Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 19
29.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Á Seyðisfirði var um tuttugu stiga hiti þótt varla hafi séð til sólar. Við áttum bókað hjá Seyðisfjörður Tours sjóstangaveiði hjá skip- stjóranum á Haföldunni, honum Þórbergi. Eft- ir frábæra pítsu á Bistro Skaftfell og stopp á myndlistasýningunni Kapli á Skaftfelli, var haldið út á haf. Mokuðu krakkarnir þorski um borð þannig að báturinn svignaði. Kannski smá ýkjur, en sannleikurinn er sá að um þrjátíu þorskar týndu lífi þarna þetta kvöld og verða á boðstólum næstu vikurnar. Þorskur í matinn næstu vikurnar Á leið frá Seyðisfirði til Akureyrar var ákveðið að taka krók á leið og stoppa við Dettifoss, enda höfðu krakkarnir aldrei komið þangað. Bíl- stjórinn klikkaði aðeins á því og beygði að Dettifossi þar sem aðeins grýttur malarvegur liggur að honum, um 30 kílómetra leið. Það var ekki skemmtileg keyrsla! Síðar uppgötv- aðist að hefði ég keyrt aðeins lengra hefði verið greið leið að fossinum, hinum megin frá. Man það næst! Dettifossinn ógurlegi Zipline! Á Vík í Mýrdal er hægt að upplifa skemmtilegt ævintýri hjá Zipline. Ferðin tekur um tvo tíma og hentar öllum aldurshópum. Haldið var af stað í létta göngu um fagurt landslag við Vík. Í tvígang eru ferðalangar „hengd- ir“ í vír og leyft að svífa yfir gil og læki. Á einum stað þarf svo að stökkva yfir læk, þó fastur í vír, og kallast það „Leap of Faith“. Það mátti alveg heyrast öskur í þessari ferð, og þá helst hjá móð- urinni! Humarinn á Höfn Á Höfn í Hornafirði var gist í eina nótt og ákváðu svangir ferðalangar að leyfa sér smá lúxus í ferðinni. Á Pakkhúsinu við höfnina var boðið upp á eðalhumar og rann hann ljúf- lega niður. Það var frekar reikningurinn sem stóð aðeins í manni, en satt að segja var hann alveg þess virði. Hvíldardagar á Akureyri Í höfuðstað Norðurlands var staldrað við í tvær nætur og það var gott að hvíla sig á keyrslunni. Krakkarnir notuðu tímann til að hanga í tölvunni, fara í sund og liggja í leti. Móðirin notaði tímann til að kíkja í búðir og versla smávegis en auðvitað má alltaf bæta á sig fötum. Að sjálfsögðu var steiktur þorskur í raspi um kvöldið en aflinn hafði verið fluttur frá Seyðisfirði í pappakassa fullum af ísmol- um. Það var vel borðað og höfðu allir á orði að betri fiskur hefði ekki smakkast. Morgunblaðið/Kristján Þegar farið er á Jökulsárlón má ekki sleppa því að kíkja niður á strönd. Klakastykkin liggja þar á svarta sandinum eins og demantar í auðninni, enda kallar ferðamaðurinn ströndina Black Diamond Beach. Demantar á ströndu Jökulsárlón birtist skyndilega eins og staður frá annarri plánetu! Það stirndi á ísjakana sem stóðu upp úr speg- ilsléttu lóninu; sumir undur bláir, aðrir hvítir, og enn aðrir gráir af sandi. Sólin skein í heiði og áttum við pant- aða siglingu hjá Glacier Lagoon. Siglt var í rólegheitum á milli jaka og fengu krakkarnir að bragða á klaka úr jöklinum sem að sögn fararstjórans á bátnum var þús- und ára gamall. Einstök upplifun sem hægt er að mæla með, a.m.k. í blíðskaparveðri! Þúsund ára gamall ís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.