Morgunblaðið - 13.08.2018, Side 1
Morgunblaðið/Eggert
Bóksala Samdráttur hjá útgáfum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ekki hefur tekist að snúa við sam-
drætti í bóksölu síðasta árið. Velta
bókaútgefenda dróst saman um 5%
árið 2017 og sú þróun hefur haldið
áfram á þessu ári. Samdrátturinn
nemur alls um 36% á tíu ára tímabili.
„Sú skelfilega mynd sem við sýnd-
um fyrir ári hefur versnað þónokkuð.
Það undirstrikar mikilvægi þess að
stjórnvöld standi við gefin loforð og
virðisaukaskattur af bókum verði af-
lestur, hefur átt erfitt uppdráttar
þegar kemur að samkeppni við nýj-
ustu tækni og vísindi,“ segir hann.
Eru bækur ekki of dýrar?
„Nei, verð á bókum hefur að
mestu staðið í stað á liðnum árum
þannig að ég tel alls ekki vera hægt
að benda á verðlag sem vandamál.
En auðvitað getur verðlækkun sam-
fara afnámi virðisaukaskatts orðið
mikil lyftistöng.“
numinn um áramót eins og talað hef-
ur verið um og sett fram í fjármála-
áætlun,“ segir Egill Örn Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Forlagsins.
Ef rýnt er í útgefna titla í Bókatíð-
indum er augljóst að þeim hefur ekki
fækkað að ráði síðustu ár. Auðvelt er
því að draga þá ályktun að færri ein-
tök seljist af hverri bók en áður.
Þegar Egill er spurður hvað valdi
þessum samdrætti nefnir hann að
samkeppni um tíma almennings hafi
stóraukist á liðnum árum. „Hefð-
bundnari afþreying, svo sem bók-
Bóksala dregst enn saman
Fimm prósenta samdráttur hjá útgefendum í fyrra Afnám vsk gæti hjálpað
MSamdráttur nemur … »4
M Á N U D A G U R 1 3. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 188. tölublað 106. árgangur
FATAHÖNNUN ER
KREFJANDI OG
GEFANDI NÁM KOMST Í ÚRSLIT Á EM
ERUM ENN AÐ
UPPGÖTVA
NÝJAR HLIÐAR
VALGARÐ REINHARDSSON ÍÞRÓTTIR ÍSLENSKAR FORNSÖGUR 26GUÐBJÖRG ÞÓRA 12
Björgunarsveitarmönnum úr Grundarfirði tókst á níunda tímanum í gær-
kvöldi að reka út vöðu um 100 grindhvala sem voru innlyksa í Kolgrafafirði á
Snæfellsnesi. Það var síðdegis sem hvalina bar inn á fjörðinn, en þaðan kom-
ust þeir ekki út af sjálfsdáðum enda þungir straumar í mynni fjarðarins. Bíða
þurfti fram á kvöld eftir útfallinu og þá gengu aðgerðirnar líka upp.
„Við rákum grindhvalina vel út fjörðinn, svo fóru þeir að synda og stungu
af út á haf,“ segir Einar Strand, formaður svæðisstjórnar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar á Snæfellsnesi, í samtali við Morgunblaðið. Ekki verður
fylgst sérstaklega með hvölunum í framhaldinu og koma verður í ljós hvort
þeir fara aftur inn á fjörðinn.
„Þetta var mikið sjónarspil, ég hef aldrei séð grindhvali áður stökkva og
þekki ég þó talsvert til þessara skepna, enda er ég að hálfu frá Færeyjum þar
sem þessar skepnur sjást oft,“ segir Alfons Finnsson, fréttaritari Morgun-
blaðsins, sem var á staðnum. Mannfjölda dreif að þegar þetta gerðist og
fylgdist fólk með hvölunum og björgunaraðgerðunum. sbs@mbl.is
Hundrað hvölum
bjargað á útfallinu
Stóra grindhvalavöðu bar inn á Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Tilþrif Björgunarsveitarmenn sigldu bátum út fjörðinn með hvalina á undan sér og komu þeim undir Kolgrafafjarðarbrú. Eftir það syntu þeir sinn sjó.
Sprettur Fjölda fólks dreif að enda fylgdi hvölunum mikið sjónarspil.
30 þúsund fögnuðu
Fiskideginum mikla
í blíðviðri á Dalvík
Röð Löng bílaröð var í Hvalfirði.
Kristján
Björnsson, nýr
vígslubiskup í
Skálholti, boðar
að þjóðkirkjan
láti rödd sína
heyrast í álita-
efnum dagsins.
Þar tiltekur hann
umhverfis- og
húsnæðismál.
Tala þurfi máli þeirra sem eiga í
basli. Íslenska þjóðkirkjan reki
ekki sjúkrahús, dvalarheimili fyrir
aldraða eða búðir fyrir flóttafólk
líkt og kirkjustofnanir í Evrópu en
þurfi að taka undir kröfur um rétt-
læti og ábyrgð. »6
Kirkjan beiti sér í
álitaefnum dagsins
Kristján Björnsson
Trausti Magnússon og Hulda
Jónsdóttir eru elstu núlifandi hjón á
Íslandi. Trausti fagnar 100 ára af-
mæli sínu í dag en þrjú ár eru í að
Hulda fagni sama áfanga. Dóttir
þeirra segir æðruleysi og reglu-
legar máltíðir geta skýrt háan ald-
ur og góða heilsu foreldra sinna.
Hjónin voru vitaverðir í Sauðanes-
vita í 39 ár en Sauðanes var ekki í
sambandi við veg í átta af þeim ár-
um. Þá var einfaldlega gengið yfir
til Siglufjarðar til þess að komast í
verslun. Hjónin eru því vön útiveru
og fer Trausti gjarnan í göngur
með dóttur sinni. »4
Nálgast tvö hundruð
ára aldur samanlagt
Fiskidagurinn mikli var haldinn
með pomp og prakt á laugardag og
sóttu u.þ.b. 30 þúsund manns hátíð-
ina þetta árið, svipaður fjöldi og á
síðasta ári.
Margir héldu heim á leið frá Dal-
vík í gær og þegar líða fór á daginn
myndaðist löng bílaröð frá Hval-
fjarðargöngum og inn Hvalfjörð og
var fram á kvöld.
Líkt og fyrri ár voru veðurguð-
irnir blíðir við Dalvíkinga og gesti
þeirra, en góðviðri var á Dalvík alla
helgina. Margir tóku þátt í veglegri
hátíðardagskránni og nutu
skemmtiatriða. Hátíðin náði há-
punkti á laugardag með stór-
tónleikum og glæsilegri flug-
eldasýningu.
Júlíus Kristjánsson var heiðraður
fyrir þátt sinn í uppbyggingu og
umsjón með skipstjórnarfræðslu á
Dalvík. Ragnheiður Sigvaldadóttir,
eiginkona hans, tók við viðurkenn-
ingu fyrir hans hönd. »10