Morgunblaðið - 16.07.2018, Side 6

Morgunblaðið - 16.07.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég gef mig hiklaust á tal við hvern sem er ef mig langar til. Svo hef ég bara áhuga á öllu í samfélaginu. Ég fer á rúntinn fram í Svarfaðardal til að sjá hvernig gengur með fram- kvæmdir, heyskap og fleira hjá bændum. Spái í umferð báta og skipa í höfninni og hvernig geng- ur í húsbyggingum og viðhaldi í þéttbýlinu. Og ég vil veg íbúanna og samfélagsins sem mestan þannig að ég er glöð með að fá að vinna að málefnum hérna næstu árin. Ég hef alltaf haft ein- lægan áhuga á fólki og hvað það hefst að,“ segir Katrín Sigurjóns- dóttir sem á dögunum var ráðin sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð. Gefa mig alla í störf fyrir byggðarlagið Borgfirðingurinn Katrín kom norður árið 1986 en þá hafði hún kynnst eiginmanni sínum, Hauki Snorrasyni frá Krossum á Ár- skógsströnd, þegar þau voru samtímis við nám á Bifröst. Sem leiðbeinandi í grunnskólanum og í gegnum félagsstörf kynntist Katrín fjölda fólks á stuttum tíma, leið vel í samfélaginu og festi þar rætur. Hún flutti svo til Dalvíkur 1988 alkomin þangað. Hún var kjörin í bæjarstjórn Dal- víkur árið 1994 og átti þar sæti í tíu ár. Í vor skipuðust mál svo að hún sneri aftur inn á svið sveit- arstjórnarmálanna með því að taka efsta sæti á lista Fram- sóknar- og félagshyggjufólks í Dalvíkurbyggð. „Ég var ekki með neina áætlun um að snúa aftur inn á sviðið hvað þá að verða sveit- arstjóri. Hins vegar leiddi eitt af öðru. Ég var búin að vinna í 24 ár hjá Sölku-Fiskmiðlun, þar af sem framkvæmdastjóri í 14 ár. Þegar ég varð fimmtug ákvað ég að breyta til og í framhaldi af því fór ég í framboð. Þar fann ég aftur gleðina við að stússast í sveitarstjórnarmálunum og fann kraft til að gefa mig alla í störf fyrir byggðarlagið og fólkið allt, hvar í flokki sem það stað stend- ur. Ég er mjög þakklát fyrir að allir framboðslistarnir stóðu að ráðningu minni.“ Dalvíkurbyggð og nærliggj- andi slóðir eru vaxtarsvæði. Á fjölda bæja í Svarfaðardal hafa verið byggð ný fjós á kúabúum og ferðaþjónustufyrirtækin eru mörg. Þá eru á vegum Samherja að hefjast framkvæmdir við nýja fiskvinnslustöð til viðbótar við þá umfangsmiklu starfsemi sem fyr- irtækið er fyrir með í bænum. Fólk fær trú á samfélaginu „Atvinnuuppbygging hér verður að hluta til rakin til þess að samfélagið er ríkt af stórhuga fólki. Og þegar eitthvað nýtt og gott verður til kallar það oft á fleiri verkefni og tækifæri. Dæmi um þetta er Bruggsmiðjan Kaldi sem varð til fyrir nokkrum árum upp úr sprotaverkefni frum- kvöðla á Árskógssandi. Hér eru líka framsæknir bændur á góðum jörðum. Það er eftirspurn eftir því að taka við búskap, kaupa jarðir til búskapar og fjárfesta til framtíðar,“ segir Katrín og held- ur áfram. „Ákvörðun Samherja að byggja upp hátæknifiskiðju á Dalvík skiptir líka sköpum fyrir byggðarlagið. Svona stórfyr- irtæki kallar á þjónustu í kring- um sig á hafnarsvæðinu, í flutn- ingum, þjónustu og fleira. Og fólk fær trú á samfélaginu og treystir sér til að kaupa hús- eignir eða byggja yfir sig. Þar hjálpar líka til að sveitarstjórn ákvað að tímabundið yrðu felld niður gatnagerðargjöld við þegar tilbúnar götur og það munar um slíkt.