Morgunblaðið - 13.08.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Þín eigin skrifborðskæling!
Stjórnaðu hitastiginu við
vinnustöðina þína.
Kælitæki, rakatæki og lofthreinsitæki,
allt í einu tæki. Til í hvítu og svörtu.
Kynningarverð aðeins kr. 37.227 m.vsk.
Parker-könnunarfari bandarísku geimvísindastofnunar-
innar NASA var skotið á loft frá skotpalli á Canaveral-
höfða í Flórída í gærmorgun. Geimfarinu er ætlað að
rannsaka sólina, kórónu hennar og sólvinda. Mun farið
verða næstu sjö ár á sporbaug sólar og fer nær henni en
nokkurt annað geimfar hefur gert.
AFP
Leiðangur Geimfarinu er ætlað að komast í „snertingu“ við sólina, en nálægasti punktur þess verður í um sex millj-
ón km fjarlægð frá yfirborði sólar, sem þó telst ansi nálægt. Þá mun farið ná hraða sem nemur um 700 þús. km/klst.
Á ógnarhraða til sólarinnar
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Lögregla í Washington í Bandaríkj-
unum var með talsverðan viðbúnað
vegna fjöldafundar hvítra þjóðern-
issinna þar í gær. Markaði gærdag-
urinn þau tímamót að ár var liðið
frá átökum sem brutust út eftir
mótmæli í Charlottesville í Virginíu
þar sem ein kona lést og 19 slös-
uðust eftir að maður keyrði bíl inn í
hóp mótmælenda. Fregnir AFP-
fréttaveitunnar, CNN og New York
Times greindu frá því í gærkvöldi
að „lítill hópur“ hvítra þjóðernis-
sinna hefði gengið um stræti höf-
uðborgarinnar áður en hópurinn
safnaðist saman skammt frá Hvíta
húsinu þar sem fjöldafundurinn fór
fram.
Mótmæltu fjöldafundinum
Að því er fram kemur í frétt New
York Times mættu þúsundir á götur
höfuðborgarinnar til þess að mót-
mæla fjöldafundi þjóðernissinnanna
fyrir og meðan á honum stóð. Fram
kemur í fréttum AFP og CNN að
mótmælendur hafi verið mun fleiri
en hvítir þjóðernissinnar á svæðinu.
Þá fylgdi stór hópur lögreglumanna
hvítu þjóðernissinnunum á leið á
fundarstað og notaði einnig girðing-
ar til að halda mótmælendum frá.
Auk þess var lokað fyrir bílaumferð
á nokkrum götum borgarinnar.
Almenn skynsemi að mótmæla
Einn mótmælenda, Anjali Madan
Wells kennari, sagði við NY Times
að það væri „almenn skynsemi“ að
fara út og mótmæla hvítum þjóðern-
issinnum. Wells sagði einnig að hún
myndi ekki láta það viðgangast að
hópur fólks breiddi út boðskap um-
burðarleysis í sinni borg og bætti
við: „Ég tala við nemendur mína um
að gera það sem er rétt.“
Key Pritsker, einn skipuleggj-
enda mótmælanna, sagðist í samtali
við AFP bjartsýnn á að það tækist
að forðast átök milli hópa, en benti á
að það væri nauðsynlegt að senda
nýnasistum og stuðningsmönnum
þeirra sterk skilaboð. „Það væru
feikileg mistök ef við leyfðum fas-
istum einfaldlega að ganga um göt-
ur höfuðborgarinnar án allrar mót-
stöðu,“ sagði Pritsker við AFP.
Sami skipuleggjandi og í fyrra
Skipuleggjandi fjöldafundarins,
Jason Kessler, greindi frá því í um-
sókninni til þess að fá að halda við-
burðinn að á bilinu 100 til 400
manns væru væntanlegir á sam-
komuna, sem kallðist „Sameinum
hægrið 2“ (e. Unite the Right 2) og
var flokkuð sem „fjöldafundur fyrir
borgararéttindum hvítra“ að því er
fram kemur í umfjöllun CNN-
fréttastofunnar. Kessler skipulagði
einnig fundinn í Charlottesville í
fyrra til að mótmæla því að styttur
af hershöfðingjum suðurríkjanna í
Þrælastríðinu yrðu fjarlægðar.
