Morgunblaðið - 13.08.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Grensásvegi 13
108 Reykjavík
s 570 4800 – 820 6511
Þorragata 5, 101 Reykjavík
Björt og falleg 149,8 fm. íbúð á 4ðu hæð í lyftuhúsi, að meðtöldum bílskúr og
sérgeymslu í þessu eftirsótta fjölbýlishúsi fyrir 63ja ára og eldri við Þorragötu.
Íbúðin er öll innréttuð með ljósum viði, beyki og hvítt/beyki, og lítur vel út. Mjög
stór stofa með útgengi á skjólsælar svalir til suðurs sem eru yfirbyggðar að hluta.
Innangengt er úr bílskúr í geymslu og þaðan í sameign. Útsýnis nýtur frá stofum
og bóka-/sjónvarpsherbergi yfir sjóinn, að Bláfjöllum, Álftanesi og Reykjanesinu.
Tvö rúmgóð svefnherbergi. Húsvörður. Íbúðin er laus fljótlega. Verð 79,9 millj.
Nánari upplýsingar veitir Halla – s 659 4044 – halla@gimli.is
Opið hús þriðjudaginn
14. ágúst frá kl. 17:15 - 17:45
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið/Heiddi
Vogur Þrír bílar voru skemmdir á
bílastæði sjúkrahússins í sumar.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Skemmdarverk voru unnin á bílum
þriggja starfsmanna á sjúkrahúsinu
Vogi fyrr í sumar. Valgerður Á. Rún-
arsdóttir, forstjóri sjúkrahússins,
staðfestir að tilvikið hafi komið upp
og er málið til rannsóknar hjá lög-
reglu. Hún segir að tilvik sem þessi
séu afar fátíð, en stöku mál af þessu
tagi hafi þó komið upp.
Valgerður nefnir þó tilvik sem
varð á síðasta ári þegar maður
kveikti í eigin bíl á bílaplaninu. „Þá
urðu skemmdir í kring líka, á mal-
bikinu undir, trjánum í kring og bíl
við hliðina sem brann. Enginn slas-
aðist sem betur fer,“ segir hún.
Í skýrslutöku hjá lögreglu gaf
maðurinn þá ástæðu eina fyrir
verknaðinum að hann hefði ekki
komist að í meðferð á Vogi. Að því er
fram kemur í gæsluvarðhalds-
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur
var maðurinn að mati læknis ekki í
bráðaþörf fyrir afeitrun eða með-
ferð.
Verði ekki fyrir tjóni
Spurð hvort Vogur komi til móts
við starfsfólk sjúkrahússins með ein-
hverjum hætti vegna eignatjónsins
segir Valgerður að reynt sé að sjá til
þess að starfsfólkið verði ekki fyrir
fjárhagslegu tjóni á meðan það er við
störf.
„Við reynum að koma til móts við
starfsfólkið þegar svona kemur fyrir
og vera hjálpleg í því,“ segir hún.
„Fólk er ábyrgt fyrir eigum sínum
almennt séð. Síðan er það með
tryggingar og þær borga tjón að
hluta, en það er alltaf einhver sjálfs-
ábyrgð og slíkt. Það er þá tjón sem
fólk verður fyrir sem við viljum
koma til móts við og hjálpum eða
borgum. Þetta er rætt við þá ein-
staklinga sem í hlut eiga. Við viljum
ekki að fólk verði fyrir tjóni af þessu.
Stundum borga tryggingarnar al-
veg, það fer eftir því hvaða trygg-
ingar fólk er með á bílunum. Það er
sjálfsagt að við pössum upp á okkar
starfsfólk,“ segir Valgerður.
Spurð hvort gerandinn hafi tengsl
við sjúkrahúsið kveðst hún ekki vita
með vissu hver var að verki.
„Þetta var framkvæmt úti á plani.
Viðkomandi var ekki inni á sjúkra-
húsinu á þessari stundu. Það er verið
að rannsaka þetta en ég veit ekki
hvort einhver niðurstaða er komin í
málið. Það er engin ástæða fyrir okk-
ur að vera að giska á hver var að
verki. Þetta er fyrir lögregluna að
vinna,“ segir hún. Ekki náðist í lög-
reglu við vinnslu fréttarinnar.
