Morgunblaðið - 16.07.2018, Page 18

Morgunblaðið - 16.07.2018, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 ✝ Haukur Bergsteinsson var fæddur 5. maí 1936 í Reykjavík. Hann lést 2. júlí 2018. Foreldrar hans voru Margrét Auð- unsdóttir, f. 20. júní 1906, d. 17. mars 2008, og Bergsteinn Kristjónsson, f. 22. mars 1907, d. 20. janúar 1996. Systkini samfeðra eru Sigríður, f. 12. apríl 1941, Hörður, f. 10. október 1942, Krist- ín, f. 1. mars 1945, Áslaug, f. 6. júlí 1948, Ari, f. 6. september 1950. Fyrri eiginkona Hauks var Málfríður Steinsdóttir, f. 14. júní 1943. Dætur þeirra: 1) Margrét, f. 17. apríl 1964, d. 16. október 2010. 2) Agnes, f. 17. apríl 1966, maki Þórir Borg, f. 29.12. 1968. Börn: Sara Borg, f. 26. september 1989, bensínstöð í nokkur ár. Hann lærði tækniteiknun en 1973 hóf hann störf hjá Vegagerð ríkisins sem mælingamaður og starfaði þar yfir 30 ár. Eftir það vann hann hjá Vífilfelli í sjö ár. Á efri árum fór Haukur að stunda ýmiss konar íþróttir, þar á meðal hlaup og má til dæmis nefna að hann hljóp hálft maraþon á áttræð- isaldri. Þá fór hann einnig að ganga á fjöll og gekk á Hvanna- dalshnjúk, yfir Drangajökul og fleiri erfiðar leiðir. Einnig stund- aði hann sund og fór á námskeið í skriðsundi og vann til margra verðlauna á mótum. Sjósundið tók þá hug hans allan og stundaði hann það á hverjum degi í Naut- hólsvík og víðar og taldi það allra meina bót. Hann synti m.a. yfir Skerjafjörðinn og út í Viðey. Hann var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Glóðar í Kópa- vogi og var virkur þátttakandi í þeim félagsskap. Haukur og Ragna bjuggu í Kópavogi síðastliðin 40 ár, þar af lengst í Bræðratungu 4. Útför Hauks verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, 16. júlí 2018, klukkan 13. Haukur Borg, f. 4. apríl 1996. Eigin- kona Hauks er Ragna Guðvarð- ardóttir, f. 17. nóv- ember 1934. Dóttir hennar: 1) María Sigmundsdóttir, f. 11. maí 1959, sam- býlismaður Magnús Sigurðsson, f. 5. des- ember 1957. Börn: Sólveig Unnur, f. 24. janúar 1979, sambýlismaður Sindri Reyr Einarsson, f. 8.1. 1980, barn Ragna María, f. 27. júlí 2017. Árni Þór, f. 26. mars 1983, maki Viktoría Rós, f. 4. apríl 1985, Kjartan Már, f. 16. júlí 1990. Haukur ólst upp í Reykjavík og gekk í Austurbæjarskólann og síðar í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði steinsmíði. Hann var í siglingum í tvö ár á norskum skipum og eftir það vann hann á Elsku afi minn. Nú er samvistum okkar afa á þessari jörð lokið, en andi hans, kærleikur og allt sem hann kenndi mér mun lifa með mér þar til við hittumst aftur hinum megin. Ég var ekki hans hold og blóð, en samt var hann aldrei neitt annað en alvöruafi fyrir mér. Hann var líka sá besti afi sem ég hefði getað eignast og ég fann aldrei fyrir öðru en að hann tæki mér sem hans eigin barna- barni. Á mig leita óteljandi minningar sem eru of margar til að telja upp hér, en ég geymi í huga mínum og hlýja mér við á góðum stundum. Það sem situr efst eru allar skíða- ferðirnar sem við fórum í saman, öll 37 jólin og áramótin sem við áttum saman (öll nema ein), þegar afi bað mig um að hjálpa sér með símann eða tölvuna og öll spjöllin sem við áttum í Bræðratungunni. Afi kenndi mér svo ótalmargt með hans ótrúlega viljastyrk og þrautseigju. Hann kenndi mér að gefast aldrei upp og láta ekkert stoppa sig í að uppfylla drauma sína. Hann kleif upp á jökla, fjöll, synti langar leiðir í sjónum á hverjum degi, hljóp, hjólaði, keppti í sundi og allt þetta gerði hann eftir að hann