“ Allt í lag fyrir Fiskidag Áherslumál nýkjörinnar sveitarstjórnar í Dalvíkbyggð eru meðal annars umhverfismálin og málefni Dalbæjar og aldraðra, að sögn Katrínar.„Dalvíkurbyggð er snyrtilegt sveitarfélag og mikill metnaður hjá flestum að hafa fínt í kringum sig. Átaksverkefnið Allt í lag fyrir Fiskidag hefur ýtt við mörgum síðustu árin, fólk vill geta tekið vel á móti gestum. Við þurfum að gera áætlanir um upp- byggingu og viðhald á gönguleið- um og grisjun skógreita svo eitt- hvað sé nefnt. Verkefni sveitar- félagsins verða annars næg og endalaus. Á næstu árum ætlum við að klára að koma fráveitu- málum í viðunandi horf. Þá er alltaf kallað eftir betri íþrótta- aðstöðu og því verða sveitar- félögin að sjálfsögðu að svara,“ segir sveitarstjórinn að síðustu. Mikil uppbygging í atvinnumálum í Dalvík og Svarfaðardal Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitarstjóri Glöð með að fá að vinna að málefnum hérna, segir Katrín Sigurjónsdóttir í Dalvíkurbyggð. Einlægur áhugi á fólki  Katrín Sigurjónsdóttir er fædd 1968. Hún stundaði nám við Samvinnuskólann á Bifröst en flutti til Dalvíkur 1988 þar sem hún starfaði við bókhald og ýmis félagsstörf, m.a. var hún í sveitarstjórn Dalvíkur- byggðar 1994-2004. Frá því ári þar til í vor var hún fram- kvæmdastjóri hjá Sölku- Fiskmiðlun sem flytur út þurrk- aðar fiskafurðir til Nígeríu.  Katrín er gift Hauki Snorra- syni og þau eiga þrjú börn sem búa öll á Dalvík. Barnabörnin eru fjögur. Hver er hún? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikilvægt er að mótuð verði heild- stæð stefna um nýtingu bújarða með það að leiðarljósi að sem blóm- legust byggð haldist um allt land. Þetta segir Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi. Talsverð um- ræða hefur verið síðustu daga um uppkaup útlendinga á jörðum og þar hafa sjónir fólks meðal annars beinst að Vopnafirði, þar sem Þór- unn býr með fjölskyldu sinni. Þar í sveit og víða hef- ur breski millj- arðamæringurinn Jim Ratcliffe keypt nokkrar jarðir og mætti þá fleiri menn og landsvæði nefna. „Vissulega er umhugsunarvert þegar útlending- ar kaupa bújarðir víða um land, í tilgangi sem virðist á stundum vera óljós. Við megum þó ekki líta of þröngt á málin. Víða um land hafa Íslendingar keypt jarðir, girt af, hætt þar búskap og merkt vegslóða sem einkavegi. Þetta er umhugsunarvert því við þurfum að halda í land sem hentar til mat- vælaframleiðslu og sátt þarf að ríkja um nýtingu og umgengni um landið. Þá ber að halda því til haga að þess eru dæmi að menn hafi keypt jarðir en gefið fólki kost á að sitja þar og stunda búskap. Það er já- kvætt,“ segir Þórunn. Fram kom í fréttum í síðustu viku að af um 7.200 bújörðum á Íslandi væri um þriðjungur í eigu fyrir- tækja. Eignarhald og markmið þeirra eigenda er oft óljóst, sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, um þetta í pistli á Facebook-síðu sinni. Hann segir hægt að færa gild rök fyrir því að land utan skipulagðs þéttbýlis skuli vera í eigu þeirra sem þar sannarlega búa. Forgangs- mál sitjandi ríkisstjórnar sé að setja skilyrði