Morgunblaðið - 13.08.2018, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Við lifum í heimi sí-
tengingar þar sem int-
ernetið er stór partur af
hversdagslífi flestra
einstaklinga á Vestur-
löndum. Flestir geta nú
til dags varla hugsað
sér líf án internetsins en
dagur án þess myndi
setja heiminn á hliðina.
Stór hluti mannlegra
samskipta fer fram í
netheimum og gegna
samfélagsmiðlar þar lykilhlutverki.
Þar ráða tvö fyrirtæki lögum og lofum
en þau þarf vart að kynna. Facebook
og Google. En eru þessir tæknirisar
kannski orðnir of stórir og valdamiklir
fyrir nútímann? Og hvernig á að
bregðast við þeirri ógn sem steðjar að
friðhelgi einkalífsins?
Gagnabankinn Google og sam-
félagsmiðlarisinn Facebook
Það var fyrir nokkrum mánuðum
sem ég var að kynna mér rafmyntina
bitcoin og ákvað því að gúgla verðlags-
breytingar myntarinnar á síðustu ár-
um. Eftir að hafa lesið mér til um raf-
myntina kíkti ég aðeins á Fésbókina til
þess að athuga hvort eitthvað merki-
legt væri að gerast í lífum kunningja
minna. Eins og venjulega var frétta-
veitan full af einhverjum mynd-
böndum sem fólk hafði líkað við en síð-
an kom ég auga á auglýsingu sem var
um fjárfestingasmáforrit ætlað kaup-
endum bitcoin og annarra rafmynta.
Þessi auglýsing kom að mér óvörum
og læddist að mér hugmynd um ein-
hvers konar njósnasamsæri.
Þessi saga er ekki ný af nálinni. Allt
sem maður gúglar er geymt. Þessar
upplýsingar geymir fyrirtækið ein-
hvers staðar í risastóru gagnaveri og
selur síðan hæstbjóðanda sem notfær-
ir sér þær til þess að beina ákveðnum
auglýsingum að tilteknum markhóp.
Þannig skjóta þessar auglýsingar upp
kollinum á samfélagsmiðlum en fólk
áttar sig ekki endilega á því hvers
kyns hugmyndafræði býr að baki. Það
er verið að reyna að fá einstaklinginn
til þess að kaupa meira með því að
tengja auglýsingarnar við áhugasvið
hans.
Google hefur um langa tíð verið alls-
ráðandi á markaði leitarvéla á heims-
mælikvarða. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem ég fann er Google með
90,46% hlutdeild, þar á eftir kemur
Bing með 3,13% og Yahoo í þriðja sæti
með 2,21%.[1] Á þessum tölum sést að
Google er með einokunarvald á hendi
sér en hin fyrirtækin ná ekki einu sinni
10%. Sömu sögu er að segja af Fa-
cebook. Á þeim fjórtán árum sem fyr-
irtækið hefur verið til hefur það marg-
faldast í stærð á hálfótrúlegan hátt og
eru notendurnir nú um 2 milljarðar
sem er um 27% mannkyns. Markaðs-
hlutdeild Facebook í samfélags-
miðlamarkaðnum á heimsvísu er
63,71%, Pinterest er með
14,88%, Youtube með
8,62% og Twitter
8,07%.[2]
Það muna eflaust
flestir eftir Facebooksk-
andalnum sem blossaði
upp í mars síðastliðnum
og varðaði ólögmæta
gagnasöfnun Cambridge
Analytica um tugmillj-
ónir notenda samfélags-
miðilsins. Notendurnir
voru látnir vita af gagna-
söfnuninni en það sem
kom ekki fram var sú
staðreynd að Cambridge Analytica
fékk einnig upplýsingar um tengslanet
einstaklinganna og þar með aðgang að
milljónum fleiri notendum. Þessar
persónuupplýsingar voru því næst
notaðar í því skyni að hafa áhrif á kjós-
endur í Bandaríkjunum og víðar. Í
kjölfarið spruttu upp umræður um
persónuvernd og friðhelgi einkalífs en
augljóst var að Facebook hafði blekkt
og rofið trúnað við notendur.
Eins og kunnugt er er helsta tekju-
lind Facebook sem og Google auglýs-
ingar. Við sjáum þessar auglýsingar
dagsdaglega í fréttaveitum samfélags-
miðlanna og í öðrum smáforritum og
þær eru sérstaklega ætlaðar okkur.
En er þessi þróun komin of langt?
Stóri bróðir nútímans
Flestir þekkja söguna 1984 eftir
George Orwell sem segir frá alræð-
issamfélaginu Airstrip One þar sem
ríkið veit allt um einstaklinginn. Hið
alsjáandi auga Stóra bróður fylgist
með manni dag og nótt.
