Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Fækkaðu hleðslu- tækjunum á heimilinu, skrifstofunni eða sumar- bústaðnum. Tengill með USB BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í júlí síðastliðnum var því fagnað að 20 ár voru liðin frá því að Hval- fjarðargöngin voru opnuð. Göngin hafa reynst gríðarleg samgöngubót og er nú svo komið að huga þarf að gerð nýrra ganga við hlið þeirra eldri. Senn kemur að því að núver- andi göng anni ekki umferð. Öryggisreglur hafa verið hertar til muna frá því að núverandi göng voru hönnuð. Ný göng þurfa að vera lengri og breiðari og með minni vegarhalla. Þau yrðu allt að tveimur kílómetrum lengri en núverandi göng. Enn fremur þarf að gera ráð fyrir flóttaleiðum. Þetta mun að sjálfsögðu auka kostnað við fram- kvæmdina. Mannvit hefur í samvinnu við for- stöðumann jarðgangadeildar Vega- gerðarinnar, Gísla Eiríksson, skoðað og borið saman nokkra valkosti fyrir tvöföldun Hvalfjarðarganga. Til- gangurinn var að skoða hvaða mögu- leikar væru raunhæfir í því efni og hvernig þeir uppfylltu reglur og markmið, slysatíðni og hagkvæmni. Skýrsla var gefin út í vor. Umferð um Hvalfjarðargöng jókst jafnt og þétt fyrstu árin frá því að vera tæplega 2.950 ökutæki á sól- arhring árið 1999 upp í tæplega 5.600 ökutæki 2007. Umferð um göngin stóð í stað og minnkaði næstu ár þar á eftir og fór lægst í um 5.000 árið 2012. Frá 2012 og einkum nú hin síðari ár hefur um- ferð í gegnum göngin aukist mikið og var hún komin í tæp 7.000 öku- tæki í lok árs 2017. En nú er komið að þolmörkum. Samkvæmt ákvæð- um Evróputilskipunar um örygg- iskröfur fyrir jarðgöng þarf neyðar- útgangur að vera til staðar þegar meðalumferð er meiri en 4.000 öku- tæki á dag/akrein fyrir jarðgöng styttri en 10 km. Þetta þýðir með öðrum orðum að þegar 8.000 öku- tækja markinu er náð má umferð ekki fara umfram það nema komið sé upp flóttaleiðum. Það verði best gert með því að grafa önnur göng samhliða þeim gömlu og hafa flótta- leiðir milli ganganna. Samkvæmt umferðartalningu fara um 65% ökutækja sem fara norður Hvalfjarðargöng áfram til austurs frá hringtorgi við norðurmunna ganganna en um 35% í átt til Akra- ness. Þessi skipting hefur verið svip- uð allt frá opnun ganganna. „Miðað við svipaða skiptingu um- ferðar á næstu árum, að teknu tilliti til ávinnings af styttingu vegalengd- ar, reiknast gangaleið 5 með tví- stefnuumferð lang hagkvæmasti kostur tvöföldunar Hvalfjarðar- ganga,“ segir í skýrslunni. Tvístefna yrði áfram Gangaleið 5 er þannig lýst: „Ný göng með mest 5% halla og stærra þversniði (T10,5) en í fyrr- nefndum gangaleiðum og útskot með 250 metra millibili. Munni sunn- an megin fjarðar yrði á svipuðum stað en norðan fjarðar myndi ganga- endi vísa til austurs og munni ganga á nýjum stað innar í Hvalfirði, milli Kúludalsár og Grafar. Þversnið ganga yrði 10,5 metrar í veghæð og gert er ráð fyrir tvístefnu göngunum en meters breitt bil milli akreina. Núverandi göng yrðu áfram notuð á leið til Akraness, en ný göng fyrir þá sem eiga erindi til Grundartanga eða áfram norður og vestur. Neyðarútgangar yrðu 14 talsins, samtals um 280 metrar.“ Kostir þessarar lausnar eru taldir þeir helstir að ný göng uppfylla stað- al fyrir veggöng í gangaflokki D, sem þá nær upp í 12.000 ökutæki á sólarhring samkvæmt viðmiðum í norska veggangastaðlinum. Ókostur er að erfitt verður að staðsetja tengigöng (flóttagöng) milli ganga I og ganga II nema á miðbiki ganga- leiðar og gera þarf því ráð fyrir neyðarrýmum án útgangs á stórum hluta leiðar. Að mati skýrsluhöfunda er annar ókostur gangaleiðar 5 að tvístefnu- akstursumferð yrði eftir sem áður í báðum göngum. Slysatíðni reiknast vera svipuð í göngum með einstefnu- og tvístefnuakstri en slys í tví- stefnugöngum eru mun alvarlegri. Að hafa einstefnuakstur á ganga- leið 5 og núverandi göngum myndi auka aksturslengd aðra leiðina til Akraness um 8 km. Sú akstursleng- ing myndi vega upp allan kostn- aðarávinning vegna styttingu leiðar norður í land og var það því ekki tal- ið valkostur í þessum samanburði. Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson Hvalfjarðargöngin Komið er að þolmörkum í þessum 20 ára gömlu jarðgöngum. Þegar 8.000 ökutækja markinu hefur verið náð má umferð ekki fara umfram það nema komið sé upp flóttaleiðum. Ný göng yrðu lengri og dýrari  Öryggisreglur hafa verið hertar  Sérfræðingar mæla með leið fyrir ný göng undir Hvalfjörð Fyrirhuguð tvöföldun Hvalfjarðarganga Hvalfjarðargöng II, gangaleið 5 Akranes Grundartangi – Vesturland – Norðurland Hv alf jör ðu r Reykjavík Heimild: Vegagerðin og Mannvit verkfræðistofa Núverandi göng Gangaleið 5 Heildarlengd 5,77 km 7,54 km Mesti veghalli 8,1% 5,0% Þversnið í veghæð 8,5 m 10,5 m Hvalfjarðargöng II (leið 5) Heildarlengd: 7,54 km Útskot með 250 m millibili 14 neyðarútgangar Hvalfjarðargöng I (núverandi göng) Heildarlengd: 5,77 km Gangaendi norðan megin milli Kúludalsár og Grafar í Hvalfirði Hvalfjarðargöng I Hvalfjarðargöng II 8,5 m 3,25 m + 3,25 m 3,5 m + + 3,5 m1 m 10,5 m 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 ’99 ’02 ’05 ’08 ’11 ’14 ’17 Meðalumferð um á dag um Hvalfjarðargöng 1999-2017 2.950 6.985

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.