Morgunblaðið - 13.08.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Alls þarf 15.000 tonn af malbiki í
endurbætur á Suðurlandsvegi frá
Sandskeiði austur í Hveragerði sem
nú standa yfir. Starfsmenn Hlaðbæj-
ar-Colas hafa unnið að þessu síðan
fyrir helgi, en vegna rigningar þurfti
að gera hlé á framkvæmdum í gær,
sunnudag. Vænst er til þess að halda
megi áfram í dag, en menn gefa sér
vikuna framundan í verkefnið.
„Þetta hefur gengið nokkuð greið-
lega og ökumenn eru tillitssamir,“
segir Sigþór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hlaðbæjar-Colas, í
samtali við Morgunblaðið. „Við tök-
um jafnan aðra akreinina í einu og þá
er allri umferð beint á hina á meðan.
Þegar við vorum að vinna í Kömbum
og á Hellisheiðinni var reyndar um-
ferðinni beint á meðan um Þrengslin
sem gerði okkur starfið mun þægi-
legra en ella. “
Lagt er nýtt malbik á nefndum
hluta Suðurlandsvegar þar sem slit
er komið í veginn; þá bæði á heilum
köflum og eins minni blettir. Þannig
þurfti að leggja á stóra kafla í Kömb-
unum og eins á Sandskeiði, fyrir neð-
an Litlu-kaffistofuna. Alls kosta
þessar endurbætur um 500 milljónir
króna en Vegagerðin ver í ár alls 12
milljörðum króna til viðhalds á veg-
um landsins borið saman við 5,5
milljarða kr. á síðasta ári. Er það
gert meðal annars til að mæta upp-
safnaðri viðhaldsþörf í vegakerfinu,
en hægagangur í þeirri vinnu var
gagnrýndur víða. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Malbik Tugir manna koma að framkvæmdum í Svínahrauni og þar í kring.
Malbikað fyrir 500
milljónir króna
Miklar framkvæmdir í Svínahrauni
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Talið er að allt að 30 þúsund manns
hafi sótt Fiskidaginn mikla sem hald-
inn var á Dalvík um helgina. Er það
svipaður fjöldi og sótti hátíðina í
fyrra, en hún hefur fyrir löngu fest
sig í sessi og var nú haldin í 18. sinn.
Nokkur erill var hjá lögreglu vegna
hátíðarinnar, og eftir að flugeldasýn-
ingu lauk á laugardagskvöld var nán-
ast samfelld bílaröð frá Dalvík til
Akureyrar. Allt gekk þó vel fyrir sig,
að mati lögreglu, sem þakkar því að
ökumenn voru þolinmóðir.
Fyrstu atburðir Fiskidagsins
mikla voru snemma í fyrri viku en há-
tíðin hófst fyrir alvöru með fiskisúp-
unni á föstudagskvöld. Svo var fjöl-
breytt dagskrá á laugardaginn, þar
sem öllum bauðst að bragða á fisk-
meti sem Samherji lagði til. Fjöl-
margir aðrir lögðu í púkkið og útkom-
an þótti góð. „Ég er hæstánægður
með hvernig til tókst. Frábærir sjálf-
boðaliðar lögðu sig alla fram við und-
irbúning og framkvæmd og hingað
komu gestir sem sneru ánægðir til
baka. Og nú sem endranær vorum við
heppin með veður; í þess átján skipi
sem Fiskidagurinn mikli hefur verið
haldinn hefur aldrei rignt. Það er ein-
stök heppni,“ sagði Júlíus Júlíusson,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Nú sem endranær var á Fiskideg-
inum mikla heiðrað fólk sem hefur
haft áhrif á atvinnusögu og íslenskan
sjávarútveg. Viðurkenning þessi féll
að þessu sinni í skaut Júlíusi Krist-
jánssyni fyrir hans þátt í uppbygg-
ingu og umsjón með skipstjórnar-
fræðslu á Dalvík. - Á áttunda áratug
síðustu aldar hóf Júlíus að kenna
nemendum við Gagnfræðaskóla Dal-
víkur skipstjórnarfræði og meðferð
veiðarfæra. Af því spratt að sett var á
fót skipstjórnarbraut við Dalvíkur-
skóla og Júlíus Kristjánsson hafði
umsjón með deildinni. Deildin var
starfrækt í um 20 ár og þaðan útskrif-
aðist fjöldi nema sem hafa orðið far-
sælir skipstjórnarmenn í dag. Það
var Ragnheiður Sigvaldadóttir, eigin-
kona Júlíusar, sem fyrir hans hönd
tók við verðlaunagrip, sem Jóhannes
Hafsteinsson smíðaði.
Fiskidagsgestir Jakob Hörður Magnússon sem rekur
Hornið í Kvosinni í Reykjavík og fjölskylda hans.
Aufúsugestir Fólk víða frá sótti Fiskidaginn mikla svo
sem þessir þjóðbúningaklæddu Færeyingar.
Hákarl Gunnar Reimarsson, sjómaður á Dalvík,
sýndi Fiskidagsgestum vinnubrögð við verkun.
Gæslufólk Mæðginin Snorri Eldján Hauksson og Katrín Sig-
urjónsdóttir sveitarstjóri röltu um tjaldsvæðið og rukkuðu.
Dalvíkurfjölskylda Frá vinstri; Kristján Þór Júlíusson ráðherra, Guðbjörg
Ringsted, Erna Friðfinnsdóttir, Ragnheiður Sigvaldadóttir, Sigvaldi Júlíus-
son útvarpsþulur, Ásgeir Júlíusson bóndi í Danmörku og Ann Köj.
Ljósmynd/Atli Rúnar
Viðurkenning Ragnheiður Sigvaldadóttir tók við heiðursviðurkenningu Fiskidagsins mikla fyrir hönd Júlíusar
Kristjánssonar, eiginmanns síns. Henni á hægri hönd er Svanfríður Jónasdóttir, fv. bæjarstjóri og þingmaður.
Einstök heppni á Fiskidegi
30 þúsund gestir á Dalvík Í 18. sinn og aldrei rigning