Morgunblaðið - 13.08.2018, Blaðsíða 9
Ljósmynd/ Brynjúlfur Brynjólfsson
Gransöngvari Lítill og fallegur.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Helsingjum hefur fjölgað mikið í
sumar á svæðinu við sunnanverðan
Vatnajökul. Viðkoman er góð; varp-
pör á svæðinu voru um 2.000 og ætla
má að á bilinu 4.000-5.000 ungar hafi
komist á legg. „Helsinginn verpir
mikið í Skúmey í Jökulsárlóni á
Breiðamerkursandi, sem er friðuð
og því kjörland fyrir fuglinn,“ segir
Brynjúlfur Brynjólfsson hjá Fugla-
athugunarstöð Suðausturlands á
Höfn í Hornafirði í samtali við Morg-
unblaðið.
Svelt í lóninu
Líf kríunnar við Jökulsárlónið er
hins vegar í vanda. Áætlað var að um
1.000 pör myndu verpa í vor og úr
eggjum koma um 1.500 ungar. Þegar
svo kom fram í júlímánuð varð fugla-
athugunarfólki ljóst að eitthvað hefði
farið úrskeiðis. Aðeins sáust um 20
fleygir kríuungar á svæðinu en aðrir
voru horfnir og væntanlega dauðir.
Má gera ráð fyrir að vargur eða
skúmur hafi étið hræin, að sögn
Brynjúlfs.
Ástæðu þessa telur hann þá senni-
legasta að fuglinn hafi skort æti, sem
gjarnan sé loðna eða sandsíli sem
syndi inn í lónið. Breytist það, þó
ekki sé nema í fáeina daga, svelti
ungarnir og sé bani búinn.
Af öðru markverðu í fuglalífinu við
Hornafjörð má nefna að þar verpti
gransöngvari í annað sinn svo stað-
fest sé. Þrír fullorðnir fuglar voru
merktir í vor og fjórir ungar þegar
leið á sumar.
Gransöngvari er flækingur á Ís-
landi þótt algengur sé í Evrópu.
Hann verpti í fyrra sinnið hér á landi
fyrir fimm til sex árum og þá einnig
sem nú í Einarslundi, í útjaðri
byggðarinnar á Höfn í Hornafirði.
Helsinginn í sókn og gransöngvari mættur
Kríuvarp við Jökulsárlón í vanda 1.500 ungar en aðeins 20 komust á legg Ætisskortur er skýring
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Nú er það fyrst og fremst þakklæti
og ánægja sem ég hef fram að færa,“
segir Gunnlaugur Bragi Björnsson,
formaður Hinsegin daga, um Hin-
segin daga sem fóru fram í Reykja-
vík frá þriðjudegi til sunnudags í síð-
ustu viku.
Á laugardaginn var hápunktur há-
tíðarinnar, sjálf Gleðigangan, en
Gunnlaugur segir vel hafa tekist til.
„Þetta leið allt saman mjög hratt
en gekk alveg ótrúlega vel og við er-
um gríðarlega ánægð með gönguna í
ár.“
Enn fleiri viðburðir voru á hátíð-
inni en áður hefur verið. „Við-
burðum hefur smám saman fjölgað,
ár frá ári. Við fórum núna í fyrsta
skipti yfir 30 viðburði, sem varð til
þess að dagskráin var nokkuð þétt
og stundum nokkrir viðburðir á
sama tíma. Við reyndum samt að
skipuleggja þetta þannig að þau
allra hörðustu gætu mætt alls stað-
ar,“ segir Gunnlaugur.
Erlendum gestum hefur fjölgað á
hátíðinni, að mati Gunnlaugs.
„Ég held að þeim sé alltaf að
fjölga. Ég heyrði til dæmis af því að
hinsegin ferðaskrifstofan Pink Ice-
land hefði aldrei verið með fleiri
gesti í ferðum á sínum vegum í
kringum Hinsegin daga en núna.“
70-80 þúsund manns
Hann segir erfitt að áætla hversu
margir hafi verið í Gleðigöngunni
þetta árið.
„Mín tilfinning er alla vega sú að
það hafi verið svipaður fjöldi og í
fyrra, þá held ég að það hafi verið
talað um 70-80 þúsund manns. Það
voru margir viðburðir í gangi, fleiri
en okkar, og Reykjavík iðaði af lífi.“
Í tilkynningu frá Hinsegin dögum
var sérstaklega tekið fram að ófiðr-
aðir steggir og fjaðralausar gæsir
væru ekki velkomin í Gleðigönguna.
Þeim hefur áður verið meinað að
vera með en í ár var vakin sérstök
athygli á þessu vegna atviks sem
kom upp í Druslugöngunni. Þá var
gangan gerð að vettvangi fyrir
steggjun og þótti það sýna þol-
endum kynferðisofbeldis mikla
óvirðingu.
„Ég varð ekki var við gæsanir eða
steggjanir í göngunni í ár. Því miður
sjáum við það þó annað slagið,“ segir
Gunnlaugur, sem telur líklegt að
hann bjóði sig aftur fram til for-
manns Hinsegin daga á næsta ári.
»29
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mótorhjól Lesbíski mótorhjólaklúbburinn Dykes on Bikes lét sig ekki vanta
í Gleðigönguna þetta árið og kaus að hjóla fremur en að ganga.
Kátur Hjörtur Magni Jóhannsson
fríkirkjuprestur við Tjörnina.
„Reykjavík
iðaði af lífi“
Mikil ánægja með Hinsegin daga
Þéttari dagskrá en áður hefur verið