Við lifum á tímum þar sem hægt er
að komast yfir alls kyns upplýsingar
frekar auðveldlega í gegnum netið. En
eru stórfyrirtækin að brjóta á ein-
staklingum með endalausri söfnun
persónuupplýsinga? Ég hef ekki neitt
einfalt svar við þessari spurningu en
eitt er ljóst: Facebook og Google hafa
óviðjafnanleg völd í okkar heimi sem
flestir gera sér ekki grein fyrir. Og oft
á tíðum finnst manni eins og tækniris-
arnir tveir leiki hlutverk Stóra bróður
í hinu tæknivædda nútímasamfélagi.
Þeir eru Stóri bróðir nútímans. Ef til
vill er eina ráðið í stöðunni að draga úr
áhrifavaldi þeirra með því að skipta
þeim niður í smærri fyrirtæki og
minnka þar með samþjöppun valds á
fáar hendur.
[1] Statcounter GlobalStats, sótt þann 8. ágúst
2018 af slóðinni http://gs.statcounter.com/
search-engine-market-share
[2] Statcounter GlobalStats, sótt þann 8. ágúst
2018 af slóðinni http://gs.statcounter.com/
social-media-stats
Eftir Orra Matthías
Haraldsson
Orri Matthías
Haraldsson
» Og hvernig á að
bregðast við þeirri
ógn sem steðjar að frið-
helgi einkalífsins?
Höfundur er háskólanemi.
orrimatt@internet.is
Stóri bróðir
nútímans
Athugun á lang-
reyðaveiðum Hvals
hf. leiðir í ljós að
helzta valdaklíka
landsins, sem býr yfir
miklu fjármagni og
þéttriðnu tengsla- og
hagsmunaneti, virðist
halda þeim gangandi,
væntanlega af pen-
ingagræðgi og gróða-
von, en Hvalur borg-
ar sem nemur um 86 aurum í
veiðigjald fyrir kíló dýranna, og ef
sala tekst fyrir að meðaltali eina
evru á kíló, þá er brúttóhagnaður
14.000%.
Birtingarmynd þessarar valda-
klíku sást nýlega vel í formi nýs
stjórnarformanns í Hval hf.
Eftir að við – félagasamtökin
Jarðarvinir – höfðum án árangurs
reynt að stöðva veiðarnar á grund-
velli dýraverndarsjónarmiða,
mannúðar og stöðu okkar Íslend-
inga og ímyndar í samfélagi þjóð-
anna, líka með tilliti til hagsmuna
ferðaþjónustunnar, ákváðum við
að láta kanna, hvort rétt væri að
þessum veiðum staðið, hvað varðar
lög og reglur, og, hvort eftirlit og
aðhald yfirvalda væri fullnægjandi.
Fengum við til þess einn virt-
asta og hæfasta lögmann landsins,
Ragnar Aðalsteinsson, og starfs-
félaga hans.
Veiðiskip munu hafa verið
byggð fyrir um 70 árum og eru
skutulbyssur sennilega jafn-
gamlar, en framleiðandi þeirra
staðfestir, að hætt hafi verið að
framleiða þær upp úr 1960. Við-
hald verksmiðju hætti þá líka.
Ef litið er til EES-samningsins
frá 1992 og þess regluverks og
þeirra staðla sem honum fylgja,
eru þessar skutulbyssur því senni-
lega ólöglegar og notkun þeirra þá
alvarlegt lögbrot.
Við spurðum lögreglustjórann á
Vesturlandi, hvort Hval hefði verið
veitt leyfi fyrir kaupum/innflutn-
ingi á því sprengiefni, sem félagið
notar. Svarið var: „Lögreglustjór-
inn á Vesturlandi hefur ekki haft
slíka beiðni frá Hval ehf. til með-
ferðar.“
Lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu var spurður sömu
spurningar. Svar hans: „Embætt-
inu hefur ekki borist slík umsókn.“
Við spurðum sömu embætti,
hvort skipverjar hvalveiðiskipanna
hefðu gild leyfi til að fara með
sprengiefni og annast sprengi-
vinnu. Hvorugt emb-
ættið gat staðfest að
svo væri en þau bentu
á, að slík leyfi væru
veitt einstaklingum,
ekki félögum, og væri
ekki vitað hvar leyfis-
þegar störfuðu.
Er hér beðið nánari
gagna og upplýsinga
skv. upplýsingalögum.
Ef leyfi skipverja
reynast ófullnægjandi,
ber yfirvöldum að
stöðva veiðar strax.
Vinnueftirlitið var spurt um til-
flutningsleyfi vegna sprengiefnis
og hvernig stofnunin tryggi, að all-
ur veiðibúnaður og sprengiefni
samræmist reglum embættisins
og/eða sé EES-vottaður.
Svar: „Engin gögn finnast hjá
Vinnueftirlitinu um að Hval hf.
hafi verið veitt tilflutningsleyfi
skv. 3. mgr. 11. gr. reglugerðar nr.
