Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Anna Kristín Arn-grímsdóttir leikkonaer sjötug í dag. Eins og það sé ekki verðugur áfangi út af fyrir sig, þá fagnar hún í þokkabót hálfr- ar aldar starfsafmæli. Fyrsta hlutverk sitt fékk hún árið sem hún útskrif- aðist úr Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur og var það í sjónvarpsleikritinu Romm handa Rósalind eftir Jökul Jakobsson. Af því til- efni var hún kölluð „ung og efnileg leikkona“ í Alþýðu- blaðinu 2. mars 1968. Var það rétt metið hjá hlutaðeigandi blaðamanni. Segja mætti að fyrsta hlut- verk Önnu sé enn lengra aft- ur í tímann en níu ára lék hún í skólaleikriti.„Þá vissi ég það. Ég ætlaði að verða leikkona,“ segir Anna. Anna hefur verið í á annað hundrað útvarpsverka og í allt undir hundrað leikritum auk kvikmynda- og sjónvarpsverkefna. „Ég byrjaði hjá Leikfélagi Reykjavíkur eftir útskrift. Skrepp svo út til New York, kem aftur heim og fer í sjónvarp. Svo 1973 fæ ég samning í Þjóðleikhúsinu og vann þar í nokkra áratugi.“ Anna fór á eftirlaun 2011 en er þó hvergi nærri hætt að leika. „Nú á ég mig bara sjálf og sinni þeim verkefnum sem ég hef áhuga á. Við eigum leikhúsið 50+ og vinnum að alls kyns verkefnum þar. Svo hef ég unnið við verkefni hjá Kvikmyndaskólanum og ýmislegt fleira.“ Anna unir vel við sitt frá degi til dags og horfir stolt um öxl. „Ég átti mér draum og lífið varð að þeim veruleika sem ég þráði.“ Tvo stóráfanga ber þannig upp á sama ári. Anna tekur aldrinum fagnandi. „Mér finnst bara gaman að eldast. Maður verður að hugsa hvern dag fyrir sig. Maður á bara augnablikið,“ segir Anna en bætir við: „Það fer auðvitað ekki framhjá neinum að tíminn líður. Auðvitað hugsar maður stundum til framtíðar. En það er aldrei að vita nema ég eigi eftir að leika stærstu hlutverkin.“ Aðspurð segist hún hafa litla hugmynd um hvernig afmælinu sjálfu skal fagnað. „Ég held að mér verði rænt,“ segir hún full eftirvænt- ingar, kannski lítið eitt efablandinnar. snorrim@mbl.is Sátt Anna horfir stolt um öxl eftir langan og viðburðaríkan feril í leiklist. Sjötíu ár af lífi og hálf öld af leik Anna Kristín Arngrímsdóttir er sjötug í dag Morgunblaðið/Ómar S tefán Friðbjarnarson fædd- ist 16. júlí 1928 á Siglufirði og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar og verslunarprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands 1948. Á yngri árum var Stefán í sveit á sumrum í Fljótum og Sléttuhlíð í Skagafirði. Á unglingsárum vann hann við síldina eins og tíðkaðist, aðallega í mjölhúsi Síldarverksmiðju ríkisins. Stefán stundaði einnig fimleika og frjálsar íþróttir sem unglingur. Stefán var ritstjóri bæjarblaðsins Siglfirðings 1948-51 og 1966-74, aðalbókari Siglufjarðarkaupstaðar 1951-62, sat í bæjarstjórn á Siglufirði fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1958-74, bæj- arritari 1962-66 og bæjarstjóri 1966- 74. Hann var því bæjarstjóri þegar síldin hvarf. „Þetta var mjög sérstakt á Siglufirði því það byggðist allt á síld- inni og öll iðnaðarfyrirtæki voru í þjón- ustu við síldarvinnslufyrirtækin. Þegar síldin hvarf þá hrundi allt atvinnulífið og tekjustofnar og þetta var því mikil varnarbarátta. Það helsta sem ég man annað frá þessum tíma var þegar Strákagöngin voru lögð og þar með var rofin einangrun Siglufjarðar á landi. Á mínum tíma var einnig lagður grunnur að hitaveitunni þótt hún hafi ekki komist í gagnið fyrr en ég var hættur störfum.“ Stefán flutti til Reykjavíkur 1974 og var blaðamaður á Morgunblaðinu til 1998. Hann var lengi umsjónarmaður þingfrétta en var einnig í pólitískum skrifum. Hann hafði verið fréttaritari Morgunblaðsins á Siglufirði frá 1950- 74. Stefán sat í bæjarráði Siglufjarðar og ýmsum nefndum á vegum bæjar- félagsins, í stjórn Fjórðungssambands Norðlendinga 1966-75 og var formað- ur þess 1966-1969, í fulltrúaráði Sam- Stefán Friðbjarnarson, fyrrv. bæjarstjóri og blaðamaður – 90 ára Stórfjölskyldan Stefán Friðbjarnarson og Þorgerður Sigurgeirsdóttir ásamt afkomendum og tengdabörnum. Myndin er tekin við sumarbústaðinn „Móskóga“ í Kjósinni á 75 ára afmæli Stefáns. Stóð í varnarbaráttu þegar síldin hvarf Ásamt börnunum Stefán ásamt Sigmundi, Sigríði og Kjartani árið 2016. Karitas Ýr Ingimundardóttir og Maddý Ósk Einarsdóttir voru með tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands fyrir utan Nettó í Hafnarfirði. Þær söfnuðu 5.599 kr. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.