Í fyrra bar talsvert á nasistaf-
ánum og kveðjum að hætti nasista í
göngu hægriöfgamanna og mikið
var um vopnaburð. Í ár hvöttu
skipuleggjendur fjöldafundarins
stuðningsmenn til að koma einungis
með fána Bandaríkjanna eða fána
suðurríkjanna og bað þá jafnframt
að forðast harkaleg viðbrögð gegn
mótmælendum, segir í frétt AFP.
Þá bannaði lögregla í Washington
vopnaburð á svæðum mótmælanna,
þ.m.t. þeirra sem bera vopn með
löglegum hætti.
Kallaði eftir samheldni
Á laugardaginn kallaði Donald
Trump Bandaríkjaforseti eftir sam-
heldni í samfélaginu og fordæmdi
kynþáttafordóma af öllu tagi.
„Óeirðirnar í Charlottesville fyrir
ári urðu til þess að sorglegt dauðs-
fall varð og fólk skiptist í fylkingar.
Við verðum að sameinast sem þjóð.
Ég fordæmi allar tegundir rasisma
og ofbeldis. Friður fyrir alla Banda-
ríkjamenn!“ skrifaði Trump á Twitt-
er á laugardagsmorgun, en hann
var gagnrýndur harðlega fyrir við-
brögð sín eftir óeirðirnar í Charl-
ottesville í fyrra.
Viðbúnaður vegna
fundar þjóðernissinna
Ár er liðið frá afdrifaríkum mótmælum í Charlottesville
AFP
Fjöldafundur Mikið lögreglulið fylgdi hópi hvítra þjóðernissinna í „rétt-
indagöngu“ þeirra að Hvíta húsinu í höfuðborg Bandaríkjanna í gær.
Börn fundust í gærkvöldi á lífi í
rústum byggingar sem jafnaðist við
jörðu í bænum Sarmada í Idlib-
héraði í Sýrlandi eftir að sprenging
varð í vopnageymslu.
Minnst 39 fórust í sprengingunni,
þeirra á meðal 12 börn. Björgunar-
sveitir notuðu í gær jarðýtur til að
hreinsa svæðið og bjarga fólki úr
rústunum.
Tvö hús eyðilögðust í sprenging-
unni en ekki er vitað hvað olli
henni. Vopnageymslan sem um
ræðir var í fjölbýlishúsi í bænum og
meðal þeirra sem létust eru ætt-
ingjar bardagamanna samtakanna
Hayat Tahrir al-Sham, bandalags
heilagra stríðsmanna sem tengdust
al-Qaeda-hryðjuverkasamtökunum.
Áður höfðu bardagamennirnir að-
setur í Homs þar til þeir voru
hraktir á brott.
SÝRLAND
Sprenging Tvö fjölbýlishús hrundu til
grunna við sprenginguna í Sarmada.
12 börn látin
eftir sprengingu
Yfirvöld í Suður-Svíþjóð hafa gefið
kúm leyfi til að sækja heim nektar-
strendur þar suður frá á meðan
hitabylgja gengur yfir. Þetta kem-
ur fram í frétt breska ríkisútvarps-
ins, BBC.
Nektarsinnar í Suður-Svíþjóð
hafa undanfarið kvartað yfir gesta-
komu skepna á strendur þeirra.
Nektarsinnarnir telja að heilsu
mannfólks sem sækir strendurnar
gæti stafað hætta af heimsóknum
kúnna. Kosið var um málið hjá yfir-
völdum vegna kvartananna og sam-
þykkt að leyfa kúnum að kæla sig á
nektarströndunum.
Vegna mikilla þurrka í Svíþjóð
hafa sumir bændur þurft að slátra
gripum sínum fyrr en vant er en
aðrir hafa ákveðið að fara með þá á
nærliggjandi nektarstrendur til að
kæla gripina. ragnhildur@mbl.is
MIKILL ÞURRKUR Í SVÍÞJÓÐ
Morgunblaðið/Eggert
Kýr Þessar íslensku kýr hafa það tals-
vert betra en frænkur þeirra í Svíþjóð.
Kýr heimsækja
nektarstrendur