Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 12
Andaðu að þér fersku fjallaloftinu
Brunaðu niður drifhvítar brekkurnar og upplifðu fullkomið frelsi. Skálaðu í heitu
kakói og njóttu útsýnisins. Gerðu síðan vel við þig og þína í mat og drykk þegar
kvölda tekur. Aldrei hefur verið auðveldara að njóta lífsins á skíðasvæðum
Evrópu og Norður-Ameríku.
SKÍÐAÁFANGASTAÐIR
Verð aðra leið frá 17.000 kr.
Verð frá 26.100 Vildarpunktum
Svíþjóð Ulf Kristersson, leiðtogi
sænska Hægriflokksins (Modera-
terna), sagði í gær að flokkur hans
væri tilbúinn til þess að mynda einn
minnihlutastjórn án aðkomu hinna
flokkanna í hægriblokkinni. Krist-
ersson lagði til að hinir hægriflokk-
arnir gætu varið stjórnina vantrausti.
Stjórnmálaskýrendur í Svíþjóð töldu
þetta útspil Kristerssons til þess gert
að komast hjá því að vinna með Sví-
þjóðardemókrötum.
Rúmur mánuður er nú liðinn
frá kosningum og enn hefur ekki
tekist að mynda stjórn. Einfaldasta
útskýringin er sú að hvorki hægri-
né vinstriblokkin náði meirihluta
þar sem þjóðernishyggjuflokkurinn
Svíþjóðardemókratar náði 62 þing-
sætum.
„Hvorki Svíþjóðardemókratar
né Vinstriflokkurinn ættu að hafa
nokkra aðkomu að ríkisstjórn,“ sagði
Kristersson í langri Facebook-færslu.
Vinstriflokkurinn fékk 21 sæti og er
hluti af vinstriblokkinni.
Nokkrir þingmenn og sitjandi
ráðherrar í starfsstjórn Jafnaðar-
mannaflokksins, stærsta flokks
vinstriblokkarinnar, höfnuðu þess-
ari tillögu Kristerssons í gær. „Með
þessari tillögu sýnir Kristersson sitt
rétta andlit. Hann vill mynda hægri-
stjórn með stuðningi öfgamanna. Sú
stjórn hefði minnsta umboð nokk-
urrar ríkisstjórnar í fjörutíu ár og
væri sú hægrisinnaðasta í níutíu ár,“
sagði Morgan Johansson innanríkis-
ráðherra í tísti.
Jimmie Åkesson, leiðtogi Sví-
þjóðardemókrata, sagði að tillagan
væri út í hött. „Það er algjörlega órök-
rétt að við myndum styðja myndun
ríkisstjórnar sem gefur það út að við
fengjum ekki að hafa nein áhrif. Það
mun að sjálfsögðu ekki gerast.“
Þingmenn og leiðtogar hinna
hægriflokkanna, Miðflokksins, Frjáls-
lynda flokksins og Kristilegra demó-
krata, höfðu lítið tjáð sig um tillögu
Kristerssons þegar Fréttablaðið fór í
prentun í gær.
Michael Arthursson, þingmaður
Miðflokksins, sagði þó við sænska rík-
isútvarpið, SVT, að það væri óheppi-
legt að rætt væri um slíkar tillögur á
opinberum vettvangi. Þær ætti frekar
að ræða innan hægriblokkarinnar.
Heimildarmaður úr Frjálslynda
flokknum sagði hins vegar við
Expressen að tillaga Kristerssons ylli
flokksmönnum áhyggjum. Færsla
Kristerssons hefði komið Jan Björk-
lund formanni á óvart og að það væri
undarleg taktík að ræða ekki við for-
manninn áður en slík færsla væri birt.
Andreas Norlén, forseti þingsins
og þingmaður Hægriflokksins, gaf
Kristersson stjórnarmyndunarum-
boðið þann 2. október síðastliðinn.
Umboðið gildir til tveggja vikna og
hefur Kristersson því frest fram á
þriðjudag til að mynda ríkisstjórn.
thorgnyr@frettabladid.is
Hægriflokkurinn vill stýra einn
Illa gengur að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð nú þegar rúmur mánuður er liðinn frá kosningum. Leiðtogi
stærsta flokks hægriblokkarinnar leggur til að flokkurinn myndi minnihlutastjórn einn síns liðs.
Tillögu Ulfs Kristersson hefur ekki verið vel tekið en illa gengur að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð. NordicphoToS/AFp
Úkraína Kirkjuþing rétttrúnaðar-
kirkjunnar undir stjórn patríarkans
í Istanbúl, trúarleiðtoga um 300
milljóna safnaðarbarna og eiginlegs
æðsta manns rétttrúnaðarkirkjunn-
ar, ákvað í gær að úkraínska rétt-
trúnaðarkirkjan fengi sjálfstæði frá
hinni rússnesku. Málið á sér langa
sögu en kirkjan í Rússlandi hefur
alltaf lagst gegn aðskilnaðinum.
Haldið því fram að um yrði að ræða
stærsta klofning kristninnar í þús-
und ár eða allt frá því rétttrúnaðar-
kirkjan klauf sig frá hinni kaþólsku.
En þótt Úkraínumenn hafi margir
hverjir viljað kljúfa sig frá rússnesku
kirkjunni hefur deilan harðnað til
muna frá því að Rússar innlim-
uðu Krímskaga árið 2014 og átök
brutust út í Austur-Úkraínu. Hafa
Úkraínumenn til að mynda sakað
rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna
um að nýta ítök sín í Rússlandi til
að styðja aðskilnaðarsinna í austur-
hluta Úkraínu.
Petró Pórósjenkó, forseti Úkraínu,
sagði í gær að ákvörðun patríarkans
og kirkjuþingsins væri til þess fallin
að vekja yfirvöld í Moskvu af al-
ræðis draumum sínum. „Þetta snýst
um sjálfstæði okkar, þjóðaröryggi
og alþjóðastjórnmálin eins og þau
leggja sig,“ sagði forsetinn. – þea
Úkraínukirkja
sjálfstæð frá
þeirri rússnesku
Ákvörðuninni var innilega fagnað í
Úkraínu í gær. NordicphoToS/AFp
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
1
-D
9
9
C
2
1
1
1
-D
8
6
0
2
1
1
1
-D
7
2
4
2
1
1
1
-D
5
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K