Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 34
LESBÓK Listamaðurinn Sóley Stefánsdóttir fær skotleyfi á skynfærin kl. 21 ásunnudagskvöld á Húrra, en svo er það kallað þar á bæ þegar valin- kunnir tónlistarmenn fá að spila nákvæmlega það sem þeim sýnist. Sóley fær skotleyfi á skynfærin 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018 Síðan Gísla Snæ Erlingssyni tókst aðgræta stóran hluta íslensku þjóðarinnarárið 1995 með Benjamín dúfu, fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd eftir kvikmynda- nám í París, hefur hann mestanpart búið og starfað í útlöndum. Frá aldamótum í Japan, síð- an Singapúr þar til fyrir tveimur árum að hann fluttist til London og tók við starfi námsstjóra í London Film School, einum elsta og virtasta kvikmyndaskóla heims. „Námsstjóri er yfir öllu náminu og vinnur náið með kennurum og öðru starfsliði skólans,“ útskýrir Gísli Snær. Í haust var hann svo settur skólastjóri og í vor form- lega fastráðinn til að gegna starfanum. „Ég vakna á morgnana rétt eins og venjulega og fer bara að vinna,“ svarar Gísli Snær þegar hann er spurður um upphefðina. En heldur svo áfram: „Í sannleika sagt er ég svakalega stolt- ur, enda rann allt í einu upp fyrir mér að ég er orðinn nafn í sögu elsta kvikmyndaskóla Bret- lands, sem getið hefur sér gott orð á al- þjóðavísu. Skólinn hefur um margt skapað sér sérstöðu og á sér merkilega sögu, sem hefur verið haldið vel til haga frá því hann var stofn- aður árið 1956. Hér er enn kennt eftir fyrsta kennslumódelinu, sem felst meðal annars í að nemendur hafa mikil áhrif á þá heimspeki sem kennt er eftir, starfsemina og það sem skólinn stendur fyrir. Þegar nemendur hefja nám borga þeir 5 pund til að gerast félagar í The Association, en svo nefnist félagsskapur, sem kýs stjórn og stjórnarformann og velur jafn- framt skólastjóra.“ Um 200 nemendur Til gamans lætur Gísli Snær þess getið að upp- haf London Film School megi rekja til nám- skeiða, sem haldin voru fyrir rafvirkja til að höndla með kvikmyndaljós. „Smám saman hef- ur starfsemin verið að vinda upp á sig. Undan- farið hafa um 200 nemendur hvaðanæva úr heiminum stundað hér meistaranám í kvik- myndagerð, handritsgerð og alþjóðlegri kvik- myndaviðskiptafræði. Einnig eru árlega í boði tvö sæti í doktorsnámi í samstarfi við Exeter- háskóla og háskólann í Warwick. Fastir kenn- arar eru um 50, lausráðnir um 120 og fjöldi gestakennara heldur meistaranámskeið á hverri önn. Nýverið var Walter Murch, klippari og hljóðhönnuður, til dæmis með eitt slíkt, en hann hefur unnið mikið með Francis Ford Cop- pola í áranna rás.“ Úr því að Gísli Snær minnist að fyrra bragði á einn frægan er lag að biðja hann að nefna fleiri fyrrverandi nemendur skólans af svipuðu sauðahúsi. „Ég er afskaplega lélegur í að slá um mig með frægum nöfnum,“ segir hann, en rifjar samt upp nokkur: „Sonur David Bowies, Dunc- an Jones, sem leikstýrði Source Code, Michael Mann, leikstjóri Miami Vice, Heat og fleiri og Tak Fujimoto, kvikmyndatökumaður The Si- lence of the Lambs. Þá hefur líka margt ís- lenskt kvikmyndagerðarfólk stundað hér nám, þótt í augnablikinu sé enginn,“ segir Gísli Snær. Honum finnst þó ekki útilokað að úr rætist og einhver eða einhverjir þeirra fimmtán Íslend- inga, sem sóttu um fyrir næstu önn komist gegnum langt og strangt inntökuferlið. „Ferlið er ekki svona strembið af því að við séum að reyna að vera elítuskóli, heldur til að umsækjendur geri sér grein fyrir út í hvað þeir eru að fara og að námið sé gríðarlega dýrt fyrir þjóðfélagið. Kvikmyndabransinn er ekki kampavín og smóking öll kvöld, heldur virki- lega töff starf og samkeppni er hörð,“ segir Gísli Snær og vísar til þess að þegar hann lærði kvikmyndaleikstjórn í París í gamla daga kost- aði það franska ríkið svipað og að þjálfa orustu- flugmann í jafnlangan tíma. Gísli Snær segir að hjá sér sé enginn dagur eins frekar en hjá nemendum. Hann fylgist vitaskuld grannt með námi þeirra, sem skiptist í þrjár annir á ári og felur í sér að þeir búa til fjölda kvikmynda á tveggja ára námstíma og eru flestar um 20 mínútur að lengd. „Um 250 á ári,“ segir hann og er afar hreykinn af útskrift- arverkefnum nemenda. Og alveg með tölurnar á hreinu þegar kemur að afrekum þeirra. „Frá því ég hóf störf í hittifyrra hafa nemendur sýnt 530 myndir á 431 kvikmyndahátíð og hampað 87 verðlaunum og 55 tilnefningum. Einn fékk meira að segja Óskarinn fyrir bestu erlendu myndina þetta árið. Í skólanum er mikil áhersla lögð á að styðja vel við bakið á nemendum. Tveir starfsmenn eru í fullri vinnu við að koma myndunum á framfæri á kvikmyndahátíðum og víðar, enda er okkur mikið í mun að nemendur njóti velgengni, þeir eru okkar besta auglýs- ing.