Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 21
Handbolti Þrjú íslensk lið verða í
eldlínunni í 2. umferð EHF-bikars
karla í handbolta um helgina.
Klukkan 18.00 í kvöld tekur Selfoss
á móti slóvenska liðinu Riko Ribn-
ica. Selfyssingar þurfa að vinna upp
þriggja marka forskot Slóvenanna frá
fyrri leiknum sem endaði með 30-27
sigri heimamanna.
Möguleikar Selfyssinga eru ágætir
en þeir þurfa að spila betri vörn en
í fyrri leiknum ef þeir ætla sér að
komast í næstu umferð. Selfoss
vann ÍBV í Eyjum í Olís-deildinni
á miðvikudaginn, 25-27, þar sem
landsliðsmaðurinn Haukur Þrast-
arson fór á kostum á lokakafl-
anum.
Á morgun mætir ÍBV franska
liðinu Pays d’Aix á útivelli. Eyja-
menn unnu frábæran sigur í
fyrri leiknum, 24-23, sem
Theodór Sigurbjörnsson
og Kolbeinn Aron Ingi-
bjargarson áttu risa-
stóran þátt í að landa.
Theodór skoraði síð-
ustu tvö mörk ÍBV og
Kolbeinn Aron varði
lokaskot Frakkanna.
Eins marks forskot
er ekki mikið og það er
hætt við að það dugi skammt
gegn sterku liði Pays d’Aix
sem franska goðsögnin Jérome
Fernandez stýrir. Pays d’Aix
hefur reyndar farið rólega af
stað heima fyrir og aðeins
unnið tvo af fyrstu sex deild-
arleikjum sínum.
FH-ingar eru mættir til
Lissabon í Portúgal þar sem
þeir mæta Benfica. Báðir
leikirnir fara fram á heima-
velli portúgalska liðsins.
Fyrri leikurinn, sem telst
heimaleikur Benfica, fer
fram í dag og á morgun
er komið að „heimaleik“ FH. Benfica
hefur sterku liði á að skipa sem endaði
í 3. sæti portúgölsku deildarinnar á
síðasta tímabili. Í liði Benfica má finna
leikmenn á borð við Kévynn Nyakos,
heims- og Evrópumeistara með Frakk-
landi, og makedónska markvörðinn
Borko Ristovski sem hefur leikið með
liðum á borð við Barcelona og Rhein-
Neckar Löwen.
Á þarsíðasta tímabili komst Benfica
í riðlakeppni EHF-bikarsins. FH var
hársbreidd frá því að komast þangað í
fyrra og vantaði aðeins eitt mark til að
slá Tatran Presov frá Slóvakíu úr leik í
3. umferð keppninnar. – iþs
Möguleikar Selfyssinga fyrirfram mestir
Bolt skoraði sín
fyrstu mörk
fótbolti Usain Bolt, fótfráasti
hlaupari sögunnar, skoraði sín
fyrstu mörk fyrir ástralska liðið Cent-
ral Coast Mariners þegar það vann
4-0 sigur á Macarthur South West í
æfingaleik í Sydney í gær. Þetta var
fyrsti leikur áttfalda Ólympíumeist-
arans í byrjunarliði Central Coast
Mariners.
Bolt, sem á heimsmetið í 100 og
200 metra hlaupi, dreymir um að
verða atvinnumaður í fótbolta og
hefur æft með Central Coast Marin-
ers síðan í ágúst. Jamaíkumaðurinn
freistar þess að fá samning hjá félag-
inu og líkurnar á því minnkuðu ekk-
ert með frammistöðunni í gær. Bæði
mörk Bolts komu um miðjan seinni
hálfleik, það fyrra eftir að hann
slapp í gegnum vörn Mac arthur
South West og það síðara með skoti
af stuttu færi.
Keppni í áströlsku úrvalsdeildinni
hefst næsta föstudag. Forráðamenn
Central Coast Mariners hafa gefið í
skyn að Bolt fái allt að sex mánuði til
að sýna sig og sanna. – iþs
Usain Bolt fagnar að hætti hússins.
Nordicphotos/Getty
Verk í náttúru
Þeistareykja
Landsvirkjun býður til sýningar á vinningstillögu í hugmynda
samkeppni um nýtt listaverk í náttúru Þeista reykja. Þær þrjár
tillögur sem, ásamt vinningstillögunni, þóttu áhugaverðastar
verða einnig sýndar.
Vinningstillagan, sem ber heitið Römmuð sýn, er að mati
dómnefndar kröftug og djörf till aga sem hefur landslagið
upp og rammar inn á skemmtilegan hátt.
Frá stofnun Landsvirkjunar hefur verið hefð fyrir því að láta
gera listaverk í tengslum við byggingu helstu mannvirkja
á vegum fyrirtækisins. Í þetta sinn var haldin hugmynda
samkeppni í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands.
Sýningin í Hönnunarsafni
Íslands við Garðatorg 1
í Garðabæ stendur yfir
10. til 14. október.
Sýningin í Safnahúsinu á
Húsavík mun standa yfir
27. október til 31. desember.
Sýning á vinningstillögu að listaverki
í náttúru Þeistareykja. Hönnunarsafn
Íslands, 10.-14. október.
Golf Valdís Þóra Jónsdóttir,
atvinnukylfingur úr GL, hefur
leik á öðru stigi úrtökumótsins
fyrir LPGA-mótaröðina í Flór-
ída í Bandaríkjunum í dag. Fer
mótið fram á Plantation Golf and
Country Club í bænum Venice og
eru 195 kylfingar skráðir til leiks
en efstu 25 kylfingarnir komast á
lokastigið.
Er þetta þriðja árið í röð sem
Valdís reynir að komast inn á
LPGA-mótaröðina og í fyrsta
sinn sem hún keppir á öðru stigi.
Hefur hún leikið á Evrópumóta-
röðinni, næststerkustu mótaröð
heims, á undanförnum árum með
góðum árangri en reynir nú að
komast inn á þá sterkustu.
Valdís hefur eytt
u n d a n f ö r n u m
vikum í Banda-
ríkjunum til að
undirbúa mótið
og ekki tekið
þátt í mótum
á Ev r ó p u -
mótaröðinni
enda hefur
hún þegar
t r yg g t s é r
þátttökurétt á
næsta ári.
K o m i s t
Valdís áfram
fær hún þátt-
tökurétt í þriðja
og síðasta úrtöku-
mótinu sem fram
fer í lok mánaðar
þegar Ólafía Þór-
unn Kristinsdóttir
mun sömuleiðis
reyna að endur-
nýja þátttökurétt
sinn. – kpt
Valdís Þóra
reynir við LPGA-
mótaröðina
S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 21l a U G a r d a G U r 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
1
-E
3
7
C
2
1
1
1
-E
2
4
0
2
1
1
1
-E
1
0
4
2
1
1
1
-D
F
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K