Morgunblaðið - 13.08.2018, Blaðsíða 29
Gleði Gengið var frá Sæbraut, nálægt Hörpu, eftir Kalkofnsvegi, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og Sóleyjargötu.
» Gleðigangan var farin frá Hörpuað Hljómskálagarðinum á
laugardag við mikinn fögnuð við-
staddra. Gangan var hápunktur
Hinsegin daga sem haldnir voru í
20. sinn í ár. Í göngunni samein-
uðust lesbíur, hommar, tví- og pan-
kynhneigðir, transfólk, intersexfólk
og aðrir hinsegin einstaklingar í ein-
um hópi ásamt fjölskyldum sínum
og vinum til að staðfesta tilveru
sína, sýnileika og gleði, ásamt því að
minna á þau baráttumál sem skipta
hvað mestu máli hverju sinni. Göng-
unni lauk með útitónleikum í Hljóm-
skálagarðinum þar sem litríkt lista-
fólk fagnaði fjölbreytileikanum með
gleði og söng.
Hinsegin dagar náðu hámarki í Gleðigöngunni sem farin var í miðborg Reykjavíkur á laugardag
Ávarp Katrín Jak-
obsdóttir forsætis-
ráðherra flutti
ræðu í Hljóm-
skálagarðinum eft-
ir gleðigönguna á
laugardaginn var.Glæsilegur Páll Óskar Hjálmtýsson var í risastórum hælaskóm í glæsivagni
sínum þar sem hann dansaði og söng ásamt einkar fríðu föruneyti.
Hinsegin 100 K100 var með beina útsendingu frá Hljómskálagarðinum.
Samstaða Fólk úr helstu stjórnmálaflokkum landsins tók þátt í göngunni.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
ICQC 2018-20
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stoltar fjölskyldur Á meðal þátttakendanna voru hinsegin fjölskyldur.