Morgunblaðið - 16.07.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 16.07.2018, Síða 23
bands íslenskra sveitarfélaga 1967-70, í stjórn Hafnarsambands sveitarfélaga 1969-71 og í stjórn Ríkisspítalanna á árunum 1978-95, varaformaður stjórn- ar frá 1983. Hann hefur um langt ára- bil verið í Frímúrarareglunni. Stefán var sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu árið 1996. Stefán hefur alltaf verið mikill lestrarhestur og er enn tíður gestur á Bókasafni Kópavogs. Önnur áhugamál hafa verið ferða- lög, brids og ræktun í sumarbústað sínum í Kjósinni. „Ég spila í brids- félagi á vegum Félags eldri borgara í Kópavogi tvisvar í viku yfir vetr- armánuðina.“ Stefán hefur haft gaman af því að setja saman vísur, meðal annars samið texta við sönglög fyrir karlakórinn Vísi á Siglufirði sem gefin hafa verið út á hljómplötu. Fjölskylda Síðari kona Stefáns var Þorgerður Sigurgeirsdóttir, f. 14.12 1928, d. 6.3 2015, starfsmaður Raunvísinda- stofnunar. Foreldrar Þorgerðar voru hjónin Sigurgeir Sigurðsson, skip- stjóri á Ísafirði, og Ingibjörg Þ. Jó- hannsdóttir. Fyrri kona Stefáns var Hulda Sigmundsdóttir, f. 17.10. 1929, d. 9.12. 1972, skrifstofumaður og hús- móðir. Foreldrar hennar voru hjónin Sigmundur Sigtryggson, verslunar- maður á Siglufirði, og Margrét Er- lendsdóttir húsmóðir. Börn Stefáns og Huldu eru 1) Sig- mundur, fyrrv. skattstjóri, f. 4.6. 1949, maki: Elísabet Kristinsdóttir stuðningsfulltrúi. Sonur Elísabetar og uppeldissonur Sigmundar er Kristinn Ingvarsson, maki: Birna Einarsdóttir, dóttir þeirra er Anna Elísabet. Sonur Sigmundar er Arn- ar, maki: Úlfhildur Óttarsdóttir, dætur þeirra eru Brynhildur, Brynja Dögg og Aðalheiður Ósk. Dætur Sig- mundar og Elísabetar: a) Hulda, maki: Davíð Ellertsson, þeirra börn eru Hlynur og Helga Lilja, b) Helga, maki: Einar Andri Einarsson, dóttir þeirra er Elísabet Edda. 2) Kjartan blaðamaður, f. 1.1. 1951, maki: Guð- rún K. Sigurðardóttir, fyrrv. deild- arstjóri. Þeirra börn eru a) Stefán, maki: Elise Mattingly, Stefán á son- inn Thor, b) Sigríður Huld, sem er látin. 3) Sigríður framhaldsskóla- kennari, f. 22.6. 1954. Dóttir hennar er Rósa Elín Davíðsdóttir, maki: Re- naud Durville. Synir þeirra eru Sindri Louis og Máni Théodore. Syn- ir Þorgerðar eru 1) Hörður Svav- arsson jarðfræðingur, f. 8.5. 1951, d. 26.3. 1991, maki: Ellen Árnadóttir læknaritari. Börn þeirra eru Hinrik Þór, Árni Már og Gerður Björk, 2) Gunnar Svavarsson garðyrkjumað- ur, f. 29.9. 1953, maki: Lára Sveins- dóttir framhaldsskólakennari. Dæt- ur þeirra eru Björg, Jóhanna, Lilja og María. Systkini Stefáns: Níels, f. 1918, d. 2012, bankagjaldkeri á Siglufirði, Kjartan, f. 1919, d. 2003, kaupsýslu- maður, Anna, f. 1921, d. 2017, um- boðsmaður BP í Vestmannaeyjum og húsmóðir, Kolbeinn f. 1931, d. 2000, verkamaður og formaður Verkalýðs- félagsins Vöku á Siglufirði og Bragi afgreiðslumaður, f.1935, d. 1990. Foreldrar Stefáns voru hjónin Friðbjörn Níelsson, f. 17.1. 1887, d. 13.10. 1952, skósmiður, kaupmaður og bæjargjaldkeri á Siglufirði og Sig- ríður Stefánsdóttir, f. 21.6. 1895, d. 2.6. 