Morgunblaðið - 16.07.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.07.2018, Qupperneq 19
sinn daglega morgundrykk. Afi var svo sannarlega „besti“ leikarinn í „actionary“ og beið ég alltaf spenntur eftir honum að leika og var oftast byrjaður að hlæja áður en það gerðist. Man ég eftir mörg- um ferðunum í Bláfjöll í hinum ýmsu færum. Alltaf var hann hinn rólegasti sama hversu hart blés og ég vissi að það væri alltaf hægt að reiða sig á afa. Án efa bestu mál- tíðir ævinnar voru svo heita kakóið og eggjasamlokurnar hennar ömmu í bílnum, kaldur og svangur eftir brekkurnar. Hann lét aldrei neitt stoppa sig. Meira að segja eftir sum óhöppin þá hélt hann áfram þar til næsta tók við. Þá komu hlaupin, fjallgöng- urnar, chi gong, thai chi, jóga, hug- leiðsla, ringo og svo þekkir alþjóð nánast sjósundið. Þar fann hann fyrir mætti sjávarins og kuldans og hvernig hann eykur vellíðan og góða heilsu. Alla tíð hef ég samt munað eftir afa veltandi sér upp úr snjónum og baðandi sig í vatni af ýmsu hitastigi, sem hann jú mældi áður en hann fór ofan í. Að hafa haft svona fyrirmynd í lífinu hefur verið drifkraftur að mörgu í mínu lífi, allt frá snjóbretti til kuldabaða og í að rúlla saman þumlunum. Oft hef ég hugsað til afa þegar hugurinn er við það að gefast upp. Þá hef ég verið án af- sakana því ég veit að hann syndir í ísköldum sjónum nánast daglega sem hann mun nú gera áfram í gegnum þá sem hann hefur hvatt til þess. Nú kveðjum við þessa miklu hetju með gleði og söknuð í hjarta. Árni Þór Ragnarsson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 ✝ HallfríðurSveinbjörg Brynjólfsdóttir frá Hrísey fæddist 4. mars 1922. Hún lést að Hrafnistu Laugarási 3. júlí. Foreldrar henn- ar voru Brynjólfur Jóhannesson, út- gerðarmaður frá Hrísey, f. 8.11. 1891, d. 21.1. 1977, og Sigurveig Svein- björnsdóttir frá Hillum á Ár- skógsströnd, f. 20.2. 1886, d. 26.8. 1950. Hallfríður giftist Markúsi Guðmundssyni skipstjóra, sem lést 18.1.2009. Þau eignuðust sex börn, Guðmund, f. 1946, sem lést 20.10. 1994, Unni Bisgaard, f. 1947, sem búsett er í Danmörku, Brynj- ólf, f. 1949, Jör- und, f. 1951, og Markús Svein og Erlend, f. 1957. Útför Hallfríðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, mánudaginn 16. júlí 2018, kl. 13. Elsku amma. Ég bjó við þau forréttindi að fá að hanga í svuntunni þinni mín uppvaxtarár. Þú áttir þolinmótt eyra og hlýjan faðm sem var mér alltaf opinn. Amma mín, þú varst stórkostleg kona og ein af mínum sterku fyrirmyndum. Ég ber nafnið þitt og þykir afar vænt um það. Þú varst mikill forkur og þér féll aldrei verk úr hendi. Það var svo notalegt í kringum þig. Þú varst líka afar glæsileg kona og alltaf vel til höfð, alger skvísa eins og við sögðum oft. Sterkur persónuleiki, ákveðin en umfram allt umhyggjusöm og falleg manneskja. Amma og afi Markús, ég hefði ekki getað óskað mér betri stað til að læra til lífs en hjá ykkur. Skynsemin í fyrirrúmi, skipulag á hlutunum og aldrei heyrði ég ykkur kvarta yfir einu né neinu, jú nema kannski yfir pólitíkinni. Hjá ykkur lærði ég að farsælast væri að hugsa í verkefnum og lausnum fremur en vandamálum. Það var mér gott veganesti út í lífið. Þú og afi voruð mjög samrýnd og báruð mikla virðingu hvort fyrir öðru, bæði í lífi og starfi. Þú sást um stórt heimilið og börnin sex af miklum myndugleika á meðan afi var fjarri heimilinu að draga