Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 6
Niðurstöður rannsóknar
» 40% kvennaliðanna þurftu
að vinna á leikjum karlaliðsins í
sama félagi en ekkert karlalið-
anna þurfti að vinna á leikjum
kvennaliðsins.
» 30% kvennaliðanna voru
með klefa sem aðrir notuðu
líka en 10% karlaliðanna.
» 20% kvennaliðanna fengu
ekki sjúkraþjálfara aukalega á
æfingar en öll karlaliðin fengu
sjúkraþjálfara aukalega.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Ég var búin að finna fyrir þessu á
eigin skinni í öllum liðum sem ég hef
æft með. Það er enn mikið um mis-
rétti í knattspyrnu,“ segir Margrét
Björg Ástvaldsdóttir, félagsfræðing-
ur og knattspyrnukona, um tildrög
þess að hún ákvað að gera rannsókn
á því hvort og hvernig knattspyrnu-
félög mismuni kynjunum þegar um-
gjörð er annars vegar.
Margrét flutti erindi á ráðstefn-
unni „Gender and Sport“, eða kyn og
íþróttir, sem hófst í gær.
„Með umgjörð á ég við ákveðin
þemu. Það eru æfingatímar, klefa-
mál, aðgengi að sjúkraþjálfara,
hvort liðið sé með liðsstjóra og
fleira.“
Þessi fleiri þemu eru hvort leik-
menn fái að leiða börn inn á völlinn,
æfingafatnaður, þvottur á æfinga-
fatnaði, fjáraflanir og það hvernig
fyrirliðarnir upplifa umgjörðina.
Mismunað í öllum tilfellum
Margrét tók 20 eigindleg viðtöl við
fyrirliða allra liða í úrvalsdeild
kvenna og karla. Hún komst að því
að konum er mismunað í öllum þeim
þemum sem hún rannsakaði.
„Mest mismunun kom fram í
klefamálum. Í fimm af tíu tilfellum
voru karlarnir með stærri klefa en
konur. Þeir eru einnig í miklu meira
mæli með sérklefa, bara fyrir sig, en
kvennaliðin deila þeim oftar með
öðrum.“
Mikil mismunun kom einnig fram í
aðgangi að sjúkraþjálfara, þvotti á
æfingafatnaði, æfingatímum, fjáröfl-
unum og liðsstjórum.
Viðtal Margrétar við einn fyrirlið-
ann leiddi í ljós að kvennalið var ekki
með liðsstjóra en karlalið í sama fé-
lagi með tvo. Það kom því í hlut fyr-
irliða kvennaliðsins að úthluta æf-
ingabúnaði til leikmanna, panta
búninga og láta leikmenn fá númer
og æfingaföt á meðan tveir liðsstjór-
ar sinntu þessum sömu verkefnum
fyrir karlaliðið.
Annar fyrirliði kvennaliðs tjáði
Margréti í rannsókninni að karlaliðið
í félaginu væri alltaf í forgangi hvað
varðaði æfingatíma. Af því leiddi að
kvennaliðið æfði nær aldrei á aðal-
vellinum, ekki einu sinni daginn fyrir
leik, þar sem karlaliðið var væri allt-
af í forgangi.
Aðspurð hvort aukin umræða um
misrétti í íþróttum hafi hjálpað eitt-
hvað til við að rétta hlut kvenna í
knattspyrnu segir Margrét: „Það fer
alveg eftir því hvaða mál eru í gangi
hvort við mætum skilningi; stundum
er bara alls enginn skilningur fyrir
hendi.“
Rannsókn Margrétar kom út í
október í fyrra. Hún segir að nið-
urstöðurnar hafi vakið mikla athygli.
