Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 36
Poppgyðjan Madonna er byrj-uð að skipuleggja sextíu áraafmælið sitt, en aðeins rúm- ar tvær vikur eru í herlegheitin. Blöð um víða veröld eru byrjuð að fara yfir ótrúlegan feril Madonnu og ekki síður hvernig hún hefur hreinlega breytt heiminum, ekki síst fyrir konur í popptónlist. Und- irrituð ólst upp við tónlist hennar og nærveru og getur tekið undir að áhrif Madonnu eru stórtæk. Þegar bera fór á Madonnu voru viðbrögðin við henni ýmiss konar. Hún eignaðist strax stóran aðdá- endahóp en hún var einnig kölluð ófyrirleitinn dóni. Madonna var djörf í klæðaburði, talaði frjálslega um kynlíf og lagði áherslu á að konur ættu að huga að sjálfum sér en ekki öðrum, þóknast sjálfum sér og njóta fullkomins frelsis á borð við karlmenn. Madonna sýndi fljótt og hefur alla tíð sýnt hvern- ig konur geta tekið stjórnina aleinar, en það fór öfugt ofan í marga í byrjun þar sem tíðarand- inn var ennþá svolítið settlegur á níunda áratugnum og konur áttu að margra mati að vera prúðar og þægar. Madonna ruddi brautina fyrir framtíðar djarfa „dóna“, konur sem hafa sýnt djörfung og eld- móðugt sjálfstæði í tónlistarheim- inum svo sem Beyoncé og Taylor Swift, sem hafa sjálfar tekið stjórnina á sínum ferli en ekki látið stjórnast, því það var vissulega stórt vandamál í poppheiminum þar sem konur hafa oft barist við að vera settar í ákveðin fyrirfram- gefin mót. Sjálfstæðisbarátta Madonnu hefur end- urspeglast í mörgu, til að mynda hafa bún- ingar Madonnu oft þótt minna á brynjur eða eins konar her- klæðnað – hún er tilbúin í átökin og við öllu búin. Átökin hafa verið ýmiss konar og hún hefur ekki aðeins notað búninga og sviðsframkomu til að ögra og bjóða heim- inum birginn. Mynd- böndin hafa verið hennar sterki vett- vangur þar sem hún hefur til dæmis hróflað við kaþólsku kirkjunni og karla- Sú sem breytti heim- inum sextug Brátt sextug er Madonna hvergi nærri af baki dott- in. Madonna hefur haft óvéfengjanleg áhrif á tilveru fólks um víða veröld og poppheiminn í heild sinni. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Með dóttur sinni Lourdes Leon. Hallar sér að öxl sonar síns, David Banda. Ma- donna á sex börn, þar af eru fjögur ættleidd. Madonna á tónleikatúr sínum Rebel Heart árið 2015. Madonna í einum af sínum frægustu „brynjum“ sem Jean Paul Gaultier hannaði. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018 LESBÓK KVIKMYNDIR Anthony Hopkins sagði opinskátt frá baráttu sinni við alkóhólisma þegar hann var að byrja feril sinn sem ungur leikari. Erfitt hafi verið að vinna með honum og hann hafi oft mætt á tökustað með timburmenn. Þessu deildi hann með 500 nemendum í Háskólanum í Kaliforníu á opnum fyrirlestri þar en breski leikarinn er búsettur vestanhafs, í Los Angel- es. Hopkins sagði að hann hefði náð að snúa blaðinu við með hjálp stuðningsfulltrúa þegar hann var langt kominn á fertugsaldur. „Út frá því hvernig líf mitt var, trúi ég því varla enn að það hafi þróast í þessa átt, ég hefði átt að deyja í Wales, fullur eða eitthvað þvíumlíkt,“ sagði hinn áttatíu ára gamli Hopkins á fyrirlestrinum. Hefði átt að deyja fullur Athony Hopkins er hissa á jákvæðri þróun lífs síns. KVIKMYNDIR Til stendur að Natalie Port- man leikstýri og fari með aðalhlutverk í nýrri ævisögulegri kvikmynd um tvíburasysturnar Esther og Pauline Friedman sem báðar voru þekktir dálkahöfundar í blöðum vestanhafs. Portman myndi að sjálfsögðu leika báðar systurnar og því um tvöfalt hlutverk að ræða. Tvíburasysturnar, sem ávallt voru kallaðar Eppie og Popo voru fæddar 1918 og voru af- ar nánar í uppvexti sínum og héldu meira að segja sameiginlegt brúðkaup. Sambandið súrnaði hins vegar þegar þær eltust og fóru að starfa sem dálkahöfundar og stóð sú deila í áratugi og jafnvel framyfir lát þeirra. Portman leikur þekkta tvíbura Natalie Portman spreytir sig á tveimur aðal- hlutverkum í næstu mynd. Til Evrópu SJÓNVARP Netflix ætlar að opna sitt fyrsta stóra framleiðsluver í Evrópu í haust og varð Spánn fyrir valinu, nánar tiltekið Madríd. Spænskumælandi markaður Net- flix fer sístækkandi og aukin eftir- spurn er eftir kvikmyndum og sjón- varpsþáttaseríum á spænsku. Sé allt starfslið talið með sem þarf í kvikmyndaverið, sem verður afar stórt, er talið að Netflix muni skapa um 13.000 ný störf í borginni. KVIKMYNDIR Verðandi sumar- smellur bíóhúsanna, mamma Mia! Here We Go Again! skartar popp- stjörnunni Cher í einu hlutverk- anna. Cher lagði afar hart að sér til að ná dönsunum fullkomlega en í viðtali við ShowBiz sagði einn danshöfundur myndarinnar að Cher hefði verið sú sem vildi vinna lengst og ekki hætt fyrr en hreyfingarnar voru fullkomnar. Það hefði jafnvel verið erfitt fyr- ir danshöfundana að komast heim á skikkanlegum tíma því Cher vildi ekki hætta. „Bara einu sinni enn,“ sagði hún til að fá þá til að halda áfram að kenna sér. Cher er 72 ára gömul og sagði einnig frá því í viðtalinu að hún hefði verið dauðhrædd við að taka að sér hlutverkið, meðal annars vegna þess að leikarahóp- urinn hafði starfað áður saman og hún ný þar inn. Allt hefði þó gengið afskaplega vel, hópurinn verið afar elskulegur við hana og sérstaklega hefði verið gott að Meryl Streep hafði auga með henni þegar hún lék í sínum sen- um. Það hefði fyllt Cher örygg- iskennd. Lagði hart að sér Cher og Meryl Streep náðu vel saman.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.