Fréttablaðið - 13.10.2018, Qupperneq 38
MINNINGASTUND Í
GUÐRÍÐARKIRKJU REYKJAVÍK
OG GLERÁRKIRKJU AKUREYRI
15. OKTÓBER 2018 KL. 20:00
15. október er alþjóðlegur dagur tileinkaður missi á
meðgöngu og barnsmissi. Gleym mér ei styrktarfélag hefur
staðið fyrir minningastund ár hvert. Í ár er stundin haldin í
Guðríðarkirkju í Reykjavík og Glerárkirkju á Akureyri.
Við hvetjum ykkur öll að koma og eiga saman hugljúfa
stund mánudaginn 15. október kl. 20:00.
Litlir fætur marka djúp spor
www.gleymmerei-styrktarfelag.is
Valþór Örn
Sverrisson fer
með Íslendinga til
Búdapest í tann
lækningar á sann
gjörnu verði.
Ferlið gengur þannig fyrir sig að hægt er að fá tilboð upp á hverja einustu krónu áður en
lagt er af stað á tannheilsustofnun
ina Fedasz Dental í Ungverjalandi.
Það hefur nú þegar sparað tugum
Íslendinga mörg hundruð þúsund
í tannlæknakostnað og með mjög
góðum árangri,“ segir Valþór sem
sjálfur sparaði sér stórfé með því
að leita sér tannlækninga hjá
Fedasz Dental.
„Fyrir lágu kostnaðarsamar
tannviðgerðir sem áætlað var að
ættu að kosta á hálfa þriðju milljón
hér heima en þegar upp var staðið
greiddi ég 800 þúsund fyrir við
gerðirnar í Búdapest, og var þá
flug og gisting innifalið,“ upplýsir
Valþór.
Viðskiptavinir í skýjunum
Fedasz Dental er mikils metin
tannlæknastofnun í Ungverja
landi. Þar starfa viðurkenndir
tannlæknar við afbragðs aðstæður
og fyrsta flokks aðbúnað.
„Fedasz Dental hefur á sér
hágæða stimpil og eru viðskipta
vinirnir í skýjunum. Íslendingar
sem farið hafa utan og sótt hjá
þeim tannviðgerðir í Búdapest
hafa verið mjög sáttir. Verðið
kemur svo vitaskuld ánægjulega
og alltaf á óvart, akkúrat öfugt við
verðlag tannlækna hér heima,“
segir Valþór sem fylgir Íslending
um utan til Fedasz Dental.
„Við fylgjum okkar fólki til og frá
flugvellinum í Búdapest og bjóðum
upp á gistingu á heilsustofnun
Fedasz Dental. Til Búdapest er svo
beint flug með Wizzair, sem er
lággjaldaflugfélag. Með Wizzair
er bæði auðvelt og ódýrt að fljúga
og kostar flugfarið til Búdapest frá
krónum 20 til 40 þúsund, báðar
leiðir, en það fer eftir fyrirvara
á bókun,“ segir Valþór sem farið
hefur utan með fjölda einstaklinga
jafnt sem pör.
„Stundum þurfa báðir aðilar að
gangast undir tannviðgerðir eða
þá bara annar aðilinn sem vill hafa
hinn með sér til halds og trausts.“
Valþór verður með hópferð til
Fedasz Dental í samstarfi við Trip
ical Travel vikuna 24. nóvember til
1. desember.
„Í tengslum við þá ferð verð ég
með kynningarfund hjá Tripical
Travel í Borgartúni 8, laugardaginn
21. október klukkan 17, og eru allir
velkomnir til að fá betri innsýn
í þennan frábæra og hagkvæma
kost,“ segir Valþór.
Nánari upplýsingar fást hjá Tripical
Travel á tripical.is og í síma 519
8900, og hjá Valþóri í síma 771 7171
eða á netfanginu vallisverriss@hot
mail.com.
Tannlæknir á sanngjörnu verði
Fedasz Dental
tannheilsu-
stofnunin í
Búdapest.
Hvít pitsa er mjög góð og ekkert síðri en sú með tómatsósu.
Hvít pitsa er æðisleg. Hún er sögð hvít þar sem engin tómatsósa er á henni. Því er þó
hægt að breyta eftir smekk hvers og
eins. Hvít pitsa er eins og hvítlauks
brauð og má borða til dæmis með
súpu eða pottréttum eða hafa sem
forrétt þegar gestir eru í mat. Hér er
æðisleg uppskrift sem allir ættu að
prófa. Einnig er hægt að borða hana
með salati sem heila máltíð.
Pitsudeig
300 g hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. þurrger
200 ml volgt vatn
Hrærið saman hveiti, salt og þurr
geri. Setjið vatnið saman við og
hnoðið. Bætið við vatni ef þarf.
Látið hefast þar til deigið hefur
tvöfaldast að stærð.
Það sem fer ofan á pitsuna:
2-3 msk. ólífuolía
3-4 hvítlauksrif
300 g mozzarella-ostur
½ tsk. þurrkað óreganó
1 tsk. basil
Hitið ofninn í 250°C. Það væri
mögulegt að gera deigið áður en
haldið er til vinnu að morgni.
Þá er það tilbúið fyrir kvöld
mat. Skiptið deiginu í tvennt og
fletjið út í tvær pitsur. Penslið
deigið með ólífuolíu og stráið
rifnum hvítlauk yfir. Það má
líka útbúa hvítlauksolíu og hella
yfir. Blandið ostinum yfir ásamt
kryddinu. Bakið í um það bil sjö
mínútur eða þar til osturinn er
bráðnaður. Það má setja hvaða
krydd sem er yfir pitsuna og vita
skuld má líka bæta við alls kyns
ostum, til dæmis gráðaosti.
Æðisleg hvít pitsa
Valþór Örn Sverrisson. MYND/STEFÁN
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . o K TÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
2
-2
D
8
C
2
1
1
2
-2
C
5
0
2
1
1
2
-2
B
1
4
2
1
1
2
-2
9
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K