“ Nýi skólastjórinn hefur ekki í hyggju að breyta áherslum í skólastarfinu, enda sér hann ekki ástæðu til að breyta því sem virkar vel. Hins vegar er ýmislegt á döfinni, t.d. stendur fyrir dyrum að flytja skólann úr Covent Garden til London City Island og flutningunum, sem á að ljúka 2020, fylgi mikið umstang og skrif- finnska. Spurður hvort nemendur hafi svipaðar hug- myndir um kvikmyndagerð og hann og sam- nemendur hans í kvikmyndanáminu á tíunda áratugnum, segir hann umhverfið hafa gjör- breyst. „Áhugi þeirra beinist í meira mæli að gerð sjónvarpsþátta, enda markaðurinn orðinn miklu meiri fyrir þáttaraðir, sem fólk getur horft á heima í stofu í eins mörgum lotum og það vill. Samhliða þessari þróun hefur orðið æ erfiðara að fjámagna kvikmyndir í fullri lengd. Í gamla skólanum mínum þurftum við nemend- urnir að hafa rosalega mikið fyrir því ef okkur langaði að horfa á gamlar bíómyndir eða þætti. Þá var ekkert sem hét „online“ eða frír aðgang- ur að streymisveitu á borð við MUBI eins og nemendur London Film School hafa. Fyrir vik- ið eru nemendurnir búnir að sjá ógrynni mynda, miklu fleiri en mín kynslóð, og hafa þró- að með sér meiri sjónrænan lesskilning,“ segir Gísli Snær og bætir við að kvikmyndir og þætt- ir frá öðrum löndum en Bretlandi og Bandaríkj- unum eigi auknum vinsældum að fagna, bæði hjá nemendum og almenningi. Fer enn í keng yfir Benjamín dúfu Áður en Gísli Snær sneri sér að menntamálum og skólastjórn á vettvangi kvikmyndanna kom hann víða við. Á árunum 1986 til 1994, eða þar til fór til náms í París, var hann umsjónarmaður tónlistarþáttarins Poppkorns, stjórnaði og fram- leiddi fjölda þátta fyrir RÚV og leikstýrði og klippti kvikmyndina Stuttur frakki. Eftir útskrift stjórnaði hann og myndaði margar verðlauna- myndir, sjónvarpsauglýsingar og fleira. Hans þekktasta verk, Benjamín dúfa, var til skamms tíma á hringsóli á kvikmyndahátíðum vítt og breitt um heiminn, og sjálfur hefur hann verið dómari á slíkum hátíðum út um allar trissur. „Benjamín dúfa á sérstakan stað í hjarta mér, ég get ekki horft á hana án þess að fara al- veg í keng því ég upplifi svo sterkt hversu mikið allir sem að henni komu gáfu af sér. Ég segi stundum að það hafi orðið til einhver galdur,“ segir Gísli Snær og tekur fram að myndin sé gerð eftir skáldsögu Friðriks Erlingssonar. Aldamótaárið kom út kvikmyndin Ikíngút, sem hann leikstýrði. Eftir góðar viðtökur á kvikmyndahátíðinni í Berlín fluttist hann til Tókíó ásamt japanskri eiginkonu og dóttur. „Ég hafði nóg að gera, stofnaði framleiðslu- og dreifingarfyrirtæki, gerði heimildarmyndir og vann fyrir japönsku sjónvarpsstöðina NHK svo fátt eitt sé talið. Þegar mér bauðst skólastjóra- staða við Puttnam-kvikmyndaskólann í Singa- púr greip ég tækifærið því mér fannst mikið til um að fá að vinna með David Puttnam, sem er mikill menntafrömuður þegar kemur að kvik- myndagerð.“ Sex árum síðar færði Gísli Snær sig aftur um set til að halda um skólastjórataumana í Lond- on Film School. „Það spilaði líka inn í að mig langaði til að vera nær Íslandi og foreldrum mínum, sem farnir eru að eldast, og að þurfa ekki að fljúga í þrettán klukkutíma til að kom- ast heim. Eftir næstum tvo áratugi í Asíu og tíð ferðalög um um allan heim finnst mér Ísland alltaf vera heima.“ Þrátt fyrir að vera í fullu starfi hjá London Film School er Gísli Snær með nokkur kvik- myndaverkefni í þróun. „Flest þeirra gerast heima á Íslandi. Þótt þau séu öll hentug til sam- starfs við Breta eru þau ætluð til sýninga víða um heim. Mér finnst mikilvægt að allir kenn- arar og starfsmenn skólans haldi við sköp- unargáfunni svo nemendur geti lært af þeim sem stöðugt eru að og í góðri æfingu.“ Gísli Snær, t. h., ásamt gestakenn- aranum Walter Murch, sem hefur verið náinn samstarfsmaður Francis Ford Coppola. „Nemendur eru okkar besta auglýsing“ Gísli Snær Erlingsson tók nýverið við skólastjórataumunum í London Film School, einum elsta kvikmyndaskóla heims Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is ’ Þá var ekkert sem hét „online“ eða frír aðgangur aðstreymisveitu á borð við MUBIeins og nemendur London Film School hafa. Fyrir vikið eru nemendurnir búnir að sjá ógrynni mynda, miklu fleiri en mín kynslóð, og hafa þróað með sér meiri sjónrænan lesskilning.“ Að jafnaði stunda um 200 nemendur meistaranám í kvikmyndagerð, handritsgerð og alþjóðlegri kvikmyndaviðskiptafræði í London Film School. Ljósmynd/Katie Garner

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.