Morgunblaðið - 13.08.2018, Síða 23
Þórey hefur sinnt myndlist jafn-
framt kennslu- og sálfræðistörfum, á
Akureyri þar sem hún var búsett um
árabil, í Noregi og nú síðast í Vest-
urbænum í Reykjavík. Eftir nám við
Myndlista- og handíðaskólann hefur
áhugi hennar á listsköpun fylgt
henni. Hún hefur haldið myndlist-
arsýningar í gegnum tíðina, bæði hér
heima, í Noregi og Danmörku, og
tekið þátt í samsýningum. Hún hefur
einnig fengist við listmiðlun og starf-
rækt gallerí, á Akureyri, á Hjalteyri
við Eyjafjörð og nú síðast Gallerí
Vest við Hagamel í Vesturbænum í
Reykjavík.
Veflist hefur átt stóran þátt í list-
sköpun Þóreyjar enda uppistaðan í
náminu við Myndlista- og hand-
íðaskólann: „Nú fæst ég einkum við
listsköpun og hef víkkað starfssviðið
frá vefnaðinum og nýti önnur efni og
form á borð við vatnsliti, olíu og
þrykk. Mitt lífsmottó hefur löngum
snúist um það að ef mig vanti verk-
efni þá bý ég þau til.“
Þórey hefur alla tíð haft yndi af
ferðalögum og farið víða með fjöl-
skyldu sinni, meðal annars um
Bandaríki Norður-Ameríku.
Fjölskylda
Eiginmaður Þóreyjar er Kristján
Baldursson, f. 5.1. 1945, tæknifræð-
ingur. Hann er sonur Baldurs H.
Kristjánssonar og Þuríðar H. Krist-
jánsdóttur á Ytri-Tjörnum í Eyja-
firði.
Dætur Þóreyjar og Kristjáns eru
Kristín Hildur Kristjánsdóttir, f.
22.2. 1975, doktor í erfðafræði, búsett
á Spáni en maður hennar er Salvador
Deringer og eru börn þeirra Óskar
og Fjóla; Þuríður Helga Kristjáns-
dóttir, f. 21.11. 1977, framkvæmda-
stjóri Menningarfélags Akureyrar en
maður hennar er Magnús Helgason
myndlistarmaður og eru börn þeirra
Hekla Sólveig, Ingunn Kría Þórey og
Helgi Hrafn; Sólveig Hlín Kristjáns-
dóttir , f. 21.11. 1977, sérfræðingur í
klínískri barnasálfræði, búsett í
Reykjavík en maður hennar er Stein-
þór Steingrímsson og eru dætur
þeirra Þórey Kristín og Dagrún
Hrefna, og Þórhildur Fjóla Krist-
jánsdóttir , f. 10.9. 1979, doktor í
orkuverkfræði, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Egill Ferkingstad
og eru börn þeirra Óðinn og Elma.
Systkini Þóreyjar eru Sigtryggur
Rósmar, f. 8.7. 1941, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, og Hildur Guðrún,
f. 12.4. 1948, bókasafnsfræðingur í
Kópavogi.
Foreldrar Þóreyjar voru Eyþór
Magnús Bæringsson, f. 15.6. 1916, d.
2.9. 1972, kaupmaður í Reykjavík, og
k.h. Fjóla Jósefsdóttir, f. 14.6. 1920,
d. 16.10. 2012, húsmóðir.
Þórey mun taka á móti gestum í
Galleríi Vest við Hagamel í Vestur-
bænum í Reykjavík á milli kl. 17 og
19 á afmælisdaginn.
Úr frændgarði Þóreyjar Eyþórsdóttur
Þórey Eyþórsdóttir
Steinunn J. Björnsdóttir
húsfr. í Dunhagakoti
Einar Sigvaldason
b. í Dunhagakoti í
Hörgárdal
Guðrún Einarsdóttir
húsfr. í Grímsey og á Dalvík
Jósef Þorsteinsson
sjóm. og b. í Grímsey og á Dalvík
Fjóla Jósefsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurbjörg Sigurðardóttir
húsfr. á Sveinsstöðum
Þorsteinn Vigfússon
b. á Sveinsstöðum í Skíðadal
Torfi
Björnsson
b. í Asparvík
Björn
Björnsson
verslunarm.
á Hólmavík
Þórður
Björnsson
sjóm. og
bílstj. í
Keflavík
Gunnar
Þórðarson
tónskáld
og gítar-
leikari
Torfhildur
Torfadóttir
á Ísafirði sem
varð 107 ára
Hulda
Daníelsdóttir
iðnverkak.