1987, húsmóðir. Stefán Friðbjarnarson Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja, frá Grundarhóli í Hrolleifsdal, Skagafirði Kjartan Jónsson bóndi á Hrauni í Sléttuhlíð Steinunn Margrét Kjartansdóttir húsfreyja í Móskógum Stefán Jóhannsson oddviti og útvegsbóndi í Móskógum í Fljótum Sigríður Stefánsdóttir húsfr. á Siglufirði Soffía Jónsdóttir húsfreyja, frá Grund í Þorvaldsdal, Eyjafirði Jóhann Jónsson bóndi á Illugastöðum í Fljótum Finnur Sig- mundsson lands- bóka- vörður Hreinn Sumarliðason kaupmaður í Rvík Jóhann Stefánsson kipstjóri á togaranum Geir Sigmundur Björns- son b. á Ytra-Hóli í Kaupangs- sveit Sigurlína Níelsdóttir húsfr. á Siglufirði Skjöldur Stefánsson útibússtjóri í Búðardal Sigurður Finnsson útgerðarmaður á Siglufirði Stefán Stefánsson for- stjóri Sjúkrasamlags Siglu- fjarðar og hagyrðingur Finnur Níelsson skrifstofustjóri á Siglufirði Finnur Geirs- son forstj. Nóa Siríusar Hallgrímur Geirsson fv. framkvstj. Árvakurs Erna Finns- dóttir húsfr. í Rvík s Jón Kristján Jóhannsson læknir í Keflavík og Rvík Matthildur Þorfinnsdóttir húsfreyja, fædd á Stærra- Árskógi á Árskógsströnd Björn Guðmundsson bóndi á Ytra-Hóli og Svertingsstöðum í Kaupangssveit, Eyj. Anna Björnsdóttir húsfreyja á Hallanda Níels Friðbjarnarson bóndi á Hallanda Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja, f. á Látrum, Grýtubakkahreppi Friðbjörn Sigurðsson bóndi og söðlasmiður á Hallanda á Svalbarðsströnd Úr frændgarði Stefáns Friðbjarnarsonar Friðbjörn Níelsson skósmiður, kaupmaður, ritstjóri og bæjargjaldkeri á Siglufirði ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 90 ára Stefán Friðbjarnarson 85 ára Jóhanna Dýrleif Skaftadóttir Jón Eyfjörð Sæmundsson Kristveig Jónsdóttir Oddgeir Ísaksson Stefán Sigurður Árnason 80 ára Ástmar Ólafsson Björn Pálmi Hermannsson Einar Bjarni Bjarnason Gunnar Magnús Guðmannsson Jenný Sólborg Franklínsdóttir Júlíus Bergsson Magnús Sigurðsson Sigurður Magnússon 75 ára Agnes Helga Einarsdóttir Ingunn Stefánsdóttir Óli Pétur Olsen Pétur Jónsson Rafn Guðmundsson Sigrún Margrét Magnúsd. Sigurgeir Bárðarson 70 ára Anna Kristín Arngrímsd. Ásgeir Þorvaldsson Gyða Guðmundsdóttir Jón Steingrímsson Kristinn Guðmundsson Louisa Biering Ragnheiður G. Gunnarsd. Stefán Hallgrímsson 60 ára Bára Alexandersdóttir Carmencita Elago Almagro Gísli Már Jónsson Guðmundur Antonsson Hólmfríður Óladóttir Íris Hera Norðfjörð Jónsd. Lára Ólafsdóttir Ragnheiður Thorarensen Þórður Pálsson Þór Kristmundsson 50 ára Adam Adamski Anna Rún Ingvarsdóttir Ásta Sigurðardóttir Benóný Jónsson Bjarney Katrín Ísleifsdóttir Helga Þórelfa Davids Hólmfríður Guðmundsd. Lárus Borgar H. Ólafsson Rafnar Karl Rafnarsson Skarphéðinn Eiríksson Svavar Smárason Valborg Stefánsdóttir Viðar Marinósson Þórarinn Sigurður Andréss. 40 ára Deisi Trindade Maricato Hulda Halldórsdóttir Kjartan Ingi Jónsson Kristi Jo Jóhannsdóttir Nína Björg Sæmundsdóttir Piotr Daniel Fryn Soffía Sigurlaug Grímsdóttir Vishal Kalia Þorbjörn Snorrason Þorgils Hörður Hallgrímss. 30 ára Andri Þór Ellertsson Anna Gala Birgir Arngrímsson Birgitta Arngrímsdóttir Davíð Helgi Ingimundarson Guðbjartur Gísli Egilsson Hartzell Daisog Mangubat Kajetan Andrzej Dziura Nadege Francois Norily Cagay Calo Til hamingju með daginn 40 ára Kristi er fædd og uppalin á Miami en býr í Reykjavík og er markaðs- ráðgjafi hjá Birtingi. Maki: Sveinn Henrysson, f. 1968, framkvæmda- stjóri hjá Vaðvík. Börn: Guðbjartur Þorkell, f. 1995, Ívar, f. 1997, Anna Kristín, f. 1998, og Þóra Sigga, f. 2007. Foreldrar: Jóhann Krist- insson, f. 1951, bús. í Hou- ston, og Ásta A. Ingólfs- dóttir, f. 1955, bús. í Rvík. Kristi Jo Jóhannsdóttir 40 ára Soffía ólst upp á Akranesi en býr í Reykja- vík. Hún er sérkennari í Borgarholtsskóla. Maki: Snorri Geir Stein- grímsson, f. 1971, flug- stjóri