Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.07.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2018 Leikarinn og framleiðandinn Sacha Baron Cohen, sem er þekktur fyrir að hafa búið til og túlkað persón- urnar Borat og Brüno ásamt fleir- um, plataði Söruh Palin, bandaríska stjórnmálakonu og fyrrverandi rík- isstjóra Alaska, til að koma fram í þætti í nýrri þáttaröð hans Who is America. Þátturinn var tekinn upp- leynilega og Palin er ekki sátt með að hafa verið göbbuð enda lýsti hún Sacha sem illgjörnum og sjúkum grínista. Breska dagblaðið The Gu- ardian greinir frá þessu. Samkvæmt Palin þóttist Cohen- vera fatlaður fyrrverandi hermaður sem kallaði sig Billy Wayne Rudd- ick Jr., PhD. Palin kom til hans í viðtal sem hún hélt að væri fyrir heimildarmynd. Undir nafni Rudd- ick hefur Cohen brugðist við um- mælum Palin, segir þau „FALS- FRÉTTIR“ og krefur hana um afsökunarbeiðni. Ruddick er í raun önnur persóna sem Cohen hefur bú- ið til og túlkar í þáttunum Who is America. Ruddick þessi stjórnar vefsíðunni Thruthbrary.org, „Frelsisvef fyrir sanna Ameríku og sanna elskandi Bandaríkjamenn.“ Á síðunni er meðal annars að finna samsæriskenningar sem lúta að því að Barack Obama sé frá Kenýu og að Hillary Clinton sé djöfladýrk- andi. Cohen hefur verið leynilega að kvikmynda þættina Who Is Am- erica og hefur verið sagt að í þeim taki hann viðtöl við Bernie Sanders, Dick Cheney ásamt Söruh Palin og fleirum. AFP Gabb Sarah Palin er verulega ósátt við Sacha Baron Cohen og segir hann illgjarnan. Sacha Baron Cohen gabbar Söruh Palin » Jón Magnússon opn- aði málverkasýning- una Skyndimyndir í sýningarsal félagsins Ís- lensk grafík á laugar- daginn. Verkin vann Jón í fyrra og á þessu ári og eru þau öll olíumálverk. „Ég tek myndir á sím- ann, nota hann eins og filmu og framkalla þær í málverki, þannig verða verkin næstum eins og fréttamyndir, eitthvað sem er í gangi núna, contemporary, skrá- setning nútímans,“ seg- ir Jón m.a. um verk sín á Facebook. Sýning á verkum Jóns Magnússonar var opnuð í sal félagsins Íslensk grafík í fyrradag Morgunblaðið/Hari Litskrúðug verk Sýningin er í sal Íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17, Hafnarhúsi. Gengið inn bakdyramegin. Listunnendur Hjónin Sævar Karl Ólason, klæðskeri og myndlistamaður og Erla Þórarins- dóttir nutu sýningarinnar á opnunardaginn. Ánægðir gestir Sýningargestir nutu þess að skoða málverkin og tala um þau. Listamað- ur kveðst vera að skrá nútímann með verkum sín- um. Listamenn Jón Magnússon myndlistarmaður og móðir hans K. Alexandra Argunova sem hefur lagt stund á myndlist, hönnun, söng og leiklist. Íslenskt einangrunargler í nýbygginguna, sumarbústaðinn eða stofugluggann. Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími. Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889 000 – samverk.is ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.