Indíana
Einarsdóttir
húsfr. við Eyjafjörð
Jóhanna
Sigurjónsdóttir
húsfr. á Akureyri
Rósa
Antonsdóttir
iðnverkak. á
Akureyri
Þóroddur
Hjaltalín
milliríkja-
dómari í
knattspyrnu
Helga
Jósefsdóttir
húsfr. í Rvík
Ólafur Bjarki
Ragnarsson
starfsm. hjá
Skeljungi
Ragnar
Ólafsson
Íslandsm.
í golfi og
landsliðsein-
valdur í golfi
Guðmunda
Bæringsdóttir
húsfr. á
Ísafirði
Daníel
Gunnarsson
skipstj. á
norskum
fiskiskipum
Guðjón Björnsson
vinnum. í Hlíð í Strandasýslu,
af Kollafjarðarnesætt
Sigríður Guðjónsdóttir
iðnverkak. á Ísafirði og í Rvík
Bæring M.S. Bæringsson
sjóm. í Furufirði
Eyþór Magnús Bæringsson
kaupm. í Rvík
Halldóra F. Gísladóttir
húsfr. í Furufirði
Bæring Bæringsson
b. í Furufirði
Jónína G. Bogadóttir
vinnuk. í Eyjum í Strandasýslu
Arnór
Sigurðsson
skipstj. á
Ísafirði
Aron Einar
Gunnarsson
fyrirliði
íslenska
landsliðsins í
knattspyrnu
Arnór
Gunnarsson
handbolta-
kempa
Gunnar
Arnórsson
skipstj. á Ísafirði
Jóhanna
Arnórsdóttir
húsfr. í Eyjafirði
Sigtryggur Rósmar
Eyþórsson
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Ottó Wathne fæddist í Mandalí Noregi 13.8. 1843. Hannstundaði síldveiðar í Noregi
en fram yfir miðja nítjándu öldina
var um langt árabil mikil síldar-
gengd innan skerja við vestur-
strönd Noregs. Þessi síld var eink-
um veidd í landnætur og söltuð. Er
síldin hvarf skyndilega við Noreg
fréttist af miklum síldargöngum í
íslenska firði, einkum austan- og
norðanlands. Nokkrir norskir síld-
arsaltendur tóku sig þá upp, fluttu
hingað til lands með nætur sínar,
skip og báta og hófu hér síldveiðar
og söltun. Flestir þeirra settust að á
Austfjörðum en langþekktastur
þeirra var afhafnamaðurinn Ottó
Wathne.
Ottó var nítján ára er hann kom
fyrst til Íslands og stundaði þá
timburkaupmennsku frá skipi víða
um landið. Hann kom síðar til
Seyðisfjarðar 1869, reisti sér þar
lítið hús og hóf þar síldveiðar sem
mislukkuðust. Þá hvarf hann af
landi brott til Englands þar sem
hann lauk stýrimannsprófi.
Í þriðja sinn er Ottó kom til
landsins, 1880, var hann kominn til
að vera, settist þá að á Seyðisfirði,
reisti sér þar glæsilegt íbúðarhús
og starfrækti þar um nær tveggja
áratuga skeið blómlega verslun og
umfangsmikla síldar- og þorsk-
útgerð. Síðustu tveir áratugir
nítjándu aldar voru miklir upp-
gangstímar á Seyðisfirði sem fékk
kaupstaðarréttindi 1895.
Þetta var ekki síst Ottó að þakka
sem innleiddi þar ýmsar nýjungar í
atvinnulífi og menningu og stór-
bætti samgöngur með lagningu
vega og gufuskipaferðum. Hann
byggði m.a. fyrir eigið fé fyrsta vit-
ann á Dalatanga í því skyni að auð-
velda siglingar til Seyðisfjarðar.
Vitinn var reistur 1895 en síðan
starfræktur fyrir fé úr Landssjóði.
Ottó lést 1898. Hans var sárt
saknað af Austfirðingum og tveimur
árum eftir andlát hans reistu Seyð-
firðingar honum minnisvarða sem
stendur við Fjarðarárbrú.
