samfélag í málstofum und-
ir yfirskriftinni „Með lögum skal
land byggja“.
Þrír hátíðarfyrirlestrar verða
fluttir í Háskólabíói og munu tveir
þeirra fjalla um Njálu og einn um ís-
lensk lögfræðiskjöl, forgangsatriði
laga og viðfangsefni lögfræðinnar til
forna.
Hermann Pálsson prófessor stofn-
aði til alþjóðlegu fornsagnaþinganna.
Gekkst hann fyrir fyrsta þinginu sem
haldið var árið 1971 í Edinborg. Há-
skóli Íslands, Snorrastofa og Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræð-
um standa að 17. alþjóðlega forn-
sagnaþinginu. Í Háskóla Íslands og í
Reykholti verður fjölbreytt dagskrá,
sem nálgast má á heimasíðu viðburð-
arins, fornsagnathing2018.hi.is.
Skráningarfrestur á viðburðinn er til
1. ágúst. veronika@mbl.is
Alþjóðlegt fornsagnaþing á Íslandi
Dagskrá í Reykjavík og Reykholti Íslendingasögur verða aðalviðfangsefnið
Morgunblaðið/Ómar
Fræði Hluti dagskrár fer fram í HÍ.