Fréttablaðið - 13.10.2018, Síða 6
fyrir í tekjuskattslögum að opinber
birting á upplýsingum um álagða
skatta samkvæmt skattskrá sé
heimil en ekki liggi ljóst fyrir hvort
hver sem er hafi þá heimild. Þá þurfi
einnig að skoða málið í samhengi
við nýju persónuverndarlögin,
GDPR, sem tóku gildi á árinu. Að
auki þurfi að skoða birtingarhátt-
inn en netið var ekki í huga þingsins
árið 1984 þegar lögin voru sett.
Mál er varða birtingu álagn-
ingar- og skattskrár hafa bæði
ratað til eftirlitsstofnana sem og
dómstóla. Í áliti umboðsmanns
Alþingis frá 1995 kom meðal ann-
ars fram að „ótvírætt og óumdeilt“
væri að heimilt væri að birta upp-
lýsingar úr skattskrá. Aðrar reglur
giltu hins vegar um álagningar-
skrár. Árið 2013 komst PSV síðan
að þeirri niður stöðu að CreditInfo
væri óheimilt að afrita upplýsingar
úr skattskrá með það að markmiði
að selja áskrifendum sínum upplýs-
ingarnar. Í gegnum tíðina hafa skatt-
skrár síðan verið gefnar út á bókar-
formi en téðir útgefendur hafa getað
farið til RSK, fengið skrána afhenta,
afritað hana og gefið út.
„Við höfum fengið ábendingar
um þessa síðu og er kunnugt um
hana. Það er í lögum heimild til að
gefa skattskrána út í heild sinni en
spurningin er hvort ljóst sé hver
hefur þá heimild. Það þurfa að vera
til staðar skýrar heimildir fyrir
vinnslu persónuupplýsinga,“ segir
Helga Þórisdóttir, forstjóri PSV.
Félagið Viskubrunnur ehf.
stendur að baki síðunni en félagið
var upphaflega í eigu KPMG Legal,
dótturfyrirtækis KPMG. Í svari frá
fyrirtækinu segir að KPMG stofni
félög og selji þau viðskiptavinum
og Viskubrunnur sé slíkt félag. Eftir
að söluna beri KPMG enga ábyrgð.
Fréttablaðið reyndi ítrekað að ná í
Jón Ragnar Arnarson, stjórnarmann
Viskubrunns og starfsmann A4, og
Víði Pétursson, varamann í stjórn,
prókúruhafa félagsins og útgefanda
þingeyska miðilsins Skarps, bæði í
síma og með tölvupósti. Engin svör
fengust. joli@frettabladid.is
PERSÓNUVERND Til skoðunar er
bæði hjá Persónuvernd (PSV) og
Ríkisskattstjóra (RSK) hvort vefsíða
sem birtir upplýsingar um laun
landsmanna starfi í samræmi við
lög og reglur. Samkvæmt lögum um
tekjuskatt er heimilt að birta opin-
berlega upplýsingar úr skattskrá svo
og gefa þær út í heild eða að hluta.
Ekki liggur hins vegar fyrir hvort
hver sem er hafi þá heimild.
Vefsíðan tekjur.is fór í loftið í gær
en þar er hægt að fletta upp upp-
lýsingum um laun allra Íslendinga,
sem náð hafa fjárræðisaldri, fyrir
árið 2016. Upplýsingarnar á síð-
unni byggjast ekki á álagningarskrá
RSK heldur skattskrá en hún inni-
heldur álagðan tekjuskatt hvers
gjaldanda eftir að leyst hefur verið
úr öllum kærum sem berast vegna
álagningarskrár. Upplýsingarnar á
síðunni sýna því ekki tekjur síðasta
árs heldur ársins 2016.
„Þetta kom okkur jafn mikið á
óvart og flestum öðrum. Þetta er
ekki á vegum RSK og okkur algjör-
lega óviðkomandi,“ segir Snorri
Olsen ríkisskattstjóri. Hann segir að
starfsfólk stofnunarinnar hafi fengið
fregnir af málinu í fjölmiðlum líkt
og flestir aðrir.
Aðspurður hvort vinnsla sem
þessi úr skattskrá sé heimil segir
Snorri að það sé í skoðun. Það liggi
Heimilt að birta skrána
en óvíst með aðferðina
Yfirlit yfir tekjur allra fullorðinna Íslendinga fyrir árið 2016 eru aðgengilegar á
tekjur.is. Málið er til skoðunar bæði hjá Ríkisskattstjóra og Persónuvernd. Áður
úrskurðað að óheimilt sé að miðla upplýsingum úr skattskrá gegn greiðslu.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri segir hina nýju og dularfullu tekjusíðu nú vera til skoðunar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Markáætlun
í tungu og tækni
Rannís og Samtök atvinnulífsins boða til opins
kynningarfundar um Markáætlun í tungu og tækni
mánudaginn 15. október kl. 8:30 – 9:30
í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Starfsmenn Rannís kynna Markáætlunina og svara
fyrirspurnum.
Davíð Þorláksson forstöðumaður samkeppnishæfni
hjá Samtökum atvinnulífsins stýrir fundinum.
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Skráning á fundinn fer fram á www.sa.is.
Markáætlun í tungu og tækni er opinn samkeppnissjóður sem starfar
samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir (nr. 3/2003
með áorðnum breytingum). Hlutverk Markáætlunar í tungu og tækni
er annars vegar að vernda og efla íslenska tungu, og hins vegar að
auðvelda nýtingu nýrrar samskiptatækni í íslensku samfélagi, til hagsbótar
almenningi, stofnunum og fyrirtækjum.Umsækjendur geta verið fyrirtæki
sem og stofnanir. Verkefni Markáætlunar í tungu og tækni tengjast
verkáætlun um máltækni fyrir íslensku 2018-2022, en framkvæmd hennar
er á höndum Rannís fyrir hönd Markáætlunar og Almannaróms.