varð 70 ára. Afi var búinn að berjast við sjúkdóm sinn í mörg ár, en hann tók þá afstöðu að í staðinn fyrir að leggjast í rúmið hélt hann áfram að stunda hreyfingu af miklu kappi og kreista fram allt sem hann gat feng- ið út úr lífinu. Hann sagði sjálfur að hann hefði gert meira eftir 70 ára aldur heldur en fyrir. Það er mín trú að þetta hafi haldið honum gang- andi í gegnum þetta, að missa ekki vonina, breyta mataræðinu og halda sér í góðu líkamlegu formi. Þetta er mikilvæg lexía sem hann kenndi mér og ég veit að þetta hefur snert við fjölda manns sem kynntust afa. Ég er svo þakklát fyrir að afi hafi fengið að kynnast Rögnu Maríu, langafabarni sínu og geta fylgst með henni fyrsta árið hennar. Þrátt fyrir að hann hafi verið feiminn við að halda á henni sá ég hvernig hann lifnaði við þegar hún kom í heim- sókn til hans. Einnig er ég þakklát fyrir að hann hafi náð að kynnast Sindra mínum sem nú er kallaður „meðhjálpin“, alveg eins og afi var kallaður „meðhjálpin“ hennar ömmu þegar þau kynntust. Ragna María er ekki blóðdóttir Sindra, en afi sýndi mér og sannaði að hann getur alveg orðið alvörupabbi fyrir henni, rétt eins og afi hefur alltaf verið alvöru afi fyrir mér. Ég veit að þau hefðu bæði viljað fá meiri tíma með þér. Það verður sennilega erfitt að venjast því að hafa hann ekki með okkur þegar fjölskyldan kemur saman. En ég veit að sálin er komin inn í eilífðina, þangað sem við hitt- umst öll aftur eftir þetta jarðarlíf. Hann er nú loksins búinn að sam- einast Möggu dóttur sinni sem ég veit að hann saknaði mikið. Við sem eftir erum á jörðinni getum haldið minningu hans á lofti og minnt sjálf okkur og aðra á það sem hann skildi eftir sig, því ég veit að hann var fyr- irmynd fyrir marga. Hvíl í friði elsku afi. Sólveig Unnur. Hann afi var alltaf mjög virkur í að taka okkur systkinin með í alls kyns hluti eins og skíði, sund, upp í bústað og fjallatorfærur á fólksbíl. Það var alltaf gaman og ævintýra- samt. Sumarbústaðarferðirnar í Vegagerðarbústaðinn voru ávallt fullar af eftirminnilegum pottaferð- um, „actionary“ og berjatínslu sem hann stundaði af miklum krafti fyrir Haukur Bergsteinsson ✝ Þorsteinn Leifs-son var fæddur á Akureyri 2. ágúst 1925. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 30. júní 2018. Þorsteinn var sonur Leifs Krist- jánssonar, f. á Hall- gilsstöðum í Fnjóskadal, S-Þing., 1888, d. 1956, og Sigurbjargar Þorsteinsdóttur, f. á Flugumýri, Akrahr., Skag., 1901, d. 1975. Systkini Þorsteins eru, Kristjana S., f. 1924, d. 2015; Þórir, f. 1926, d. 1999; og Þröstur S., f. 1940. Eiginkona Þorsteins er Hrafn- hildur Baldvinsdóttir, f. 1930, á Akureyri. Foreldrar hennar voru Baldvin Árnason, f. 1902 á Bjargi, Glæsibæjarhreppi, d. 1960, og Sig- urlína Guðmundsdóttir, f. 1899 í Arnarnesi í Arnarneshreppi, d. 1976. Börn Þorsteins og Hrafn- hildar eru: 1) Leifur Kristján, f. 1957. Kona hans er María Þórð- ardóttir, f. 1959. Börn þeirra eru: Helgi Þór, kona hans er Kristína Arnórsdóttir. Synir þeirra eru Arnleifur Breki og Patrekur Elm- ar; Heiðar Freyr; og Eydís Helena, í sambandi með Elvari Reykjalín. 2) Sigurbjörg, f. 1959. Maður Sigþórsson. 5) Sólveig Auður, f. 1963, maður hennar er Tryggvi Gunnarsson, f. 1965. Synir þeirra eru: Þorsteinn Þór, sambýliskona hans er Díana Arnardóttir. Börn þeirra eru: Alexander Þór og Júl- íana Rós; Björn Torfi; dætur Tryggva eru Tinna Dögg, sam- býlismaður hennar er Óskar Hróð- bjartsson; Hildur Ýr, sambýlis- maður hennar er Sigurður Halldórsson, börn hans eru Gunn- ar og Hrafnhildur. 