björg í bú og vinna til af- reka á sjó. Síðar, þegar afi hætti sjómennsku, var dásamlegt að fylgjast með hvað þið eltust vel saman. Þegar ég fæddist bjugguð þið á Laugarásveginum sem í minn- ingunni er sem ævintýrahöll og þar var gaman að vera. Ég og for- eldrar mínir bjuggum á jarðhæð- inni. Ægistór bogastigi sem var paradís að leika sér í, ótal her- bergi og skúmaskot til að fela sig og höllin alveg upplögð til bolta- leikja – að mér fannst – margt var brallað og sumt brotið, þótt boltinn hafi iðulega verið upp- vafðir sokkar. Á unglingsárum mínum voruð þið flutt á Mark- arflötina og þar voru heimsmálin rædd, ekkert dregið undan sem betur fer, mér kennt að tefla, spila og leggja kapla. Þið voruð mikið spilafólk og var leikfræðin mikilvæg. Hvert útspil var greint í þaula og ég gerði mér fljótt grein fyrir því að rangt útspil var ekki í boði, telja trompin og lesa leikinn takk. Annað gott vega- nesti út í lífið, þótt af mörgu megi taka. Við afi spiluðum krikket úti í garði og inni beið dásamlega djöflakakan þín og kaldasta mjólk í heimi. Ég naut dyggrar aðstoðar þinnar við búgerð úti í garði, hugað að hverju smáatriði og búið okkar varð hið glæsileg- asta. Á vorin fórum við í kartöflu- garðinn og seinna er ég stofnaði til heimilis, mættuð þið klár með skófluna og gaffalinn til að stinga upp garð með mér. Þið höfðuð alltaf mikinn áhuga á því sem ég var að fást við, lögð- uð áherslu á að ég temdi mér sjálfstæði og dugnað. Hvöttuð mig alla tíð að elta draumana og að mér væru allir vegir færir. Það var alltaf gott að koma og drekka kaffi með þér og afa, á meðan hann lifði, í Grafarvoginum þar sem við gátum setið og skrafað um menn og málefni endalaust. Takk, amma mín, fyrir að auðga líf mitt og gera mig að betri manneskju. Nú ertu loks komin til afa, hann bíður eflaust eftir þér við grillið og með golf- settið klárt. Góða ferð amma mín. Þú lifir í hjarta mínu. Hallfríður Brynjólfsdóttir Elsku Fríða amma okkar kvaddi þessa tilveru hinn 3. júlí 2018. Hún átti langt og gott líf, eins og hún sagði svo oft sjálf, en hún fagnaði 96 ára afmæli sínu hinn 4. mars sl. Eiginmaður hennar, Markús Guðmundsson, kvaddi 18. janúar 2009 en alla tíð áttu þau fallegt og ástríkt sam- band og voru okkur hinum góð fyrirmynd. Amma var algjör kjarnakona. Hún átti sex börn og mann sem var á sjó en hún hélt heimilinu gangandi með glæsibrag. Þegar hún var um áttrætt hélt hún heimili sínu enn gangandi og ekki nóg með það heldur þurfti alltaf nýbökuð djöflaterta með þeytt- um rjóma að vera á boðstólnum og jafnvel heimabakað vínar- brauð líka. Þegar maður hugsar um „fína frú“ þá var amma skóla- bókardæmi um slíka. Hún var alltaf svo smart klædd, í pilsum og nælonsokkabuxum, blússum og með skartgripi og ekki má gleyma vikulegu lagningunni svo hárið væri fínt. Naglalakk og augabrúnalitur var líka nauðsyn- legt. Fegurðin geislaði af henni, jafnt innan frá sem utan. Sama hversu erfiðan dag hún átti, sama hvernig henni leið og sama hversu ótilbúin hún var í daginn þá vaknaði hún snemma, klæddi sig í sitt fínasta púss, gerði hárið fínt og brosti. Allt frá því hún var ung og þar til hún kvaddi. Hún kenndi okkur að sama hversu erf- itt maður hefur það þá er alltaf svo mikilvægt að hugsa vel um sjálfan sig, halda höfðinu hátt og brosa. Amma missti son sinn, sem ekkert foreldri á að þurfa að ganga í gegnum, en eins og