Morgunblaðið - 13.08.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Fullkominn
ferðafélagi
Fréttastofa Ríkisútvarpsinssagði frá því af áfergju í
fyrstu frétt í hádeginu í gær að
meirihluti Breta vildi nú vera í
Evrópusambandinu en ekki yfir-
gefa það. Þetta eru þó engin stór-
tíðindi og ekki fyrsta könnunin
sem gefur
þessa niður-
stöðu. Kann-
anir hafa ver-
ið á ýmsa
vegu. Sú
„könnun“ sem
máli skiptir,
kosningin um
það hvort
Bretland ætti
að ganga úr Evrópusambandinu,
gaf hins vegar þá niðurstöðu að
kjósendur vildu fara.
Eftir það var verkefni stjórn-málamanna það eitt að fram-
kvæma þessa ákvörðun kjósenda
og reyna að gera það með sem far-
sælustum hætti. Fjöldi stjórnmála-
manna, auk margra annarra, til
dæmis úr viðskiptalífi og fjöl-
miðlum, hélt þrátt fyrir kosninga-
úrslitin áfram kosningabaráttu
fyrir því að Bretland færi ekki úr
Evrópusambandinu.
Í þessu efni hafa þeir fengiðdygga aðstoð embættismanna
Evrópusambandsins. Einhvers
staðar væri það væntanlega kallað
samsæri gegn Bretlandi og sér-
stakur saksóknari skipaður til að
fara yfir samtöl breskra andstæð-
inga Brexit og embættismanna í
Brussel.
Þar sem önnur hliðin í Bretlandihefur unnið að því að fram-
kvæma þjóðarviljann en að
minnsta kosti hluti af hinni hliðinni
gert allt til að koma í veg fyrir að
hann nái fram að ganga þarf könn-
un eins og sú sem kynnt var í gær
ekki að koma á óvart. En hún á
auðvitað engu að ráða. Kosninga-
úrslit þurfa að vera endanlega,
líka þau sem embættismönnum í
Brussel þóknast ekki.
Þórðargleði?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 15 heiðskírt
Akureyri 12 léttskýjað
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 17 léttskýjað
Kaupmannahöfn 14 rigning
Stokkhólmur 13 skúrir
Helsinki 14 skúrir
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 26 heiðskírt
Dublin 19 skýjað
Glasgow 16 súld
London 19 rigning
París 29 heiðskírt
Amsterdam 24 heiðskírt
Hamborg 21 skýjað
Berlín 27 heiðskírt
Vín 28 heiðskírt
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 34 skúrir
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 30 heiðskírt
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 28 léttskýjað
Montreal 26 skýjað
New York 26 alskýjað
Chicago 27 þoka
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:14 21:53
ÍSAFJÖRÐUR 5:04 22:12
SIGLUFJÖRÐUR 4:46 21:56
DJÚPIVOGUR 4:39 21:26
Engin skýring finnst enn á því hvað-
an stór olíuflekkur sem sást á Eyja-
firði, skammt frá Hrísey, fyrir einni
viku geti verið kominn. „Málið er
ennþá hálfgerð ráðgáta eins og stað-
an er núna,“ sagði Ólafur A. Jónsson,
sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, í
samtali við mbl.is í gær. Sýni úr
flekknum, sem sjómenn á hvalaskoð-
unarbát tóku, reyndist ónothæft og
því ekki hægt að nota það til sam-
anburðar við olíu úr skipum sem
komu til greina við rannsókn þessa
máls.
Að ummáli var olíuflekkurinn
áætlaður um 1,6 km á lengd og 300-
400 metrar á breidd. Þrjú skip voru
upprunalega til skoðunar sem mögu-
legir mengunarvaldar en fljótlega
var útilokað að lekinn hefði komið
frá tveimur þeirra. Lögregla ræddi
við skipstjóra og vélstjóra þriðja
skipsins en þeir neituðu sök. Sýni úr
því skipi átti að nota til samanburðar
en það reyndist ónothæft, þannig að
frekari rannsókn fór út um þúfur.
Útilokað hefur verið að olíulekinn
komi úr skipsflaki á hafsbotni. Vera
kann að olían hafi komið frá smábát,
en erfitt þykir að sanna þar nokkuð
af eða á.
„Málið er í biðstöðu eins og staðan
er núna. Við munum ekkert aðhafast
frekar að svo komnu máli nema nýj-
ar upplýsingar eða gögn berist,“ seg-
ir Ólafur. thor@mbl.is/sbs@mbl.is
Olíuflekkurinn er áfram ráðgáta
Flekkur á Eyjafirði Sýni voru ónothæf Sönnun erfið Málið er í biðstöðu
Hrísey Olía fannst á Eyjafirði.
Franskir ferðamenn voru staðnir að
verki við utanvegaakstur á svo-
nefndri austurleið á Möðrudals-
öræfum síðdegis á laugardag.
Frakkarnir voru sex talsins á þrem-
ur jepplingum á leið á hálendið en
ekið er þessa leið til að komast í
Kverkfjöll, Öskju og að Herðubreið.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar á
Austurlandi komust ferðamennirnir
ekki yfir vað á Þríhyrningsá. Þá tóku
þeir það til bragðs að fara út fyrir
veginn og yfir ána á öðrum stað. Til-
kynnt var um hvað væri í gangi og
fóru lögreglumenn af Norðurlandi
eystra sem voru í hálendiseftirliti og
gerðu ráðstafanir. Gögn liggja fyrir
og hafa Frakkarnir verið boðaðir á
lögreglustöðina á Egilsstöðum hvar
málið verður til lykta leitt með með
sektargreiðslu. Hún verður að lág-
marki 50 þúsund krónur en að há-
marki 500 þúsund krónur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hálendið Öslað yfir ána á smájeppa.
Frakkarnir
utan vegar