6) Sigurlína Arna, f. 1963, maður hennar er Bjarni Hallgrímsson, f. 1961. Börn þeirra eru: Sólrún Björg, sam- býlismaður hennar er Stefán Jak- obsson; Bjarney, sambýlismaður hennar er Bjarni Kristinsson; Birgir, sambýliskona hans er Sig- rún Helgadóttir, og Kara Marín. 7) Sigríður Þ., f. 1966, maður hennar er Bjarni Bjarnason, f. 1965. Börn þeirra eru: Þórir, sambýliskona hans er Erla Þórðardóttir. Dóttir þeirra er Þorbjörg L.; Ingunn, sambýlismaður hennar er Magnús Sævarsson. Dóttir hans er Frið- mey K. Þorsteinn ólst upp á Akureyri. Hann vann hin ýmsu störf, t.d. á BSA, í Laxárvirkjun, kaupavinnu í Borgarfirði, hjá Rafveitunni en sem aðalstarf bifreiðarstjóri á Sendibílastöðinni sf. Hann var einn af stofnendum Umferð- armiðstöðvarinnar hf. 1969. Útför Þorsteins verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 16. júlí 2018, klukkan 13.30. hennar er Haraldur Guðmundsson, f. 1959. Börn þeirra eru: Guðmundur Helgi, sambýliskona hans er Vala Krist- insdóttir. Sonur þeirra er Haraldur Nökkvi; Róbert Smári, sambýliskona hans er Karen E. Synir þeirra eru Elmar Þór og óskírð- ur Róbertsson; Sólveig Diljá, sam- býlismaður hennar er Matthías Tómasson. 3) Jón Rúnar, f. 1960, kona hans er Ásrún E. Guðmunds- dóttir, f. 1960. Börn þeirra eru: Guðsteinn, sambýliskona hans er María Björgvinsdóttir. Börn þeirra eru Logi Tristan, Christian Nökkvi og Ísabella Rut: Hrafnhild- ur, maður hennar er Gunnar Harðarson. Synir þeirra eru Óðinn og Úlfur Már; Berglind, sambýlis- maður hennar er Ágúst S. Að- alsteinsson. Dóttir þeirra er Selma Rún, f. 2014, d. 2017. 4) Sigrún, f. 1962, maður hennar er Ragnar Sverrisson, f. 1961. Dætur þeirra eru: Ólöf Ýr, maður hennar er Ax- el Sigurðsson. Dóttir þeirra er Katla Sólveig; Rakel Rún, sam- býlismaður hennar er Rögnvaldur Gunnarsson og Linda Rós, sam- býlismaður hennar er Þórarinn Lífsganga okkar virðist oft æði stutt og líða hratt að margra mati. Það fannst a.m.k. honum föður okkar, honum Steina Leifs. Hann var ungur í anda og átti eftir að gera svo ótal margt, ekki nema 92, alveg að verða 93. Hann átti eftir að setja niður blóm heima í garði með mömmu, og að ferðast um landið og til útlanda til að sjá náttúrufegurð þessa heims. Lesa fréttirnar og agnúast út í pólitíkina. Hann hlust- að mikið á tónlist og söng mikið með alls konar lögum. Pabbi og mamma voru samt búin að fara til útlanda og ferðast mikið um Ísland. Þau fóru mikið í tjaldútilegur seinni árin, gengu þá mikið, veiddu á stöng, stoppuðu hjá skemmtilegu fólki og pabbi var á níræðisaldri þegar þau fóru í sína síðustu úti- legu. Þau fóru mikið í berjamó og að tína fjallagrös upp um fjöll og firnindi. Þau voru samt heimakær og allan ársins hring voru Álfa- byggðin og Birkilundurinn oft eins og hótel fyrir vini og ættingja. Allt- af tóku þau fagnandi á móti fólki með gistingu og bakkelsi og þótti fólki gott að koma þangað. Pabbi var bifreiðastjóri og flutti vörur og fólk um allt land, stundum stutta túra, aðra langa. Hann keyrði m.a. hljómsveitina „Hver“ oft og hélt mikið upp á þessa skemmtilegu og hressu krakka sem í henni voru. Hann keyrði í alla vega veðri og og oft lenti hann í óveðri og hríðarbyljum en alltaf kom hann vörum og farþegum heim heilu og höldnu. Hann vissi því vel hvernig var að fara á milli staða, hvort sem það var langt eða stutt, því að hann kvaddi okkur ætíð, „farið varlega“. Og nú segjum við þetta við okkar börn og barna- börn „því aldrei er of varlega farið“ eins og hann sagði