Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr 595 1000 ré ttin ga ás lík u Ath að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Ítalía til lei ðrr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð gea Flugsæti 20. ágúst 20. ágúst Brottför 08:30 Tími 4 klst 10 min Áætl. Flugtími Trieste (TRS) Flugvöllur Verð frá 19.975 * * flugsæti önnur leið með flugvallarsköttum, tösku og handfarangri Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Borgarfulltrúar gengu út af fundi  Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna, segir fund skipulags- og samgönguráðs ólögmætan Axel Helgi Ívarsson Jóhann Ólafsson Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og samgönguráði Reykja- víkurborgar viku af fundi ráðsins í gærmorgun vegna þess að þeir töldu ekki rétt staðið að boðun fundarins og fundurinn væri því ólögmætur. Kvörtuðu fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins bæði yfir því að fundarboð barst ekki innan lögbundins frests og að engin dagskrá fylgdi fundarboð- inu. Þá lýstu fulltrúar flokksins einn- ig yfir óánægju sinni með að ekkert þeirra mála sem þeir óskuðu eftir að yrðu sett á dagskrá var á endanum sett á dagskrá fundarins. Í tilkynningu frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur til fjöl- miðla síðdegis í gær segir að fundur skipulags- og samgönguráðs Reykja- víkurborgar hafi verið lögmætur að mati lögfræðinga sviðsins og lög- fræðinga miðlægrar stjórnsýslu. Tæknilegir örðugleikar „Allir fulltrúar í ráðinu vissu af fundinum. Tæknilegir örðugleikar – tímabundin bilun í tölvukerfi – ollu hins vegar því að fundardagskrá og gögn voru send út seinna en venja er,“ segir í tilkynningu frá umhverf- is- og skipulagssviði Reykjavíkur- borgar. Þá urðu innsláttarvillur í net- föngum til þess að ákveðnir ráðsmenn fengu boðun á fundinn seinna en aðrir. „Starfsfólk umhverfis- og skipu- lagssviðs Reykjavíkurborgar vann af fullum heilindum að boðun fundar og var fulltrúum minnihluta í upphafi ráðsfundar gefinn kostur á að fá frestun á öllum þeim málum sem þeir óskuðu eftir, til að kynna sér málin betur,“ segir að auki í tilkynning- unni. „Þetta er í rauninni ótrúlegt og virðist hafa verið ákveðið leikrit fyrir fjölmiðla,“ sagði Sigurborg Ósk Har- aldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, í gær um þá ákvörðun fulltrúa Sjálf- stæðisflokks að ganga út af fundi ráðsins. „Það var mikið af kynning- um sem var gott að fara í gegnum en þau kusu að ganga út af fundinum og fá þá ekki þessar kynningar,“ sagði Sigurborg. „Sigurborg formaður talar um að þetta sé leikrit af okkar hálfu og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar [Kristín Soffía Jónsdóttir] talar um að við höfum gerst sek um trúnaðar- brot. Hvort tveggja er fjarri sann- leikanum og oft þegar fólk grípur til stórra orða þá er það að reyna að dreifa athyglinni eitthvað annað,“ sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ef hald- inn er ólöglegur fundur þá er verið að bjóða hættunni heim,“ sagði Eyþór. Aðspurður hvernig hann svari því að lögfræðingar hafi metið fundinn lögmætan sagði Eyþór: „Þeir lög- fræðingar sem við ræddum við og eru ekki að starfa fyrir borgina, sem er aðili máls, voru á öndverðri skoð- un um lögmæti fundarins.