Kynningarfundur 15. október
Endurskoðun stefnumörkunar fyrir
Þjóðgarðinn á Þingvöllum - kynningarfundur
Þingvallanefnd lagði fram stefnumörkun fyrir Þjóðgarðinn á Þingvöllum
í tengslum við tilnefningu Þingvalla á heimsminjaskrá árið 2004.
Undanfarin misseri hefur verið unnið að endurskoðun stefnumörkunar-
innar enda hafa ýmsar forsendur breyst, ekki síst vegna stóraukins
fjölda gesta.
Tillögu að að endurskoðaðri stefnumörkun má sjá á vef þjóðgarðsins,
www.thingvellir.is. Óskað er eftir athugasemdum og ábendingum um
efni tillögunnar og gefinn frestur til 1. nóvember
Til að kynna efni tillögunnar verður fundur þann 18.október í fyrir-
lestrarsal Þjóðminjasafns Íslands að Suðurgötu, kl 15.00 til 16:30.
Þar verða dregin fram helstu efnisatriði sem breyst hafa við endur-
skoðunina og spurningum svarað. Allir eru velkomnir á fundinn.
Sími: 553-4530
Grensásvegur 48
108 ReykjavíkTANNLÆKNASTOFA
Sandra Gunnarsdóttir
tannlæknir
Ég hef hafið störf á tannlæknastofunni
Krýnu ehf að Grensásvegi 48 í Reykjavík.
Tímapantanir eru í síma 553-4530
eða á heimasíðu Krýnu: www.kryna.is
Athugið lengri opnunartíma:
Mánudaga 8-18
Miðvikudaga 8-20
Fimmtudaga 8-20 Aðgengi fyrir fatlaða
Trausti Sigurðsson
tannlæknir
Við bjóðum alla alhliða tannlæknaþjónustu fyrir
alla ldurshópa ásamt sérfræðiþjónustu í
tannsmíðu , krónu og brúargerð, heilgóma
og partagerð og tannplöntum.
Tímapantanir eru í síma 553 4530 eða á heimasíðu Krýnu: www.kryna.is
Aðgengi
fyrir fatlaða
Trausti Sigurðsson
tannlæknir
Ég hef flutt starfsemi mína til tannlæknastofunnar
Krýnu ehf. að Grensásvegi 48 í Reykjavík og býð alla
sjúklinga mína sem og ýja velkomna á nýjan stað.
Við bjóðum alla alhliða t nnl knaþjónustu fyrir alla
aldurshópa ásamt sérfræðiþjónustu í tannsmíðum,
krónu og brúargerð, heilgóma og partagerð ásamt
tannplöntum.
Það er í lögum
heimild til að gefa
skattskrána út í heild sinni
en spurningin er hvort ljóst
sé hver hefur þá heimild.
Helga Þórisdóttir,
forstjóri Persónu-
verndar
DÓMSMÁL Deila um eignafyrir-
komulag á frárennslis- og skólp-
lögnum Bústaðavegs 99-101 endaði
með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
þess efnis að um sameign húseig-
enda væri að ræða. Málið var dæmt
stefndu í óhag og þurftu þau að
auki að greiða 2,5 milljónir í máls-
kostnað.
Húsið sem um ræðir er tveggja
húsnúmera fjöleignarhús, byggt árið
1956, með fjórum íbúðum, tveimur
íbúðum á hvoru húsnúmeri. Eig-
endur austurhluta hússins töldu að
lagnir hússins væru séreign hvers
um sig en eigendur vesturhlutans
að um sameign allra eigendanna
fjögurra væri að ræða.
Lagnir í austurhlutanum voru
endurnýjaðar að mestu árið 2014
en árið 2015 töldu eigendur vestur-
hlutans rétt að lagfæra þær sín
megin. Austurhlutaeigendur töldu
þá að þeim væri óskylt að taka þátt
í kostnaði sem af því hlaust og var
dómsmál því höfðað.
Stefnendur málsins, eigendur
vesturhlutans, létu dómkveðja
matsmann til að meta ástand
lagnanna. Því mati vildu hinir eig-
endurnir ekki una og fóru fram á
yfirmat. Var það nær samhljóða
því fyrra um að lagnakerfin væru
að mestu aðskilin, viðhald væri
aðkallandi og að viðgerð austur-
hlutans árið 2014 hefði ekki verið
fullnægjandi.
Í niðurstöðu dómsins sagði að
þó kerfin væru að mestu aðskilin
þá rynnu frárennsli regnvatns og
aðkoma að stofnlögn saman. Van-
ræksla hluta kerfisins væri til þess
fallin að raska hagsmunum allra.
Sanngjarnast væri fyrir heildina að
meta kerfið sem eina heild og að
kostnaður við viðgerð skiptist jafnt
niður á eigendur eftir hlutfallstölu
eignarhluta. Kröfu um að nauðsyn-
legt væri að ráðast í viðgerðir var
hins vegar vísað frá dómi. – jóe
Dýr deila um eignafyrirkomulag lagna og frárennslis
Fjórar íbúðir eru í húsinu á Bústaða-
vegi 99 og 101. FRÉTTABLAÐIÐ/EyþóR
1 3 . o k t Ó b E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
1
-D
E
8
C
2
1
1
1
-D
D
5
0
2
1
1
1
-D
C
1
4
2
1
1
1
-D
A
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K