Morgunblaðið - 13.08.2018, Side 25
Sigrún Haraldsdóttir segir að þaðsé gaman að liggja út af í skjóli
hávaxinna stráa og hlusta á vindinn:
Ef nýta viljum, nóg má sjá
náttúrunnar undur,
met er hvernig mjóstu strá
mylja vindinn sundur.
Hallmundur Kristinsson bætir
við:
Í skugga tröllslegra trjáa
tel ég þá fremur smáa
er skáka skeiðinu gráa
í skjóli nokkurra stráa.
Kötturinn Jósefína birti á Boðn-
armiði mynd af Stonehenge ásamt
tilvísun í frétt Morgunblaðsins: –
„Þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir í
heila öld hefur hingað til lítið miðað
áfram í því að leysa að fullu ráðgát-
una um hver byggði hið 5.000 ára
stórvirki Stonehenge á Englandi og
í hvaða tilgangi. Lítið var einnig vit-
að um þá sem grafnir eru innan“
stóð þar og en kötturinn kunni
lausnina:
Hengisteinar hafa drengi heillað lengi
gráir mjög á grænu engi.
Fluttu þá af feikna krafti fyrr á öldum
afrekskettir að vér höldum.
Magnús Geir Guðmundsson birtir
„eitt sýnishorn úr komandi limrusk-
ruddu..., Limrufjöri“, með þeirri
skýringu að „eitt sinn var á Morg-
unvakt Rásar 1 slegið á þráðinn
norður á Húsavík og viðmælandinn
fyrst spurður um veðrið. Svarið var
að það væri hæglátt, er dugði svo til
að koma þessari limru til lífs með
það sömuleiðis í huga að ákveðið
safn var ekki lengur til staðar í bæn-
um“:
Á Húsavík hæglátt er veður,
þar hreint enginn marvaðann treður.
En víst, þó er ver,
þar vart lengur er.
til sýnis neinn sérstakur reður!“
Helgi Ingólfsson yrkir og leikur
sér að endaríminu:
Hún Steinunn í Straumi bar herlegheitin,
svo stórgerð að sáust vart ferlegheitin.
En loks féll hún frá
svo fræða nú má
að fangbrögðin kunni hún sérleg, heitin.
Ármann Þorgrímsson yrkir um
„loftslagsbreytingar, – „skógarelda,
þurrka, flóð, ofsaveður“:
Þyngist róður, þrengjast sund
þar sem straumar völdin taka,
er að nálgast ögurstund,
enginn finnur leið til baka.
Guðmundur Guðmundsson bók-
sali orti:
Þegar tóbaks taugarnar
taka að verða svangar
dýfa nefi í dósirnar
duglega mig langar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í skjóli stráa og af Stonehenge
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er óhætt að treysta eðlisávísun
þinni í bland við hæfilegan skammt af
raunsæi. Þér finnst öll sund lokuð en skoð-
aðu betur, svo er ekki.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er einhver spenna í þér og hætt við
að þú látir það bitna á fólkinu í kringum þig.
Njóttu frísins og komdu svo endurnærð/ur til
starfa á ný.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú sért full/ur af krafti og viljir
drífa í hlutunum geturðu ekki ætlast til þess
að aðrir séu sama sinnis. Reyndu að taka
hlutunum með ró.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt það sé mikið um að vera og mik-
ið að gera í vinnunni þarftu að gefa þér tíma
til hvíldar. Hafirðu farið eftir eigin brjóstviti
hefurðu ekkert að óttast.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er óhætt að láta eitthvað eftir þér í
tilefni farsælla verkloka. Láttu þínar eigin
þarfir hafa forgang. Þér finnst gott að vera
eigin herra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Byrjaðu að velta því fyrir þér af alvöru
hvað er þér mikilvægt í lífinu. Skakkaðu leik-
inn ef þér finnst þess þurfa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft ekki að vera einhver annar en
þú ert. Nú væri rétt að horfa um öxl og huga
að því sem má betur fara. Láttu ástvini þína
vita hversu mikils þú metur þá.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þið skuluð búa ykkur undir eitt-
hvað óvænt í dag og það kemur úr þeirri átt-
inni sem þið eigið síst von á. Talaðu hreint út
við vinnufélaga þína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú skiptir öllu að nýta tímann vel
og halda sér við efnið svo að þú náir að
standa við gefin loforð. Líttu inn á við. Róm-
antíkin er uppspretta ánægju, kannski lifnar
jafnvel í gömlum glæðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft umfram allt að beina
sköpunarþrá þinni á jákvæðar brautir. Láttu
það eftir þér að kaupa eitthvað sérstakt
handa þér eða öðrum, svo framarlega sem
þú hefur efni á því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú er fremstur meðal jafningja og
það þýðir að ákvarðanatakan fellur þér í
skaut. Núna eru dagar víns og rósa.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þarfir þínar skipta miklu máli. Skoð-
aðu vandlega hvað þú hefur og lærðu að
meta það. Vinur lofar bót og betrun.