Merkir Íslendingar
Ottó
Wathne
100 ára
Trausti B. Magnússon
95 ára
Sigrún Jóhannesdóttir
90 ára
Ásdís Svanlaug Árnadóttir
Þorbjörg Guðmundsdóttir
85 ára
Geir Magnússon
Helga M. Ketilsdóttir
Soffía Björnsdóttir
Sæunn Þorleifsdóttir
80 ára
Bjarni Þorgeirsson
Bragi Ólafsson
Ingibjörg Jónsdóttir
Ingvar Daníel Eiríksson
75 ára
Gunnar Maron Þórisson
Halldóra G. Bjarnadóttir
Sigurlaug Guðmundsdóttir
70 ára
Haraldur Skarphéðinsson
Herdís Pétursdóttir
Hörður Erlingur Tómasson
Laufey C. Steindórsson
Sigurður E. Rósarsson
Steinunn Pétursdóttir
60 ára
Alfreð Schiöth
Algirdas Jasinevicius
Anna Björg Eyjólfsdóttir
Deborah Jane Brown
Dóra Noodaeng Sawatdee
Haukur Logi Michelsen
Hrönn Sigurðardóttir
Karl Kristjánsson
Kristófer Ingi Svavarsson
Lúðvík Sverrisson
Vaka Helga Ólafsdóttir
50 ára
Ásrún Björgvinsdóttir
Dean Ljubisic
Halldóra Eiríksdóttir
Helgi Þór Magnússon
Ingibjörg Marteinsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Íris Bachmann Ægisdóttir
Jón Guðmundsson
Kristján Magnússon
María Jónsdóttir
Páll Ingvar Guðnason
Ragnar Þór Emilsson
Tobías Sigurðsson
Þórarinn Hróar Jakobsson
40 ára
Björg Fenger
Gerald Häsler
Guðrún Þóra Mogensen
Helga Sólveig Ormsdóttir
Hersteinn Pálsson
Jóhann Valgeir Davíðsson
Jurailux Sveinsson
Katarzyna Lidia Fisiak
Margrét Jóelsdóttir
Mariusz Mistera
Óskar Steinn
Gunnarsson
Rosalie Lapasanda Baring
Sigrún Aadnegard
Sigurður Sölvi Davíðsson
Sóley Q. Sveinbjörnsdóttir
Wojciech Jelen
Þóra Björk Þórhallsdóttir
30 ára
Arnar Arnarson
Atli Friðbergsson
Daði Hafsteinsson
Guðni Hermannsson
Gunnar Sigurðsson
Janusz M. Staniszewski
Marc Mcausland
Michail Borkovskij
Piotr Zbigniew Nieduzak
Smári Snær Eiríksson
Til hamingju með daginn
30 ára Hekla ólst upp í
Kópavogi, býr í London og
er að koma sér þar fyrir.
Maki: Marc James Wood-
roffe, f. 1989, starfs-
maður hjá hótelverk-
tökum.
Börn: Gabriel Máni Wium,
f. 2011, og Viktor Bjarki
Woodroffe, f. 2017.
Foreldrar: Unnur María
Þórarinsdóttir, f. 1963,
húsfreyja og Snorri Wium,
f. 1962, óperusöngvari og
málarameistari.
Hekla
Wium
30 ára Birna ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BSc-prófi í sjúkraþjálfun
frá HÍ og starfar hjá
Gáska sjúkraþjálfun.
Maki: Haraldur Karlsson,
f. 1987, forritari hjá Ís-
landsbanka.
Sonur: Ernir Snær Har-
aldsson, f. 2017.
Foreldrar: Gróa Gunn-
arsdóttir, f. 1953, leik-
skólakennari og Pétur Jó-
hannesson, f. 1953,
húsasmíðameistari.
Birna
Pétursdóttir
30 ára Birgir ólst upp í
Reykjavík og Kópavogi,
býr í Hafnarfirði, lauk at-
vinnuflugmannsprófi og
er flugmaður hjá Ice-
landair.
Maki: Arndís María Ein-
arsdóttir, f. 1986, lyfja-
fræðingur.
Börn: Ari Hrafn Strange,
f. 2014, og Una Lind
Strange, f. 2017.
Foreldrar: Hannes
Strange, f. 1964, og Bryn-
dís Björnsdóttir, f. 1965.
Birgir Örn
Strange
RAFSTÖÐVAR
HONDA EU20i
1,6 kVA – Honda mótor
12 v / 220 v - Inverter
64 dB(A)@7M – 21 kg
HONDA EU30is
Öflug og hljóðlát rafstöð.
2,8 kVA – Honda mótor
12 v / 220 v - Inverter
66 dB(A)@7M – 61 kg
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is