510/2018 um sprengiefni og forefni
til sprengiefnagerðar, né að fyr-
irtækið hafi sótt um slíkt leyfi til
stofnunarinnar“.
Matvælastofnun ber ábyrgð á
framkvæmd laga nr. 55/2013 um
dýravelferð. Skv. 21. gr. laganna
skal aflífa dýr „...með skjótum og
sársaukalausum hætti...“. Í 27. gr.,
sem á sérstaklega við um veiðar,
segir: „Við veiðar er óheimilt að
beita aðferðum sem valda dýri
óþarfa limlestingum eða kvölum.“
Matvælastofnun var spurð,
hvort hún teldi langreyðaveiðar
Hvals samræmast þessum laga-
greinum. Var m.a. vísað til þess,
að skv. skýrslu dr. Egil Ole Öen,
um langreyðaveiðar Hvals 2014,
urðu 8 dýr, af 50, að ganga í gegn-
um heiftarlegt dauðastríð, þar sem
dýrin börðust um með stálkló
skutulsins, tætandi líffæri þeirra,
innyfli og hold, í allt að 15 mín-
útur.
Hér er um háþróuð spendýr að
ræða og geta menn ímyndað sér
hvers konar helvíti dýrin urðu að
ganga í gegnum þar til dauðinn
loks líknaði.
Við þetta bætist, að langreyð-
arkýr bera síðla sumars og eru
með nær fullgenginn kálf í kviði.
Er því líka verið að murka lífið úr
þessari nær fullþroska lífveru.
Í svari Matvælastofnunnar seg-
ir: „Matvælastofnun hefur metið
það svo að aðferðin sem notuð er í
dag við hvalveiðar sé ekki andstæð
lögum um velferð dýra og að kröf-
ur 27. greinar séu uppfylltar...“.
Um drápin á fóstrunum segir
stofnunin: „Fóstur í móðurkviði
hlýtur sömu örlög og veidd móðir
þess“. Lítið mál það.
Hér má minna á markmið lag-
anna: „Markmið laga þessara er
að stuðla að velferð dýra, þ.e. að
þau séu laus við vanlíðan, hungur
og þorsta, ótta og þjáningu, sárs-
auka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi
þess að dýr eru skyni gæddar ver-
ur“.
Fyrir okkur eru þetta fyrir-
takslög, en framkvæmd þeirra og
eftirlitið með þeim óásættanlegt.
Hvernig má það vera, að átta dýr
séu kvalin til dauða með heiftar-
legum hætti, þegar unnt reyndist
að drepa 42 með „viðunandi
hætti“; strax?
Ástæðan fyrir kvalardrápi dýr-
anna átta var væntanlega, að veitt
var við ófullnægjandi skilyrði;
skytta kærulaus, óábyrg eða van-
hæf, skotvinkill skakkur, skyggni
ófullnægjandi, öldugangur of mik-
ill, færi of langt eða annað þess
háttar.
Ef staðið hefði verið að þessum
veiðum af fullri fagmennsku og
ábyrgð, hefði sennilega mátt fyr-
irbyggja ömurlegan og kvalafullan
dauðdaga þessara átta dýra, auk
kálfa í kviði sumra þeirra.
Það er verkefni Matvælastofn-
unar að tryggja þessa fagmennsku
og þetta aðhald skv. 13. gr. lag-
anna. Í okkar huga hefur hún hér
brugðizt hlutverki sínum og skyld-
um.
Hvalur hf. hefur eingöngu veiði-
leyfi fyrir langreyði. Engum öðr-
um tegundum. Steypireyður er al-
friðuð alls staðar, líka hér. Samt
drap Hvalur afkvæmi steyp-
ureyðar, blending, sem hún hafði
átt með öðrum hval.
Steypireyðarkýr fæddi þennan
blending og var hann engan veg-
inn langreyður. Með þessu drápi
braut Hvalur í okkar augum lög
með alvarlegum hætti. Hval-
veiðiklíkan reynir auðvitað að rétt-
læta þetta, en við munum kæra
það til ríkissaksóknara.
Ef að líkum lætur mun draga til
tíðinda í langreyðaveiðum Hvals á
næstunni. Þetta gæti orðið „heitt
haust“ fyrir stjórnarformanninn
nýja. Kannski hitnar líka eitthvað
undir einhverjum þægum
embættismanninum.
Langreyðaveiðar eru hrotta-
legar og líklega ólöglegar
Eftir Ole Anton
Bieltvedt
» ...dýrin gengu í
gegnum heiftarlegt
dauðastríð og börðust
um með stálkló skutuls-
ins, tætandi líffæri
þeirra, innyfli og hold, í
allt að 15 mínútur.
Ole Anton Bieltvedt
Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu-
maður og stjórnmálarýnir.