líka svo oft. Hann og mamma hjálpuðu okk- ur þegar á þurfti að halda, þau voru atorkusöm, byggðu sín hús með fullri vinnu og mörgum börnum. Þau héldu heimili alveg fram að síð- astliðnu hausti. Þá fór pabbi á Kristnes og mamma á Hlíð og end- uðu þau svo sína samleið í góðu yf- irlæti hjá góðu fólki á Hlíð. Brátt lýkur sumri og lífinu um leið. Lokin er gangan sem var bein og greið. Sú ganga, hún léði þér langa törn, sú ganga, hún færði þér konu og börn er muna þig um ókomin ár. Elsku pabbi, tengdó, afi og langafi, hvíl í friði, hinsta kveðja, þín börn, Arna, Leifur, Sigurbjörg, Rúnar og Sigrún. Pabbi! Takk fyrir fylgdina í tæp fimm- tíu og fimm ár. Takk fyrir að passa og hugsa um strákinn okkar, hann Þorstein, nafna þinn, með ást og umhyggju. Takk fyrir öll ferðalög- in okkar saman. Það var mesta gleði þín að keyra um og sjá fallega landið þitt. Takk fyrir síðustu ferð- ina okkar saman með mömmu og Örnu systur á Siglufjörð, fjórum sólarhringum áður en þú kvaddir. Þetta var dásemdarferð, þú söngst og trallaðir, fórnaðir höndum til himins yfir því að sjá landið þitt. Þú vissir að þetta yrði síðasta skiptið, þú gast veifað til Þorra á skipinu í kveðjuskyni og knúsað fjölskyld- una hans. Eftir þessa ferð var eins og þú sættir þig við að kveðja og gerðir það á laugardegi. Þú spurðir okkur alltaf hvort við værum að taka okkur frí frá vinnunni þegar við komum til ykkar mömmu, það væri algjör óþarfi. Þú sást til þess að við þurftum ekki frí í síðustu heimsókninni til þín. Takk fyrir mig, takk fyrir okk- ur, pabbi minn. Auður og fjölskylda. Nú er komið að ferðalokum, elsku afi. Stundirnar sem við áttum sam- an lifa í minningunni, ferðirnar á sendibílnum þegar ég var lítill, sundferðir með þér og ömmu, berja- og fjallagrasatínsla, föndur og smíði í bílskúrnum, þegar við vorum að mála saman og spila saman á orgelið í Birkilundinum og spjalla um allt mögulegt. Ræð- an sem þú hélst í brúðkaupinu okkar Kristínu, ógleymanleg! Það eru svo margar minningar sem hafa yljað mér um hjartarætur og munu gera áfram. Maður kvaddi þig aldrei nema með kossi á kinn sama hvernig staðan var og það situr alltaf í mér ljóðlína sem amma samdi á einn afmælisdag- inn þegar ég var lítill. Oft hafðirðu á þig skónum skellt, Þorsteinn Leifsson Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, ÁSA GUÐLAUG STEFÁNSDÓTTIR, Mýrum II, Hrútafirði, andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga 9. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Melstaðarkirkju föstudaginn 20. júlí klukkan 14. Böðvar Sigvaldi Böðvarsson ✝ Guðjón Gunn-arsson fæddist að Tröllatungu í Strandasýslu 17. júní 1922. Hann lést 24. júní 2018. Foreldrar hans voru Sólrún Guð- jónsdóttir, f. 24. febrúar 1899, d. 21. janúar 1985, og Gunnar Jónsson, f. 18. maí 1896, d. 25. febrúar 1979. Guðjón var annar elsti af 11 systkinum. Þau eru Ólafur, f. 8.5. 1921, d. Guðjón, f. 17.6. 1922, d. Skúli, f. 27.5. 1924, d. Jón Halldór, f. 1.9. 1927. Steinn, f. 13.2. 1929, d. Sigrún f. 4.3. 1931. Elín, f. 15.3. 1933, d. Sigfús, f. 21.9. 1937. Halldór Dalkvist, f. 30.12. 1936. Halldór, f. 26.6. 1943, og Guðjón Dalkv- ist, f. 5.7. 1944. Eiginkona Guðjóns var Erna B. Jensdóttir, f. 1.2. 1928, d. 16.6. 