Morgunblaðið - 16.07.2018, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær, heitir pottar
og jarðgerðarílát
Rotþrær – heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar – leiðbein-
ingar um frágang fylgjar.
Mjög vönduð jarðgerðarílát til
moltugerðar.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl.
12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Opið fyrir inni-og útipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535 2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá 14.30-
15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia
völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega
viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga
kl. 11 og sunddans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13.
Vitatorg sími: 411 9450.
Gjábakki kl. 9, handavinna, kl. 13, Canasta.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, ganga kl. 10, handavinnu-
hornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir vel-
komnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, ganga frá skólabraut kl.
14.30, vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30. Minnum
einnig á Nikkuballið sem verður haldið nk. miðvikudag þann 18. júlí
við smábátahöfnina milli kl. 16 og 18.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 - 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 - 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30 - 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 - 15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586.
✝ Elín HalldóraÍsleifsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 15. janúar
1952. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 7. júlí
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Halldóra
Pálína Halldórs-
dóttir, húsmóðir
og starfsmaður á
Landspítala, f. 29. janúar 1929,
d. 11. september 1987, og Ís-
leifur Magnússon sjómaður, f.
27. mars 1927, d. 23. sept-
ember 1996. Þau voru bæði frá
Bolungarvík. Systir Elínar er
Kristín, f. 5. maí 1953.
Dóttir Elínar er Gunnhildur
Halldóra Georgsdóttir snyrti-
fræðingur, f. 15. febrúar 1973,
gift Kristjáni Óla Sverrissyni
kerfisfræðingi, f. 27. nóvember
1973. Börn þeirra eru Dagur
Sverrir, f. 1. september 2000,
og María, f. 17. apríl 2007.
Dóttir Gunnhildar er Elín
Björk, f. 19. júlí 1994, faðir
hennar er Hall-
steinn Traustason.
Elín ólst upp í
vesturbæ Reykja-
víkur, gekk í Mela-
skóla og Hagaskóla
og lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykja-
vík 1972. Hún nam
við Kennaraháskól-
ann og kenndi í
einn vetur. Síðan
hóf hún störf á Borgarspít-
alanum sem læknaritari, fyrst á
háls-, nef- og eyrnadeild en síð-
ar á skurðdeild. Hún var
snemma farsæl í starfi sem rit-
ari og varð það hennar ævi-
starf. Í nokkur ár vann hún á
Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Þegar hún hóf störf aftur á
spítalanum 1994 varð hún ritari
lækningaforstjóra en frá árinu
2013 var hún skrifstofustjóri
framkvæmdastjóra lækninga og
hjúkrunar á Landspítala.
Útför Elínar fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 16. júlí 2018,
klukkan 13.
Elsku amma mín. Söknuður-
inn sem ég finn í hjarta mínu er
nánast óbærilegur. Að missa er
sárt en að missa þig er svo sárt
að orð fá því ekki lýst. Ég myndi
gefa ansi mikið fyrir það að fá að
knúsa þig einu sinni enn og segja
þér hvað ég elska þig ótrúlega
mikið. Minningarnar sem við eig-
um saman eru margar og góðar
og þær eru eitthvað sem ég mun
halda fast í og muna svo lengi
sem ég lifi.
Við höfum alltaf verið bestu
vinkonur. Alveg frá því ég man
eftir mér og allt til dagsins í dag.
Þegar ég kom í heiminn ólst ég
upp hjá þér og mömmu fyrstu
árin. Þegar ég var svo komin á
grunnskólaaldur fluttum ég og
mamma. Við fórum þó ekki
langt, bara upp eina stóra
brekku og þá var ég komin til
þín. Þrátt fyrir að hafa flutt þá
komum við nánast daglega í
heimsókn og um leið og ég var
orðin nógu gömul þá nýtti ég
mér öll tækifæri og hjólaði til
þín. Helgarnar voru líka nýttar
vel með þér og mér fannst fátt
betra en að fá að gista hjá ömmu.