við kaup á landi sem taki mið af jákvæðri þróun byggða um land allt. „Ríkið þarf að móta ákveðna stefnu varðandi eignarhald á jörðum eins og ég kallaði eftir í umræðum á Alþingi í vetur,“ segir Þórunn. „Sveitarfélögin [ættu] sömuleiðis að koma að þessum málum og þar þætti mér koma til greina að í aðal- og deiliskipulagi væru ákveðin svæði tekin frá fyrir matvælafram- leiðslu. Það er mikilvægt að nýta landið á fjölbreyttan hátt og að bú- seta haldist. Um leið og nýta má landið til matvælaframleiðslu, kol- efnisbindingar og náttúruverndar er oft meðfram því hægt að nýta það til ferðaþjónustu. Ein tegund nýt- ingar útilokar ekki aðra.“ Nýting landsins tryggi blómlega byggð Þórunn Egilsdóttir  Uppkaup útlendinga á jörðum eru umhugsunarverð  Eigendastefna verði mótuð  Tryggja þarf land til matvælaframleiðslu samkvæmt skipulagi  Íslendingar hafa keypt jarðir, girt af og lokað Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Ekkert lát er á gjafmildi lands- manna í fatagáma og fer slíkum gámum fjölgandi. Að sögn Arnar Ragnarssonar, sviðsstjóra fatasöfn- unar Rauða krossins, er söfnunin í ár á pari við árið í fyrra sem var met- ár. „Það var algjört metár í fyrra, þá tókum við á móti 3.200 tonnum af fötum. Á tveimur árum hafa fata- gjafirnar aukist um 800 tonn.“ Telur Örn að ástandið í samfélaginu sé ein ástæða þessarar aukningar. „Það er mjög gott efnahagsástand í landinu og ekki svo mikil ólga í samfélaginu. Þá hefur umhverfisvitund fólks batnað verulega og okkar kynning- arstarf borið árangur. Svo er söfnunarkerfið alltaf að verða öfl- ugra. Það tók svolítinn tíma að venja fólk við þessa gáma í grenndarstöðv- unum, en það hefur skilað sér í dag.“ Meirihlutinn er fluttur út Í dag eru grenndargámar Rauða krossins um 80 talsins, staðsettir víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Auk þess taka endurvinnslustöðvar Sorpu við fatn- aði. Fötin sem safnast í gámana eru flokkuð og fara annaðhvort í búðir Rauða krossins á Íslandi eða eru send úr landi. „Undanfarið ár hafa 60 tonn farið í búðirnar okkar og það hefur ekki breyst mikið undanfarin ár. Það sem við höfum fengið auka- lega seljum við allt úr landi,“ segir Örn og bætir við að þess utan fari þrír gámar á ári af sérvöldum fötum til Hvíta-Rússlands fyrir hjálpar- starf þar. „Fatasöfnunin er hugsuð sem fjáröflunarverkefni fyrst og fremst og það er töluverð velta í þessu. Föt- in sem við flytjum út fara fyrst til Þýskalands og Hollands til flokk- unarfyrirtækis þar og svo dreifast fötin út um allan heim frá þeim.“ Þá taka Fjölskylduhjálp og Mæðra- styrksnefnd einnig við fötum sem fara aðallega í fatagjafir hérlendis. Talsmaður Hjálpræðishersins segist einnig finna fyrir aukningu í fatasöfnun en Herinn er samtals með 20 fatagáma í Reykjavík og á Akureyri. Í gámana fari í raun meira en starfsfólk Hjálpræðishersins geti flokkað og að sögn talsmannsins er einnig aukning í sölu á notuðum fatnaði í verslunum Hjálpræðishers- ins. Mikil velta í fatasöfnun  Yfir 100 fatagámar út um allt land Morgunblaðið/Styrmir Kári Fatasöfnun Fatagámar Rauða krossins finnast víða um land.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.