Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Framkvæmdir við byggingu nýrr-
ar brúar yfir Bjarnarfjarðará á
Ströndum eru nú á lokastigi.
Smiðir vinna nú að frágangi á brú-
argólfi og slá mót frá stöplum en í
næstu viku verður vegrið á brúna
sett upp. Í framhaldi af því verður
uppfyllingu mokað frá brúnni, sem
er byggð á þurru landi eins og al-
siða er framkvæmdum sem þess-
um toga.
Framhald af vegagerð
„Þetta er skemmtilegt verkefni
sem hefur gengið vel,“ segir Garð-
ar Sigurgeirsson, framkvæmda-
stjóri Vestfirskra verktaka, sem
hafa þetta verk með höndum.
Brúarsmíðin er í raun óbeint
framhald af því að lagður var nýr
vegur yfir Bjarnarfjarðarháls sem
tekinn var í gagnið á síðasta ári.
Fyrir er á þessum slóðum lítil brú
með trégólfi og þröngri aðkeyrslu,
en mun betri aðstæður eru við
nýju brúna, sem er 52ja metra
löng og tvíbreið. Kostnaður við
verkið er um 180 milljónir króna.
Vegurinn á þessum slóðum liggur
úr Bjarnarfirði norður í Árnes-
hrepp.
Framkvæmdir við smíði brúar-
innar hófst í nóvember á síðasta
ári þegar sökklar voru steyptir.
Þráðurinn var svo aftur tekinn
upp í apríl, mótum slegið upp og
steypt 9. júní síðastliðinn. Alls
þurfti í brúargólfið 330 rúmmetra
af steypu sem kom með steypubíl-
um úr Borgarnesi í alls 60 ferðum.
Má af því nokkuð ráða um hver
umfang þessarar framkvæmdar
er.
Stefnir í Arnarfjörð
„Við ljúkum brúarsmíðinni í
næstu viku. Starfsmenn Borgar-
verks sem lögðu veginn yfir háls-
inn koma svo í júlí og fylla að
brúnni og ganga frá veginum. Svo
verður brúin opnuð fyrir umferð
seinnipartinn í sumar,“ segir
Garðar Sigurgeirsson. Hann stefn-
ir svo í framhaldinu með sínum
mönnum vestur í Arnarfjörð þar
sem byggja þarf tvær nýjar sex-
tán metra langar brýr sem eru
eitt af því sem fylgir gerð Dýra-
fjarðarganga, en sú framkvæmd
er á áætlun og gengur vel.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bjarnarfjörður Byggð á þurru landi en nú verður fyllingum mokað burt og vatni veitt undir brúna, sem hér sést.
Ný brú á Bjarnarfjarðará
á Ströndum senn tilbúin
52 metra löng og tvíbreið Kostar 180 milljónir króna
Hálendisvakt Slysavarnafélagsins
Landsbjargar á þessu sumri hefst í
dag, þegar fyrstu hóparnir úr röðum
félagsins fara í Landmannalaugar.
Þar verða í sumar tveir flokkar sem
sinna aðstoð og öðrum tilfallandi
verkefnum að fjallabaki og á nær-
liggjandi svæðum. Um 20 björgunar-
sveitir koma að þessu verkefni og er
hver hópur viku í senn á vaktinni. Í
næstu viku fara svo af stað tveir hóp-
ar til viðbótar; annar verður í Nýja-
dal á Sprengisandi og hinn við
Drekagil í Öskju og sinnir hálendinu
norðan Vatnajökuls.
„Þörfin fyrir þessa þjónustu er
brýn. Við höfum gjarnan verið að
sinna um 2.000 verkefnum á ári, en
10-15% þeirra eru það sem við gæt-
um kallað brýna hjálp svo sem þegar
fólk veikist alvarlega, bílar eru fastir
og svo framvegis. Annað eru minni-
háttar þjónustuverkefni,“ segir Jón-
as Guðmundsson hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
Angi af Hálendisvaktinni er að í
sumar verður einn flokkur björgun-
arsveitarfólks í Skaftafelli frá
miðjum júlí til jafnlengdar í ágúst.
Er það gert til að styrkja þær bjargir
sem fyrir hendi þurfa að vera í hinni
fjölförnu Öræfasveit. sbs@mbl.is
Hálendisvaktin
fer á fjöll í dag
Styrkja allar bjargir í Skaftafelli
Hálendisvakt Björgunarsveitarfólk í Landmannalaugum í fyrrasumar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur
Merkivélarnar
frá Brother eru
frábær lausn
inná hvert
heimili og
fyrirtæki
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn
stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
Með þér í liði
Alfreð Finnbogason
Landsliðsmaðu attspyrnu
„Tækifærið er núna.“
r í kn
Registered trademark
licensed by Bioiberica
Allt um sjávarútveg