henni var lagið minntist hún hans alltaf með bros á vör og hlýju í hjarta. Hún hikaði aldrei við að sýna fólkinu sínu væntumþykju þó að hún ætti nú orðið ansi marga að, ef öll börn, barnabörn og barna- barnabörn eru talin með. Við vorum þeirrar gæfu að- njótandi að hafa átt ótrúlega margar samverstundir með henni og afa heitnum í gegnum árin. Öll matarboðin, sumarbú- staðarferðirnar, utanlandsferð- irnar, spilastundirnar og svo margt fleira. Við áttum ávallt ná- ið og gott samband. Amma kall- aði okkur alla jafna „stelpurnar sínar“ og sýndi langar leiðir hversu stolt hún væri af okkur með því að deila því með nær- stöddum að hún ætti nú svolítið í okkur. Það mikilvægasta sem amma kenndi okkur var að vera góður við fólkið í kringum sig. Eins ein- falt og það hljómar þá þarf stund- um að minna sig á það. Amma skildi aldrei hvers vegna fólk var alltaf að rífast, hvers vegna það leysti ekki bara málin og hélt áfram lífinu. Hún lagði svo mikla áherslu á að rífast ekki yfir smá- atriðum heldur ræða málin, leysa úr þeim og vera góð hvert við annað. Amma var líka dugleg að hrósa fólki. Hún hrósaði manni alltaf af mikilli einlægni og jafn- vel þegar maður átti minnst von á því. Okkur finnst það vera eitt af því sem hún skilur hvað mest eft- ir sig hjá okkur. Fyrir það erum við gríðarlega þakklátar. Elsku amma, takk fyrir allt. Takk fyrir að vera sú amma sem alla dreymir um að eiga. Við munum minnast þín um alla tíð. Stelpurnar þínar, Fjóla Dís, Sandra Mjöll og Sóley Lind Markúsdætur. Hallfríður Brynjólfsdóttir  Fleiri minningargreinar um Pálínu Sigurjóns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Pálína Þ.Sig-urjónsdóttir fæddist 17. júní 1931. Hún andaðist 4. júlí 2018. Foreldrar henn- ar voru Helga Finnsdóttir, f. á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum 28.9. 1895, d. 25.4. 1989, húsmóðir og saumakona, og Sig- urjón Pálsson, f. 12.8. 1896, d. 15.8. 1975, sjómaður og vél- gæslumaður í Keflavík, síðar starfsmaður Reykjavíkur- borgar. Systkini hennar voru Finnur, f. 14.11. 1919, d. 18.8. 1997, Sigurjón Helgi, f. 14.11. 1919, d. 24.12. 1936, Henný Dagný, f. 29.4. 1922, d. 27.1. 2005, Ólöf Ingibjörg, f. 4.10. 1923, d. 28.9. 1994, Jóhanna Kristín, f. 31.5. 1935, d. 21.8. 2005. Pálína giftist 16. júní 1954 Sigmundi Ragnari Helgasyni, f. 7.12. 1927, d. 2.11. 2008, skrif- stofumanni. Börn þeirra eru: 1) Ingibjörg hjúkrunarfræðingur, f. 11.1. 1955, m. Valdemar Páls- versitet 1968-1969 og nám í kennslu- og uppeldisfræðum við Kennaraháskóla Íslands 1976. Þá sótti Pálína ýmis námskeið á vegum Hjúkrunarfélags Íslands og norrænna samtaka hjúkr- unarfræðinga. Eftir nám var Pálína hjúkrunarkona á Klepps- spítalanum 1953-54 og frá 1961, starfaði þá á Hvítabandinu, starfaði síðan á Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur 1963, lengst af á barnadeild, þar til hún varð hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu- stöðvarinnar í Efra-Breiðholt- inu 1978. Hún lét af störfum fyr- ir aldurs sakir árið 1997. Pálína var fulltrúi Hjúkrunarfélags Ís- lands í samvinnu norrænna hjúkrunarfræðinga um árabil. Einnig sat hún alþjóðaþing hjúkrunarfræðinga í Seoul í Suður-Kóreu 1989. Hún gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Hjúkrunarfélag Íslands, var m.a. varaformaður félagsins og formaður þess 1986-88. Hún var fulltrúi heilbrigðisráðuneyt- isins í skólanefnd Nýja hjúkr- unarskólans og sat í stjórn Holl- ustuverndar ríkisins. Pálína var formaður Samtaka lífeyrisþega innan Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga. Hún var virkur félagi í Oddfellow-reglunni. Útför Pálinu fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 16. júlí 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. son, f. 2.11. 