Þegar þú fluttir svo í Safamýrina
héldum við okkar rútínu, við
komum oft í heimsókn og ég fékk
að gista þegar ég vildi.
Ég átti í rauninni tvö heimili.
Ég leit ekki einungis á þig sem
ömmu heldur varstu mér líka
sem móðir. Það eru mörg falleg
orð sem mér dettur í hug þegar
ég hugsa til þín. Ég gat alltaf
leitað til þín ef ég þurfti aðstoð
við eitthvað því að gáfuð varstu
og dugnaðinn vantaði ekki hjá
þér. Þú gafst svo mikið af þér,
varst svo brosmild og brosið
geislaði af fegurð. Hjartahlýrri,
kærleiksríkari, yndislegri og
betri manneskju hef ég ekki hitt
á ævinni. Þú varst svo sannar-
lega gull af konu.
Það er svo margt sem ég vildi
að ég hefði getað sagt þér. Hvað
þú skiptir mig miklu máli og
hversu mikið ég leit upp til þín.
Hversu vel ég talaði um þig við
alla og hversu vel allir töluðu um
þig. Þú tókst öllum opnum örm-
um með bros á vör, gafst þeim
knús og koss á kinn, sama hversu
vel þú þekktir viðkomandi. Þú
sást alltaf það besta í öllum. Þú
varst ekki bara besta amma sem
hægt er að hugsa sér, þú varst
líka besta mamma í heimi. Fyr-
irmyndin mín í einu og öllu og
kletturinn í lífi mínu.
Þú hefur kennt mér svo ótal
margt í lífinu, elsku amma, og líf-
ið verður svo ótrúlega tómlegt án
þín. Eitt af því sem að þú hefur
kennt mér er að elska sama
hvað. Ég veit hvað þú og mamma
voruð nánar, ég veit hvað þú
elskaðir hana mikið og ég veit
hvað hún elskar þig mikið. Ég
veit líka hvað þú elskaðir okkur
ömmubörnin þín mikið. Við fjöl-
skyldan vorum þér allt og þú
varst okkur allt.
Ég lofa þér að elska og passa
upp á mömmu og alla í fjölskyld-
unni sama hvað. Það að þú sért
farin frá okkur sýnir mér að
maður veit svo sannarlega ekki
hvenær lífið endar og að maður
þarf að njóta hvers dags eins og
hann sé manns síðasti.
Elsku amma mín. Þú ert án
efa fallegasti engillinn á himnum
og þú munt alltaf eiga stóran
stað í hjarta mínu!
Elín Björk Hallsteinsdóttir.
Í dag kveð ég Elínu, mína
kæru systur. Á örskotsstundu og
án nokkurs fyrirvara kom kallið
og hún kvaddi og hélt í sína
hinstu ferð. Eftir sitja ástvinirnir
og sakna og syrgja sárt. En
minningin lifir, huggar og hjálp-
ar því hún Elín var svo falleg og
góð kona. Trygglynd og
hjartahlý, mátti ekkert aumt sjá,
skemmtileg og með góðan húm-
or, hógvær, bjartsýn, hugrökk,
réttsýn og ráðagóð, alltaf tilbúin
að sjá það góða og reyna að gera
gott úr því sem var verra.
Lífið var ekki alltaf auðvelt en
hún vann vel úr sínu og leysti öll
verkefni með stakri prýði. Hún
var hörkudugleg til vinnu, var 10
ára þegar hún fékk fyrsta starf-
ið, réð sig til sumarvistar í Bol-
ungarvík, þar passaði hún börn
sem hún hafði yndi af og var
jafnframt liðtæk við húsverkin,
hún kunni þetta allt svo vel, að
gæta barna og skúra, að þvo og
þrífa leysti hún svo vel af hendi
að aðdáun vakti. Hún byrjaði
ung að vinna á spítalanum, þótti
vænt um starfið sitt og vildi hag
þessa vinnustaðar sem mestan,
stóð alltaf með honum og ég veit
að hún lagði sig alla fram og
vann sín verk af mikilli trú-
mennsku.
