Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018 ’ Frægasta dagbók allra tíma er líklega dagbók Önnu Frank sem faldi sig ásamt fjölskyldu sinni fyrir nasistum í Amsterdam í seinni heimsstyrjöldinni. Hún hélt dagbók frá 12. júní 1942 til 1. ágúst 1944. Bókin var fyrst gefin út á hollensku árið 1947 og hefur síðan selst í tugum milljóna eintaka á fleiri tungumálum. INNLENT GUÐRÚN ÓLA JÓNSDÓTTIR gudruno@mbl.is Ryder Carroll, hönnuður í New York, áhugmyndina að Bullet Journal. Upp-haflega hugsaði hann þetta sem ein- falda og þægilega leið fyrir sig til að minnka flækjustigið í lífi sínu og koma skipulagi á hugmyndir sínar og hugsanir. Þegar Carroll sýndi vinkonu sinni dagbók- ina og skipulagið, til að aðstoða hana við brúðkaupsundirbúning, varð hún yfir sig hrifin og hvatti hann til að deila dagbók- arhugmyndinni með heiminum. Hann var feiminn við það en nokkrum árum síðar var hann milli starfa og minntist orða vinkonu sinnar. Caroll opnaði vefsíðuna www.bul- letjournal.com árið 2013 þar sem var meðal annars að finna kennslumyndbönd um dag- bókargerðina. Vefsíðan varð fljótlega gríðarlega vinsæl og fékk mörg þúsund heimsóknir á hverjum degi. Bullet Journal-samfélög urðu til á sam- félagsmiðlum um heim allan. Hvað viltu? Þú ræður! Bullet Journal er dagbók sem eigandinn hannar sjálfur eftir sínu höfði. Eini efnivið- urinn sem þarf að hafa er auð stílabók og skriffæri. Mörgum finnst best að nota stíla- bók fyrir Bullet Journal þar sem blaðsíð- urnar eru hvorki með línur né rúðustrikaðar, heldur með punktum sem liggja með reglu- legu millibili yfir síðurnar. Bullet Journal-grindin byggist á einfald- leika en það góða við að hanna sjálfur sína dagbók frá grunni, er að maður getur stjórn- að því hvernig bókin er uppbyggð. Ef til vill hjálpar það sumum að hafa dagbókina ein- falda á meðan aðrir vilja hafa hana fjöl- breytta og vera með mikið í gangi. Grunnhugsunin er sú að maður flytji ókláruð verk á milli mánaða; þegar byrjað er á yfirliti fyrir nýjan mánuð sé farið yfir verk- efnin sem ætlunin var að ljúka við í síðasta mánuði. Séu einhver ókláruð, er haldið áfram með þau í nýjum mánuði. Það hljómar e.t.v. sem mikil vinna en þannig getur maður met- ið hvort maður vilji halda áfram með viðkom- andi verkefni eður ei og hvort það sé meiri vinnu virði. Ef manni finnst eitthvað ekki nógu merkilegt til að skrifa það aftur á verk- efnalistann, þá er það líklega ekki nógu mik- ilvægt til að leggja meiri vinnu í það. Bullet Journal-samfélög á netinu Fólk er mjög duglegt að birta myndir af Bul- let Journal-bókum sínum á hinum ýmsu sam- félagsmiðlum. Ef orðinu Bullet Journal er til dæmis slegið inn á leitarvef Google koma upp u.þ.b. 383 milljónir niðurstaðna og á In- stagram rúmlega tvær milljónir. Það er því auðvelt að sækja sér innblástur og fá hug- myndir á netinu. Á Facebook má finna marga hópa þar sem fólk sameinast í áhuga sínum á Bullet Journ- al. Einn þeirra kallar sig Bullet Journal Spjall en í hópnum eru tæplega átta hundruð félagar. Þar á meðal eru þær Bára Örk Mel- sted og Eva Rakel Aðalsteinsdóttir. Bára Örk segist hafa byrjað að nota Bullet Journal í byrjun sumars 2016 en sér hafi aldrei fundist tilbúnar dagbækur vera akk- úrat eins og hún hefði viljað. Hún hafi séð Bullet Journal-myndband á Facebook og það hafi strax heillað hana. „Það besta er að maður getur haft dagbókina akkúrat eins og maður vill eða þarf. Sumar vikur veit ég t.d. að það verður mikið um einhvers konar við- burði eða heimanám og þá gef ég mér meira pláss í það en vanalega. Stundum nota ég hana samt lítið eða jafnvel ekki neitt.“ Eva Rakel segist vera búin að nota Bullet Journal af alvöru í nokkra mánuði. Aðspurð hvað sé nauðsynlegt að eiga þegar byrjað er á Bullet Journal, segist hún vera hrifnust af Toma-bókum. „Svo þarf bara að eiga blýant, strokleður, reglustiku, liti og svartan penna.“ Bára Örk segir að það sé ekki mikilvægt að eiga fínustu bókina og dýrustu pennana. Best sé að prufa sig áfram. „Þá getur maður áttað sig á því hvað mann vantar eða langar til að eiga og nota.“ Þarf maður að vera listrænn til að geta bú- ið til Bullet Journal-dagbók? „Það er alls ekki mikilvægt að vera list- rænn eða kunna að teikna,“ segir Bára. „Þetta er þín bók og enginn þarf að sjá hana frekar en þú vilt. Það getur verið erfitt að bera sig saman við það sem maður sér á Pinterest og Instagram til dæmis en það eina sem skiptir máli er að bókin er fyrir þig og að þú sért ánægð/ur með hana.“ Kæra dagbók! Dagbókarkerfið Bullet Journal byrjaði sem lítið verkefni manns sem vildi koma skipulagi á hugsanir sínar og daglegt líf með ein- faldri dagbók. Hann hefur varla órað fyrir því að þessi einfalda hugmynd ætti eftir að verða vinsælt dagbókarform víða um heim. Mynd sem blaðamaður teiknaði upp eft- ir að hafa fengið innblástur á Pinterest. Punktalínurnar gera manni auð- velt að teikna og skrifa í bókina. Úr dagbók Báru. Hún segist aðallega fá inn- blástur á Instagram en stundum fái hún líka hugmyndir úr nærumhverfinu. Mynd af opnu úr uprunalegu Bullet Journal- dagbók hönn- uðarins Ryan Carroll. Mynd fengin af síðu nni www.bulletjou rnal.com Bára Örk Melsted segir þema dagbókarinnar sinnar breytast oft en hún sé litrík. Eva Rakel Aðalsteinsdóttir hefur notað Bullet Journal af alvöru í nokkra mánuði. Úr dagbók Evu Rakelar. Hún segist helst fá innblástur á Instagram, Pinterest og af húðflúrum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.