1950, börn Sigmundur Helgi, f. 25.4. 1986 og Inger Helga, f. 4.1. 1988, m. Lasse Elkjær, f. 3.6. 1987, þau eiga tvö börn. 2) Helga ráðgjafi, f. 11.4. 1956, m. Jó- hann K. Torfason f. 12.4. 1954, börn: a) Torfi, f. 11.2. 1977, maki. Eyrún H. Hlynsdóttir, f. 19.10. 1978, börn Birta María, Sigríður Kroknes og Jóhann Kroknes, b) Pálína, f. 29.1. 1981, m. Jón Steinar Guð- mundsson, f. 18.6. 1977, dóttir Hildur Bryndís, Kristinn Hallur, Helga Sigríður, Hanna Björg, c) Matthías Kroknes, f. 8.7. 1994. 3) Helgi Kristinn læknir, f. 15.6. 1967, m. Kristín Örnólfsdóttir, f. 2.1. 1968, börn Sigmundur Ragnar, f. 24.9. 1993, Málfríður Arna, f. 6.6. 1996, Kjartan Daní- el, f. 14.3. 2001. Pálína ólst upp í Reykjavík. Pálína lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands 1953, stundaði framhaldsnám í heilsu- gæsluhjúkrun við Århus Uni- Elsku mamma mín er látin og því set ég á blað þessi kveðjuorð. Það sem mér þótti erfitt að sleppa hendinni þinni kvöldið sem ég kvaddi þig, það var hönd- in sem leiddi mig, strauk mér um kinn, þerraði tárin og leiðbeindi mér. Auðvitað væri hægt að telja upp mörg minningabrot en það bíður betri tíma. Ég mun ylja mér við minninguna þegar ég sótti þig suður í fyrra og þú fékkst hvíldarinnlögn á Heil- brigðisstofnun Vestfjarða. Þá var nú talað alla leiðina og hleg- ið. Þú sagðir við mig: „Manstu eftir því þegar við fórum upp á Þingvelli á Lýðveldishátíðina og það rigndi svo mikið?“ Ég þurfti nú að hugsa mig um og sagði svo: „Mamma mín, ég var ekki fædd 1944 og það sem við hlóg- um og ég þurfti að þerra tárin. Það var alltaf stutt í hláturinn hjá okkur báðum og yndislegt að fá að hafa þig svona nálægt okk- ur Jóa og Pálínu og fjölskyldu hennar, langömmubörnin fengu að kynnast þér og fannst alltaf gaman þegar þú komst til þeirra. Ég gleymi því heldur ekki þegar þú sagðir við mig um daginn hvað allir væru góðir við þig hérna á Eyri og ég sagði: „Já, mamma mín, það er alveg ynd- islegt.“ Mamma horfði á mig og sagði: „Ætlar þú ekki að fara að sækja um?“ „Nei, ekki alveg strax,“ sagði ég, þá sagði hún: „Helga, veistu að það er bið- listi?“ Mamma var góð eiginkona og móðir, amma og langamma og því er hennar sárt saknað. Að lokum kveð ég elskulega móður mína með þessum ljóðlínum og kveð hana með sömu orðum og þau hinstu orð sem hún kvaddi mig með: „Bless elskan.“ Ég bið góðan guð að taka á móti henni og blessa. Hví drúpir laufið á grænni grein? Hví grætur lindin og stynur hljótt? Hví glampa daggir á gráum stein, sem grúfi yfir dalnum þögul nótt? (Hulda) Helga Sigmundsdóttir. Við systkinin og fjölskyldur okkar kveðjum ömmu/langömmu í dag. Fjarlægðin milli þeirra í Mosfellssveit og okkar á Ísafirði hafði áhrif en kannski eru heim- sóknirnar og minningarnar á uppvaxtarárunum sterkari fyrir vikið. Við eigum í huga okkar margar minningar um fjöruga ömmu. Við Torfi munum eftir ömmu í Arnartanga 18, sem var hjúkrunarforstjóri og svo for- maður Félags hjúkrunarfræð- inga. Sem spilaði golf og vann bikara