hjá Erni. Börn: Sigríður Björg, f. 2004, og Steinar Goði, f. 2015. Stjúpsynir: Helgi og Óskar, f. 2002. Foreldrar: Grímur Björns- son, f. 1945, bús. á Akra- nesi, og Björg Jóseps- dóttir, f. 1952, d. 2009. Soffía Sigurlaug Grímsdóttir 30 ára Guðbjartur er Pat- reksfirðingur og vélvirki hjá Vélaverkstæði Patreks- fjarðar. Maki: Kolbrún Matthías- dóttir, f. 1991, hár- greiðslukona með eigin stofu. Börn: Elma Lind, f. 2012, Aría Matthea og Aþena Sigríður, tvíburar, f. 2015. Foreldrar: Egill Össurar- son, f. 1964, og Sigfríður Guðbjörg Sigurjónsdóttir, f. 1964, bús. á Patreksfirði. Guðbjartur Gísli Egilsson Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi ALLT Í BAÐHERBERGIÐ FRÁ A TIL IFÖ Tengi hefur mikla og góða reynslu af IFÖ baðinnréttingum. IFÖ eru sænskar hágæðavörur sem framleiddar hafa verið allt frá 1936.  Diahann Alexandra Maria Atacho hef- ur varið doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum við læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Frá geni til atferlis – hlutverk Mitf í miðtaugakerf- inu (From gene to behavior – determ- ining the role of Mitf in the central nervous system). Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Pétur Henry Pet- ersen, dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Umritunarþátturinn MITF er nauð- synlegur fyrir þroskun litfrumna, bein- átsfrumna og mastfrumna. Mitf-genið er tjáð í glutamatergískum tauga- frumum í lyktarklumbu músar svo- nefndum mítril og ytri brúskfrumum (M/T-frumum). Í rannsókninni voru not- aðar mýs með stökkbreytingu í Mitf- geninu til að rannsaka hlutverk þeirra í lyktarklumbunni. Í ljós kom að þessar mýs eiga auðveldara með að greina á milli svipaðra lyktarefna en villigerð- armýs. M/T-frumur lyktarklumbu úr Mitf-stökkbreyttu músunum reyndust ofvirkar og þær skortir svokallaðan kalí- umstraum af A-gerð. Þessi aukna virkni var ekki einskorðuð við M/T-frumur lyktarklumbu. Stökkbreyttu mýsnar sýndu einnig fjölgun taugafrumna, bæði glutamatergískra og GABAergískra. Ofvirkni tauga- frumna og aukning í fjölda tauga- frumna útskýra lík- lega aukna getu Mitf-stökkbreyttu músanna til að að- greina lykt. Virkni taugafrumna veldur starfrænum breytingum á þeim. Slíkur mótanleiki er grundvöllur fjölbreytileika í taugakerfinu t.d. milli annarra líkra tauganeta. Samtímavirkjun margra hnoðra lyktarklumbunnar með amyl acetate-lykt í villigerðarmúsum leiddi til aukningar í umritun Mitf og Kcnd3 í M/ T-frumum. Mitf-stökkbreyttar mýs sýndu ekki þessa Kcnd3-svörun. Aukn- ing í virkni veldur því Mitf-háðri umritun á Kcnd3. Þar sem Kv4.3-próteinið eykur A-gerðar straum sem aftur minnkar lík- ur á boðspennu, minnkar næmni hins virkjaða hnoðra. Tilgátan er því sú að hlutverk Mitf í lyktarskyni sé að vernda M/T-frumur fyrir ofvirkjun og að draga úr næmni virkjaðra hnoðra. Slík ferli eru grunnurinn að því að lífverur hætta að finna lykt sem sífellt er til staðar í um- hverfinu. Diahann Atacho Diahann Atacho útskrifaðist með BSc-gráðu í samfélagsfræðum og vísindum með áherslu á sameindalíffræði og sálarfræði frá háskólanum í Maastricht í Hol- landi árið 2010. Tveimur árum síðar lauk hún MSc-gráðu í læknisfræðilegum taugavísindum frá Charite-háskólanum í Berlín. Diahann vinnur nú að rann- sóknum í taugavísindum við Lundarháskóla, í samstarfi við dr. Johann Jak- obsson. Diahann er trúlofuð Gísla B. Guðmundssyni. Doktor

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.