„Þegar þetta kom út fyrst höfðu
margir samband við mig. Fólk úti á
götu, þjálfarar og leikmenn í meist-
araflokkum bæði karla og kvenna
hafa talað við mig og sýnt þessu mik-
inn áhuga og því að eitthvað sé gert í
málinu.“
Samtöl geta haft mikil áhrif í bar-
áttunni gegn misrétti, að mati Mar-
grétar. „Stundum finnst mér eins og
það sé nóg að tala við fólk og útskýra
misréttið en stundum þarf mun
meira til.“
Liðum í úrvalsdeild mis-
munað á grundvelli kyns
Dæmi um að karlalið hafi tvo liðsstjóra en kvennalið í sama félagi engan
Morgunblaðið/Eggert
Baráttukona Margrét Björg Ástvaldsdóttir flutti erindi um rannsóknina á ráðstefnu í HR í gær. Rannsókn hennar
leiddi meðal annars í ljós að 70% af ágóða af vinnu félags á þorrablóti runnu til karlaliðs og 30% til kvennaliðs.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
OPIÐ:
Mán. til fimmtudaga kl. 9 -18
Föstudaga kl. 9 - 17
Lokað á laugardögum í sumar
GASELDAVÉLAR
HÁGÆÐA
! "## $% &
'& '! & ! ( % &
) ' ! *
! & &
& + * & '( &* %*! &! &, '% "# )** /$ 0 ' 2 & &! 3#
* & "& *
%*! & %" *&! 456 : ;<
456 :
4<
3ja ára ábyrgð
ELBA Í YFIR
60 ÁR
Helga Björg
Ragnarsdóttir,
skrifstofustjóri
skrifstofu
borgarstjóra og
borgarritara
Reykjavíkur,
bindur vonir við
að rannsókn á
eineltismáli innan
borgarinnar hefj-
ist sem allra
fyrst. Þetta kemur fram í beiðni
hennar til forsætisnefndar borg-
arinnar um viðbrögð nefndarinnar
vegna opinberrar umræðu borg-
arfulltrúa um dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá því í júní. Reykja-
víkurborg var þá dæmd til að greiða
starfsmanni Ráðhúss Reykjavíkur
skaðabætur vegna slæmrar fram-
komu skrifstofustjóra skrifstofu
borgarstjóra og borgarritara. Þá var
skrifleg áminning, sem starfsmað-
urinn hafði fengið, gerð ógild. Í
framhaldi af aðalmeðferð málsins
óskaði Helga Björg eftir að fram
færi rannsókn á því hvort um einelti
væri að ræða.
Rannsókn á
einelti byrji
sem fyrst
Helga Björg
Ragnarsdóttir
Biður forsætis-
nefnd um viðbrögð
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens
áfrýjar ekki meiðyrðadómi í máli
Steinars Bergs. Í yfirlýsingu frá
Steinari kveðst hann hafa fallist á að
taka við greiðslu frá Bubba fyrir
helmingi þeirrar fjárhæðar sem
Bubba og RÚV var gert að greiða
honum samkvæmt niðurstöðu hér-
aðsdóms í meiðyrðamáli sem Steinar
höfðaði og málinu sé þar með lokið af
hans hálfu gagnvart Bubba.
Tekur Steinar fram að þar sem
Bubbi muni ekki áfrýja séu ummæli
hans sem tiltekin eru í dómnum
dauð og ómerk. Steinar telur ljóst að
RÚV áfrýi dómnum.
Bubbi Mort-
hens áfrýjar
ekki dómi
„Við náðum feiknalega góðum
árangri í yngri flokkunum. Ég er
ánægður með það enda lagði ég
áherslu á að hlúa að þeim eins og ég
gat,“ segir Sigurbjörn Bárðarson,
liðsstjóri íslenska landsliðsins á
Norðurlandamótinu í hestaíþróttum
og gæðingakeppni, sem fram fór á
Margaretehof í Svíþjóð.
Védís Huld Sigurðardóttir á
Krapa frá Fremri-Gufudal sigraði í
fjölda greina í unglingaflokki og
Arnór Dan Kristinsson á Roða frá
Garði kom heim með tvenn gullverð-
laun og eitt silfur í keppni ung-
menna. Þá sigraði Haukur Tryggva-
son á Orku frá Feti í fjórgangi
fullorðinna. Landsliðið vann fjölda
annarra verðlauna.
Védís og Haukur fengu í lok móts-
ins reiðmennskuverðlaun fyrir fram-
úrskarandi og áferðarfallega reið-
mennsku.
Í liðinu voru 30 knapar með 34
hesta og er það mesti fjöldi sem
sendur hefur verið á hestamót er-
lendis. Engir hestar voru sendir frá
Íslandi og því kepptu íslensku knap-
arnir á lánshestum sem ekki höfðu
komist á mótið sem fulltrúar landa
sinna við knapa sem margir hverjir
hafa lengi þjálfað sína keppnishesta.
Sigurvegari Védís Huld Sigurðardóttir og Krapi frá Fremri-Gufudal.
Védís Huld vann
fjölda verðlauna