Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2018
GM 9900 Verð frá 450.000,-
GM 3200 Verð frá 595.000,-
GM 2152 Verð frá 556.000,-
GM 7700 Verð frá 639.000,-
GM 3300 Verð frá 685.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CONDEHOUSE TEN
Borðstofuborð
Bandarískur búddaprestur búsettur í Japan vakti athygli á
netinu í vikunni eftir að hann missti stjórn á skapi sínu á um-
mælakerfi ferðasíðunnar Booking.com. Ummæli hans beind-
ust að gagnrýni notenda á hefðbundið búddahof á Koya-fjalli
sunnan við Osaka sem býður ferðamönnum upp á gistingu
og tækifæri til að fylgjast með helgisiðum og venjum hofs-
ins.
Gagnrýni ferðamannanna beindist meðal annars að
matarúrvali hofsins sem er einfaldir grænmetisréttir, og að
svæði utan svefnaðstöðu væru ekki upphituð. Presturinn
svaraði fúkyrtur á ummælakerfinu að þetta væru siðvenjur
munkanna í hofinu og að ekki væri sérstakt tillit tekið til
ferðamanna. Hann hefur beðist afsökunar á orðavali sínu en
útskýrði að það væri pirrandi að sjá ferðamenn sem fá þetta
tækifæri búast við þjónustu eins og þeir séu á lúxushóteli.
Fékk nóg af ferðamönnum
Grænmetisréttir munkanna leggjast misvel í ferðamenn.
Gagnrýni ferðamanna á siðvenjur
búddahofs reittu prest til reiði.
Danjo Garan er mið-
punktur helgisvæðis Shin-
gon-búddapresta á Koya-
fjalli þar sem ferðamönn-
um býðst gisting.
Þriðjudaginn 29. júlí 1986 greinir Morgunblaðið
frá því að Sjónstöð Íslands hafi verið komið fyrir
í Blindrafélaginu við Hamrahlíð. Aðalmarkmið
stöðvarinnar séu að tryggja að ávallt séu á boð-
stólum sérhæfð hjálpartæki af fullkomnustu
gerð fyrir blint og sjónskert fólk auk þess sem
hún muni annast alla þá þjálfun og mælingu sem
sjónskertir þurfa á að halda. Sjónstöðvar sem
þessi séu ekki ýkja gömul fyrirbæri og ekki séu
nema 10-15 ár síðan slík starfsemi hafi hafist í
nágrannalöndum.
Fram kemur að sérmenntað starfsfólk á stöð-
inni verði meðal annars sjónþjálfar, sjóntækja-
fræðingar, umferliskennarar og augnsmiðir.
Meðal tækjanna sem sjónstöðin býður upp á
verður lessjónvarp, rafeindabúnaður og ýmis
flókin stækkunargleraugu. Eina starfsemin sem
var þegar hafin var smíði gerviaugna, en þau
voru nú gerð úr akrýlefnum sem gerðu þau létt-
ari og endingarbetri en augu úr gleri.
GAMLA FRÉTTIN
Sjónstöð
Íslands opnuð
Fyrsta starfsemin sem hófst á Sjónstöð Íslands var smíði
gerviaugna sem notaðist nú við akrýlefni í stað glers.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Cher
söngkona
Inga Sæland
alþingismaður
Ozzy Osbourne
söngvari