Vinnan var henni mikilvæg en
forgangsröðin var rétt, hún setti
Gunnhildi sína og hennar fjöl-
skyldu í fyrsta sæti. Þau voru líf
hennar og yndi, hún umvafði þau
með ást sinni og kærleika og
gerði allt til að stuðla að ham-
ingju þeirra og velferð.
Við systurnar áttum náið og
gott samband og vorum sam-
ferða í lífinu. Hún, verandi árinu
eldri, tók auðvitað forystuna og
leiddi mig. Það var gott að eiga
systur sem alltaf var hægt að
leita til, sem átti ráð undir rifi
hverju og studdi mig af heilum
hug. Margs er að minnast en upp
í hugann koma góðu samveru-
stundirnar með fjölskyldum okk-
ar beggja, löngu göngutúrarnir
okkar, leikhúsferðir, borgarferð-
ir og símaspjallið á kvöldin.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
nú góða systur og frænku, þökk-
um samfylgdina og óskum henni
góðrar ferðar.
Elsku Gunnhildur, Kristján,
Elín Björk, Dagur Sverrir og
María, við vottum ykkur dýpstu
samúð, megi Guð og allar góðar
vættir styðja ykkur og styrkja.
Kristín Ísleifsdóttir
Elsku Ella frænka mín er fall-
in frá langt fyrir aldur fram.
Ella var móðursystir mín og
þær mamma voru mjög nánar
enda bara tvær og aldursmunur
lítill. Fjölskyldur okkar umgeng-
ust því mikið þegar ég var að
alast upp og minnist ég margra
góðra stunda í Háberginu hjá
þeim mæðgum og eins þegar
þær komu til okkar í Árbæinn.
Það var ekki annað hægt en að
líða vel í félagsskap Ellu. Hún
var alltaf létt, skemmtileg og
gaman að tala við hana. Ella var
alltaf áhugasöm um hvað við
systkinin og fjölskyldur okkur
vorum að bralla og við fundum
alltaf einlæga umhyggju og
væntumþykju frá henni.
Ella frænka mín skilur eftir
sig stórt skarð í litlu fjölskyld-
unni okkar og við munum öll
sakna hennar sárt.
Sólveig Stefánsdóttir.
Við viljum minnast elsku Ellu
vinkonu okkar með nokkrum
orðum. Sumar okkar voru með
Ellu í Melaskóla og Hagaskóla
en allar vorum við saman í MR.
Við höfum verið saman í sauma-
klúbbi frá 1974 og átt saman ótal
góðar stundir. Það er erfitt að
sætta sig við skyndilegt fráfall
einnar úr þessum litla hópi okk-
ar. Ella var einstaklega vönduð,
sjálfstæð og yfirveguð kona. Hún
lagði alltaf gott til málanna og
hafði ákaflega góða nærveru.
Hún hafði mikla frásagnargáfu
og góðan húmor. Alltaf var Ella
boðin og búin að hjálpa ef ein-
hver okkar saumaklúbbssystra
þurfti á að halda.
Við minnumst ótal ánægju-
stunda í saumaklúbbi og margra
ferðalaga innan lands og utan.
Við ætluðum að gera svo margt
skemmtilegt saman og héldum
að við hefðum nógan tíma til
þess. Við munum alltaf sakna
Ellu, sem var ómissandi í
klúbbnum okkar.
Samband Ellu við einkadótt-
urina Gunnhildi og fjölskyldu
hennar var einkar náið og er
missir þeirra óendanlega sár.
Ella ljómaði þegar hún sagði
okkur frá samverustundum með
Gunnhildi, Kristjáni, Elínu
Björku, Degi og Maríu.
Nú kveðjum við vinkonu okk-
ar með sorg og söknuði og þakk-
læti fyrir allt og allt.
