Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 29
njóta náttúrufegurðarinnar, fara á kaffihús og slaka bara á.“ Yfir eldri hluta Cochem gnæfir Reichsburg-kastali sem Borghildur segir að hafi verið afar gaman að heimsækja. „Ég hef oft skoðað kastala sem eru kannski dálítið hráir og ekki mikið að sjá inni í þeim. En í kastalanum þarna í Cochem var mikið af dóti; brynjum, húsgögnum og þess háttar sem var mjög skemmtilegt að sjá. Við fórum í skoðunarferð um kastalann með leiðsögumanni sem sýndi okkur sjö af fimmtíu herbergjum kastalans.“ Auk þess að skoða kastalann fóru Borghildur, Yngvi og Sólveig meðal annars í siglingu eftir ánni Mósel sem liðast um Mó- seldalinn en á bökkum árinnar standa mörg falleg þorp. Þau fóru einnig í vínsmökkun og upp í útsýn- isturninn Prinzenkopfturm. „Það var alveg meirihátt- ar upplifun. Úr turninum er útsýni til allra átta og fegurðin ólýsanleg,“ segir Borghildur. Hún segir að markmið ferðarinnar hafi ekki verið að gera sem mest heldur frekar að lifa og njóta. „Við vildum gera þetta þannig að tengdamamma nyti ferð- arinnar sem best. Við vöknuðum snemma alla morgna og fengum okkur góðan morgunverð. Svo tókum við smá hrjóga, eins og við segjum, en það er sambland af hrotum og jóga,“ segir Borghildur og hlær. „Svo fór- um við í bíltúr eða skoðunarferð og nutum þess svo bara að sitja á kaffihúsi og fylgjast með mannlífinu.“ Hún segir að þau hjónin langi að fara aftur á þessar slóðir og skoða meira. „Og þá held ég að við myndum vilja prófa að gista á svona hótelbát sem siglir eftir ánni Mósel. Þetta eru bátar með hótelherbergjum, veitingastöðum og bara virkilega flottri aðstöðu.“ Hitinn var í kringum þrjátíu gráður allan tímann og Borghildur segir að þau hafi verið þakklát fyrir góða lofkælingu í bílaleigubílnum. „Stundum flúðum við bara inn í bíl og settum lofkælinguna í botn. Það var voða gott að koma heim í svalann; það er þó hægt að klæða kuldann af sér.“ Í Reichsburg-kastalanum er ótal margt að sjá. Í þessari borðstofu mætti til dæmis halda að borðhald væri að hefjast. Fallegt útsýni er úr Reichsburg-kastala í þorpinu Cochem. Borghildur segir svokallaða hótelbáta vera algenga sjón á ánni Mósel. Hún segir þau hjónin langa til að prófa slíka gistingu seinna meir. 29.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Daglegir hádegis- tónleikar í Eldborg. 21. júní –6. ágúst. harpa.is/rvkclassics Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.