„ÉG ÞARF SMÁ TÍMA TIL AÐ MJÁ MÉR.“ „MÍN MISTÖK. ÉG ÁTTI VÍST AÐ NUDDA ÞVÍ Á BRINGUNA Á ÞÉR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fyrsti kossinn góða
nótt.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VIÐ TVEIR ERUM
TEYMI, GRETTIR
OG ÉG ER
ÞJÁLFARINN
GOTT
ÞÁ ER HÆGT AÐ
REKA ÞIG
HVAÐ KOM FYRIR ÞIG?!
ÞAÐ VORU
SMÍÐAR!
MEIDDIRÐU ÞIG
SVONA VIÐ SMÍÐAR?
ÞAÐ VORU REYNDAR
BARSMÍÐAR! Á BARNUM!
Ungum lærðist Víkverja að takaábyrgð á vandamálum verald-
arinnar og láta ekki sitt eftir liggja
við að bæta úr meinsemdum mann-
kyns. Allar gjörðir bæri að skoða í
stóru samhengi, samanber að margt
lítið gerir eitt stórt. Í barnaskóla var
gangurinn sá að ef einhver í bekkn-
um henti frá sér hálfétinni samloku í
nestistímanum kom kennarinn með
tilfinningahlaðna ræðu um að mat
mætti aldrei henda, slíkt væri mikill
dónaskapur gagnvart svöngu börn-
unum í Afríku sem stráféllu af
hungri. Við ættum því klára
skammtinn og hugsa af auðmýkt um
nægtir okkar. Með þessum hætti var
hræðslu og sektarkennd laumað inn
í vitund barnanna og það á atómöld
þegar við öllu mátti búast. Heim-
urinn var á heljarþröm, þó í skól-
anum væri forðast að minnast einu
orði á þau ósköp. Samt sem áður sí-
aðist óttinn inn í undirmeðvitundina;
kvíðbogi gagnvart kjarnorkustríði.
En það lærðist líka að ekkert væri í
okkar valdi nema halda sig á mott-
unni og fara með Faðir vorið.
x x x
Víkverji var kominn á fermingar-aldur þegar alnæmi ruddist inn í
tilveruna. Samkynhneigðir og fíkni-
efnaneytendur voru í sérstökum
áhættuhópi og unglingar því beðnir
um að fara varlega í ástarlífinu.
Ekkert væri hægt að gera fyrir þá
sem veiktust af Aids. „Allt mann-
kynið í hættu“ sagði í forsíðufrétt
Morgunblaðsins vorið 1985. Meðal
viðbragða við vá þessari var að
smokkasjálfsalar voru settir upp út
um borg og bý og góðhjartaðar
hjúkrunarkonur fluttu fyrirlestra í
skólum. Nú er lítið og sjaldan
minnst á alnæmi og hættan virðist
liðin hjá. Kannski var málið ekki jafn
alvarlegt og talið var.
x x x
Og áfram – nú á árinu 2018 – er al-ið á ótta. Vísindamenn hafa
sjálfsagt margt til síns máls í um-
fjöllun um loftslagsmál og hlýnun
andrúms. En er hættan ofmetin?
Vitað er að yfir langan tíma breytist
veðurfar; hlýindakaflar og kulda-
skeið koma og fara. Hafa einhverjir
hagsmuni af því að markaðssetja
óttann og ósköpin? vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef elskað yður eins og faðirinn
hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku
minni
(Jóh: 15.9)
--- ALLT A EINUM STAD �
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úrval
af
sængurvera
settum
Percale ofin –
Micro bómul
l,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is