“ Þótt aðeins þrír íraskir flóttamenn hafi óskað eftir alþjóðlegri vernd hér á landi í júlímánuði eru Írakar fjöl- mennasti hópur flóttamanna það sem af er ári. Alls hefur 71 Íraki sótt um vernd hér á landi fyrstu sjö mán- uði ársins. Alls hafa 370 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd hér á landi það sem af er ári. Á öllu síðasta ári sóttu tæplega 1100 einstaklingar um vernd. Írakar hafa ávallt verið fjölmennir í hópi flóttamanna sem hingað leita. Á síðustu árum hafa þeir verið fjöl- mennasti hópurinn á eftir hópum frá þeim þjóðum sem taldar eru búa við öryggi. Þannig sóttu 111 Írakar um vernd hér á landi á árinu 2017. Það sem af er ári hafa verið teknar 23 ákvarðanir um að íraskir ríkis- borgarar skuli fá vernd hér á landi en 7 umsóknum verið synjað. Þá hef- ur 30 verið vísað til fyrsta viðtöku- ríkis samkvæmt Dublinar-sáttmál- anum eða þeir hafa fengið vernd í öðru ríki. Hafa verið afgreidd 64 mál. Slæðingur frá Albaníu Þótt mjög hafi dregið úr umsókn- um fólks frá ríkjum sem talin eru örugg, svo sem Georgíu, Albaníu og Makedóníu, kemur enn nokkur fjöldi frá Albaníu. Fólk þaðan var annar fjölmennasti hópurinn sem hingað kom í leit að vernd fyrstu sjö mánuði ársins og fjölmennasti hópurinn í júlímánuði. Nú koma 10-20 Albanir í hverjum mánuði. 24 hafa komið frá Georgíu á árinu og 2 frá Makedóníu. Ástæðan fyrir því að dregið hefur mikið úr umsóknum fólks frá þessum ríkjum er að Útlendingastofnun hef- ur tekist að stytta mjög afgreiðslu- tíma umsókna. Fólk í þessum hópi sækir gjarnan þangað sem það getur dvalið í lengri tíma, vegna langs af- greiðslutíma. helgi@mbl.is Færri umsóknir berast um alþjóðlega vernd hérlendis  Á þessu ári kemur fjölmennasti hópurinn frá Írak Morgunblaðið/Hari Útlendingastofnun Afgreiðslutími umsókna hefur styst mjög. Skipulagsstofnun gerir aðeins minniháttar tæknilegar at- hugasemdir við drög að deiliskipu- lagi fyrir Hvalárvirkjun á Ströndum sem Árneshreppur gerir. Svar frá Skipulagsstofnun við innsendri til- lögu barst fyrir nokkrum dögum og er þar óskað eftir því að skerpt verði á ákveðnum en minniháttar atriðum í greinargerð og uppdráttum áður en deiliskipulagið verður auglýst í Stjórnartíðindum til gildistöku. Undanfari þessa eru breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem Skipulagsstofnun samþykkt í vor, en þær gera ráð fyrir virkjun í Hvalá í Ófeigsfirði, en alls er virkj- unarsvæðið 13,4 ferkílómetrar. „Næstu skref eru væntanlega þau að verktakinn mun sækja um fram- kvæmdaleyfi varðandi þær breyt- ingar sem samþykktar voru á að- alskipulaginu fyrr í sumar,“ segir Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Ár- neshrepps, við Morgunblaðið. Fyrirhuguð virkjun sem Vest- urverk hyggst reisa í Hvalá í Ófeigs- firði verður alls 55 MW. Miðað er við að framkvæmdir gætu hafist sum- arið 2020 og virkjunin verði gangsett haustið 2023. sbs@mbl.is Skipu- lagsmál í höfn  Hvalárvirkjun að komast á beina braut „Þessi klukka átti að vera í turninum. Hún kom til landsins árið 1927 ásamt tveimur öðrum og voru þær vígðar af séra Marteini Meulenberg,“ segir séra Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið um klukkuna sem er nú á túninu fyrir framan Landakotskirkju. Kirkjuklukkan var aldrei sett upp vegna þess að hún var gölluð. „Sagan er þannig að kvöldið áður en Meulenberg vígði klukkurnar þrjár þá bauð hann prestum sínum að koma og kíkja nánar á klukkurnar. Meulen- berg vildi láta þá heyra hljóminn og sló klukkuna með hamri og við það kom sprunga í hana,“ segir séra Jakob. Klukkan hefur staðið lengi á bak við kirkjuna en hefur nú verið færð á nýjan stað. „Mér heyrist hjá biskupi að klukkan eigi að vera til frambúðar á þessum stað og hvetja söfnuðinn og Íslendinga til verndar lífsins. Hægt verður að slá á klukkuna og heyra hljóm hennar og í hvert sinn sem er slegið er minnt á vernd lífsins,“ segir séra Jakob um kirkjuklukkuna gömlu. Aldargömul en ónotuð klukka í nýju hlutverki Morgunblaðið/Kristinn Kaþólska kirkjan í Landakoti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.