Hugur okkar er hjá Gunnhildi,
Kristjáni og börnum þeirra
ásamt Kristínu systur Ellu og
hennar fjölskyldu og við sendum
þeim okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Minning Ellu lifir með okkur.
Með kveðju frá saumaklúbbn-
um,
Anna, Inga Lís, Ingiríður,
Kristín Klara, Margrét, Sig-
ríður Dúna og Svava.
Elín H.
Ísleifsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Elínu Halldóru Ísleifs-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝ Helgi ÞórMagnússon
fæddist í Reykjavík
21. desember 1942.
Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 4. júlí
2018.
Foreldrar hans
voru Magnús Páls-
son, sölumaður og
skiltagerðarmaður
í Reykjavík, fædd-
ur 8. ágúst 1905, látinn 23. jan-
Eiginkona Helga er Kristín
Guðmundsdóttir, fædd 10.
mars 1956 í Grindavík. Þau
gengu í hjónaband 26. desem-
ber 1980. Dóttir þeirra fæddist
andvana 29. október 1979.
Helgi og Kristín bjuggu
mestallan sinn búskap í
Grindavík, þar sem Helgi
stundaði sjómennsku og var
bæjarstarfsmaður hjá
Grindavíkurbæ. Áður en hann
kvæntist vann hann meðal
annars við garðyrkju í Reykja-
vík.
Síðustu sex árin dvaldi
Helgi á hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð í Grindavík.
Útför hans verður gerð frá
Grindavíkurkirkju í dag, 16.
júlí 2018, klukkan 14.
úar 1990, og kona
hans Lovísa Helga-
dóttir húsmóðir,
fædd 24. mars 1912,
látin 22. ágúst 1985.
Systkini: Ragn-
hildur, fædd 8.
ágúst 1937, látin 3.
maí 1942, Helgi
Þór, fæddur 29. des-
ember 1941, látinn
3. janúar 1942, Elín,
fædd 24. júní 1945
og Þuríður, fædd 3. mars 1951.
Í dag kveð ég elskulegan eig-
inmann minn, Helga Þór Magn-
ússon, sem lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja miðviku-
daginn 4. júlí sl.
Hann var fæddur í Reykjavík
21. desember 1942. Hann kom til
Grindavíkur árið 1969 til að
vinna í fiski, en hann vann í garð-
yrkju á sumrin og var til sjós í tíu
ár. Síðast vann hann hjá Áhalda-
húsi Grindavíkur.
Leiðir okkar lágu saman þ. 11.
maí 1973 á svokölluðu lokaballi í
Festi, en þau böll voru mjög vin-
sæl á þeim tíma. Við vorum sam-
an í 45 ár, eignuðumst andvana
dóttur 29. október 1979, giftum
okkur 26. desember 1980.
Við ferðuðumst mikið erlend-
is, t.d. til Taílands, Flórída,
Spánar og fleiri landa, en við
ferðuðumst líka mikið innan-
lands, áttum þrjá húsbíla og
Helgi naut þess að heimsækja
alla vini og ættingja á ferðum
okkar. Við fórum austur að
Skarði í Landsveit í 35 ár, oftast
um verslunarmannahelgi.
Helgi Þór var mjög góður
maður, mikill snyrtipinni, góður
bæði við börn og dýr og þau
hændust að honum. Allt sem
hann tók sér fyrir hendur leysti
hann vel af hendi og af mikilli
vandvirkni, þrátt fyrir lömunar-
veiki og afleiðingar af stóru um-
ferðarslysi sem hann lenti í sum-
arið 1962.
Síðustu sex árin dvaldist hann
á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í
Grindavík. Hans verður sárt
saknað af þeim sem þekktu hann.
Ég man alltaf eftir hlátrinum
þínum og öllum góðu stundunum
okkar.
Ég sakna þín, elsku Helgi
minn.
Þín eiginkona,
Kristín Guðmundsdóttir.
Helgi Þór
Magnússon