Morgunblaðið - 13.08.2018, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Strákarnir í Pollapönki fluttu samansafn af
Falleg Björn Leví Gunnarsson, Alexander og Heiða María Sigurðardóttir.
Sæt saman Silvía Magnúsdóttir, Ástrós Silvíudóttir og Stefán Silvíuson.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
360° snúningur
Leður
Verð frá 249.000.-
WAVE Lounge
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það kann að koma lesendum á
óvart hve víða um heim má finna
fræðimenn sem hafa sérhæft sig í
íslensku fornsögunum. Sautjánda
alþjóðlega fornsagnaþingið
(www.sagaconference2018.is) hefst
í Reykjavík í dag og stendur út
vikuna en þar er von á bæði gest-
um og fyrirlesurum sem sumir
hafa ferðast yfir hálfan hnöttinn.
„Mest eru fornsagnarannsóknir
stundaðar í Evrópu og Norður-
Ameríku en við fáum líka til okkar
fólk frá fjarlægari stöðum eins og
Ástralíu, Argentínu, Mexíkó og
Japan,“ segir Svanhildur Ósk-
arsdóttir. „Sumir háskólar kenna
fornsögurnar sem hluta af bók-
menntasögunámi enda getum við
sagt að þær séu eitt helsta fram-
lag Íslendinga til heimsbók-
menntanna. Annars staðar eru
fornsögurnar hluti af námi í ís-
lensku og nemendur látnir lesa
sögurnar á frummálinu. Þá er ver-
ið að stunda fjölbreyttar rann-
sóknir á þessum textum. Má nefna
svokallaðar viðtökurannsóknir sem
hafa rutt sér mjög til rúms á und-
anförnum áratugum en þar er
skoðað hvernig sagnaarfurinn skil-
ar sér inn í ný bókmennta- og
listaverk. Á þinginu verður t.d.
fjallað um hvernig íslenskar forn-
bókmenntir birtast í myndasögum,
þar á meðal í japönskum manga-
sögum.“
Svanhildur er rannsóknardósent
við Árnastofnun og formaður und-
irbúningsnefndar fornsagnaþings-
Erum enn að uppgötva
nýjar hliðar á fornsögunum
Íslenski sagnaarfurinn fléttast saman við menningu nútímans og birtist meira að segja í japönsk-
um teiknimyndasögum Með gleraugum nýrra fræðigreina eins og kynjafræði má uppgötva áhuga-
verða nýja fleti á textum fornra handrita Alþjóðlegt fornsagnaþing verður haldið í þessari viku
Morgunblaðið/Valli
Átök Svanhildur Óskarsdóttir hefur áhyggjur af hvernig öfgafólk virðist
í vaxandi mæli nota norrænan menningararf til að styðja við hugmyndir
um fordóma og kynþáttayfirburði. „Mikilvægt er að fræðimenn taki þátt
í þessari umræðu, og reyni að andæfa því þegar mjög einfölduð túlkun á
fornsögunum er notuð sem vatn á myllu öfgaafla.“