Skemmdir unnar á bílum starfsfólks
Skemmdarverk framin á þremur bílum á bílastæði Vogs Fátítt að skemmdarverk verði á stæðinu
Vogur hleypur undir bagga með starfsfólkinu vegna eignatjónsins Ekki er vitað hver var að verki
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Áskell Örn Kárason varð í gær al-
þjóðlegur meistari í skák á EM öld-
unga í Drammen í Noregi þar sem
hann hafnaði í öðru sæti í flokki 65
ára og eldri. Var hann hársbreidd frá
því að landa Evrópumeistaratitlin-
um, en þar sem Áskell var jafn efsta
manni með 6½ vinning varð hann
sjálfkrafa alþjóðlegur meistari í
skák. Titillinn er sá næsti fyrir neðan
stórmeistaratitil.
Áskell fæddist árið 1953 og keppti
því í flokknum í fyrsta sinn. Hann
vann alla sem voru stigalægri en
hann og gerði jafntefli við alla sem
voru stigahærri. Hann var að vonum
sáttur við árangurinn þegar blaða-
maður náði af honum tali í gær-
kvöldi, en hann hafði ekki gert sér
grein fyrir því að hann ætti mögu-
leika á að verða alþjóðlegur meistari.
„Þetta kom mjög á óvart. Ég áttaði
mig ekki á því að ég ætti möguleika á
þessu. Ég horfði fyrst og fremst á
titilinn sjálfan og vonaðist í dag til
þess að ég næði honum. Þetta var
mjög tæpt. Það gekk ekki og ég
hugsaði með mér að maður tæki
bara við silfurverðlaununum. Síðan
kom þetta mjög á óvart. Það að ég
skuli vera samsíða efsta manni dug-
ar til að fá þennan titil. Það er mjög
gleðilegt og þetta er stór viðurkenn-
ing,“ segir Áskell.
Áskell Örn Kárason varð
alþjóðlegur meistari í skák
Tíðindin komu mjög á óvart Í öðru sæti á EM öldunga
Meistari Áskell Örn tekur við verð-
launum sínum í Noregi í gær.
Taka af-
stöðu um
mánaðamót
Mennta- og
menningar-
málaráðuneytið
mun taka af-
stöðu til þess
hvort Rík-
isútvarpinu beri
að hafa auglýs-
ingasölu sína í
dótturfélagi
þegar áætlun
um aðgerðir til
að styrkja rekstrarumhverfi einka-
rekinna fjölmiðla á Íslandi verður
kynnt um mánaðamótin. Er áætl-
unin unnin með hliðsjón af skýrslu
um rekstrarumhverfi einkarekinna
fjölmiðla.
Sú afstaða Símans kom fram í
Morgunblaðinu á laugardag að fyr-
irtækið teldi RÚV óheimilt að selja
auglýsingar sökum þess að starf-
semin væri ekki í dótturfélagi líkt og
kveðið væri á um í ákvæði laganna.
Fram kom að RÚV ynni að úrlausn
lagalegra álitaefna með ráðuneytinu
varðandi ákvæðið.
„Við tökum afstöðu til þessara
lagatæknilegu atriða um leið og við
kynnum heildarnálgun á fjölmiðla-
málin. Við stefnum að því að gera
þetta allt á sama tímapunkti,“ segir
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra. jbe@mbl.is
Lilja
Alfreðsdóttir
Auglýsingasala
RÚV til umfjöllunar
Íslenski hesturinn er löngu orðinn víðfrægur. Það er eins með hann og
aðra nafntogaða, almenningur vill í sífellu taka sjálfu með honum. Þessar
ferðakonur hafa ekki látið orðspor íslenska hestsins fram hjá sér fara og
smelltu af sér mynd með nokkrum slíkum í Mosfellsdalnum í gær. Nú geta
þær farið kátar til síns heima með sönnun þess að hafa hitt hinn rómaða ís-
lenska hest.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslenski hesturinn eftirsóttur í sjálfsmyndatökur
Myndataka í Mosfellsdal