2013, þau giftu sig 17. júní 1947. Guðjón og Erna eignuðust fimm börn á lífi en þrjú andvana fædd. Börn þeirra eru Guðjón R. Guðjónsson. Gunnar Guð- jónsson. Sólrún Guðjónsdóttir. Er- lingur Þ. Guð- jónsson. Snorri G. Guðjónsson. Guðjón fæddist að Tröllatungu í Strandasýslu en flutti þaðan að Hlíð í Þorskafirði tveggja ára gamall. Síðan fluttist hann að Gilsfjarðarmúla með foreldrum sínum 1932, var þar til tvítugs, fór þá á vertíð á Akranes, síðan til Reykjavíkur 1945. Gerðist þar leigubílstjóri og kynntist Ernu í því starfi þar sem hún flutti þvott með leigu- bílnum sem Guðjón keyrði. Og svo voru öll böllin sem þau döns- uðu á sem var mikið áhugamál ásamt hestamennsku. Þau Guð- jón og Erna fluttu að Tjörn í Biskupstungum 1949 og bjuggu þar með blandaðan búskap. Guðjón var með skólaakstur í 31 ár. Útför Guðjóns fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 16. júlí 2018, kl. 14. Hann Guðjón á Tjörn í Bisk- upstungum er látinn. Hann varð 96 ára 17. júní sl. og ég hafði ekki átt von á því, að hún Elli kerling næði til hans fyrr en um tírætt. Ástæðan var sú, að ég man ekki eftir honum öðruvísi en teinrétt- um, kvikum í hreyfingu, brosmild- um, fullum af lífsorku og ungleg- um í allri framgöngu og útliti. Guðjón var kvæntur frænku minni, Ernu Jensdóttur. Þau voru sköpuð hvort fyrir annað, þótt ólík væru að ýmsu leyti. Þegar þau fullorðin tóku þá skynsamlegu ákvörðun að hætta búskap og leggja hann í hendur tveggja sona sinna, reistu þau sér þægilegt hús skammt frá Tjarn- arbænum. Þar áttu þau gott líf í 26 ár og bjuggu við hesta og nokkrar ær. Hestar voru þeirra líf og yndi og urðu hestaferðir margar um landið þvert og endilangt. Þau stunduðu félagslíf af miklum áhuga og m.a. söng Guðjón í Skál- holtskórnum í mörg ár. Hann tók þátt í pólitísku starfi; var gegn- heill framsóknarmaður og sótti landsfundi flokksins. Auk búskap- ar hafði Guðjón það að aukastarfi að aka skólabíl í 31 ár; áfallalaust. Ég er viss um, að þessi góðu hjón lifðu lífinu eins og það verður best gert til að öðlast þá hamingju og gleði, sem við flest leitum eftir. Það varð Guðjóni mikið áfall, þeg- ar Erna lést árið 2013. Þau höfðu þá verið gift í 65 ár og það varð tómlegt í litla húsinu, þar sem Erna hafði verið manni sínum styrkur í daglegu lífi og þau hjón samhent í hverju verki. Heimili þeirra var opið öllum ættingjum og vinum og þar var gestkvæmt. Erna og Guðjón voru gott fólk og komu þannig heiminum að miklu gagni. Þau eignuðust fjóra drengi og eina stúlku, þau erjuðu jörðina, fóru vel með allar skepnur og gáfu mikið af sér til skyldra og óskyldra. Þau voru auðug af flestu því, sem við teljum gefa lífinu raunverulegt gildi. Ég kveð Guðjón með virðingu og þökk fyrir samverustundir, sem hefðu mátt vera fleiri. Hann var fyrirmyndarmaður í lífi og starfi. Ég flyt ættingjum hans samúðarkveðjur. Árni Gunnarsson. Okkur Torfastaðahjónum þykir mjög miður að vera ekki heima þegar góður vinur og nágranni legst hinstu hvílu við hlið Ernu eiginkonu sinnar hér á Torfastöð- um. Guðjón og Erna voru afbragðs- grannar. Þau birtust oft hér á Torfastöðum ríðandi og við nutum þess að eiga samvistir við þau. Mikill áhugi á hrossum og um- ræða um hrossin var mjög skemmtileg. Sameiginlegur áhugi okkar voru hross og ferðalög um fjöll og firnindi á hrossum. Guðjón ók skólabíl um langan tíma og börnum okkar þótti gott þegar hann þjónustaði þau. Hann var hlýr við þau og tók öllum áskorunum og verkefnum af miklu æðruleysi. Aldrei bar skugga á vináttuna og velvildina og erum við mjög þakklát fyrir að hafa fengið að njóta dásamlegra nágranna okkar á Tjörn frá því að við fluttum í Biskupstungurnar 1983 eða í 35 ár. F.h. Torfastaðafjölskyldunnar, Drífa Kristjánsdóttir, Torfastöðum. Guðjón Gunnarsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.