og átti fallegasta garðinn ásamt afa. Ömmu sem málaði sig í speglinum í Saabinum þegar afi skutlaði henni í vinnuna. Ömmu sem kallaði á sjónvarpið og sagði nokkur velvalin orð þegar kapp- leikir voru. Ömmu sem hafði alla tíð stríðnisglampa í augunum og dillandi hlátur. Matthías sem er yngri kemur í seinna hollinu af barnabörnunum og á fleiri minn- ingar um ömmu með þeim Sig- mundi og Málfríði og svo síðar þegar hann bjó hjá ömmu í 1 ár á menntaskólaárunum. Öll munum við húmorinn og kaldhæðnina í ömmu sem fór sérstaklega á flug í skemmtilegu sambandi hennar við tengdason sinn og pabba okkar. Amma og mamma voru afar nánar alla tíð og falleg vin- átta þeirra á milli og síðastliðið ár okkur öllum hér fyrir vestan mikilvægt. Mamma okkar kveð- ur því bæði móður og sína bestu vinkonu í dag og við kveðjum með þakklæti skemmtilega ömmu. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Guð geymi þig, amma/ langamma. Torfi, Eyrún og börn, Pál- ína, Jón Steinar og börn, Matthías og Birna. Pálína Sigurjónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Hauk Bergsteinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. en skreiðst til að geta á kinnina smellt, kossi í kveðjuskyni. (HB) Það er erfitt að kveðja hinstu kveðju, en það er líka gott að trúa því að nú ertu kominn á betri stað, verkjalaus og líður vel. Það er mikið ríkidæmi sem þú hefur byggt upp og þú getur horft stolt- ur yfir lífsverkið meðan þú bíður eftir ömmu og undirbýrð það að taka vel á móti henni þar sem þú ert núna. Þín verður sárt saknað en í hjarta lifir minningin og öll góðu ráðin sem þú hefur gefið í gegnum tíðina. Ég minnist afa fyrst og fremst fyrir það hversu óbilandi trú hann hafði á mér, studdi í einu og öllu og hafði jafnframt stöðugar áhyggjur af því að allt færi vel og öllum gengi vel. „Farðu gætilega“ eru orð sem munu alltaf hljóma innra með mér, orð sem ég lifi eftir. Takk fyrir allt, elsku afi minn. Ég læt fylgja með ljóð sem amma samdi til þín, við lag sem ég samdi á orgelið í Birkilundinum þegar þú varst sjötugur. Þetta er lag og texti sem okkur báðum þótti mjög vænt um og við vorum svo heppin stórfjölskyldan að ná að syngja fyrir þig aftur 20 árum síðar þegar þú varðst níræður. Afi þú átt afmæli í dag. Við óskum þess að allt þér gangi í hag. Við elskum þig öll og þú átt þetta lag, það samið var bara handa þér. Við þökkum þér allt, þínar bænir og ást, sem aldrei í lífinu brást. (HB) Bestu kveðjur, Helgi Þór. Elsku gamli. Ég verð þér alltaf þakklát hvað þú bauðst mig velkomna í fjöl- skylduna strax frá fyrsta degi og ég varð strax hluti af stóru fjöl- skyldunni þinni. Ég var alltaf vel- komin í Birkilundinn til ykkar Hrafnhildar, þrátt fyrir gamal- mennadjókinn sem þér fannst nú varla eiga við þig og þú fussaðir yfir en brostir nú samt svo að glitti í einu tönnina sem eftir var. Guð geymi þig, elsku Steini. Kveðja, Kristína Björk. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR SVEINSSON, Eyrargötu 3a, Eyrarbakka, lést á Ljósheimum þriðjudaginn 10. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum innilega samúð og hlýhug. Brynjar Birgisson Ólafía Helga Þórðardóttir Jón G. Birgisson Oddný S. Gísladóttir Auðunn Birgisson Daðey Ingibjörg Hannesdóttir Guðni Birgisson Ingigerður Tómasdóttir Júlía Birgisdóttir Guðmundur H. Magnússon barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.