Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Mörkinni 6 - Sími 568 7090 - veidivon@veidivon.is - veidivon.is
3ja laga Gore-tex Pro Shell
öndunarfilma.
5 laga styrking á skálmum og setu.
Vatnsheldur rennilás.
Belti fylgir.
Verð 119.900
Simms
G4Z Gore-tex
Ljósmyndakeppni
Bílablaðs Morgunblaðsins
Kosning og nánari upplýsingar á
Facebook.com/bilafrettir
Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara:
• Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is
• Frestur til að skila inn myndum í keppni ágústmánaðar er til kl. 23:59 föstudaginn 17. ágúst.
• Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn.
• Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu
• Keppt verður í fjórum lotum, næstu fjóra mánuði og fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru
veittar gjafakörfur með Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum.
• Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði
• Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember.
Fyrsti vinningur er ferð
fyrir tvo á bílasýningu-
na í Genf í febrúar.
Í boði Toyota á Íslandi
www.mbl.is/bill
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Veðurspáin lítur ágætlega út og
þarna verður mikil stemning,“
segir Ásgeir Guðmundsson, einn
skipuleggjenda mikillar bjórhátíð-
ar sem haldin verður á bryggjunni
við Vesturbugt á Menningarnótt.
Það eru hin nýstofnuðu Samtök
íslenskra handverksbrugghúsa
sem halda hátíðina í samstarfi við
Bryggjuna brugghús. Alls taka ell-
efu brugghús þátt í hátíðinni og
kynna sig og vörur sínar gestum
og gangandi. Frítt er inn á hátíð-
ina svo að allir geta gengið þarna
um og kynnt sér brugghúsin og
spjallað við sérfræðinga þeirra. Þá
getur fólk keypt bjór af hverju
brugghúsi fyrir sig. Einnig er boð-
ið upp á takmarkað magn af
klippikortum sem færa handhöfum
frítt smakk frá öllum brugghús-
unum auk sérmerkts glass. Þau
brugghús sem taka þátt eru Bast-
ard Brew and Food, Beljandi,
Bryggjan brugghús, Kaldi, Dokk-
an, Eimverk, Gæðingur, Malbygg,
RVK Brewing Co., The Brothers
Brewery og Ægir brugghús.
„Mörg þessara brugghúsa eru
þannig staðsett að þau komast
jafnan ekki í tæri við alvöru traf-
fík eins og skapast á Menning-
arnótt. Þetta verður því mjög
skemmtilegt. Hér á bryggjunni er
mikið pláss og um að gera að láta
sjá sig,“ segir Ásgeir. Bjórar frá
umræddum brugghúsum verða
einnig í boði á Bryggjunni brugg-
húsi frá föstudegi til sunnudags.
Bjórhátíð á bryggjunni
Morgunblaðið/Hari
Skál! Ásgeir Guðmundsson lofar góðri stemningu á Menningarnótt.
Ellefu brugghús kynna bjóra sína á Menningarnótt
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Skráð atvinnleysi var 2,2% hér
á landi í nýliðnum júlímánuði. At-
vinnuleysi jókst um 0,1 prósentu-
stig frá því í júní, að því er fram
kemur í nýjum tölum Vinnumála-
stofnunar. Að jafnaði voru 4.169
einstaklingar á atvinnuleysisskrá í
júlí og fjölgaði þeim um ríflega eitt
hundrað frá fyrri mánuði.
Nokkru fleiri voru atvinnu-
lausir hér á landi í júlí en í sama
mánuði í fyrra. Að meðaltali fjölg-
aði um 655 á atvinnuleysisskrá en í
júlí 2017 mældist atvinnuleysi
1,8%.
Þegar rýnt er í tölur um at-
vinnuleysi kemur í ljós að atvinnu-
leysi var 2,0 prósent meðal karla
en 2,4% meðal kvenna. Jókst það
um 0,1 prósentustig meðal beggja
kynja frá júnímánuði. Mest var at-
vinnuleysi á Suðurnesjum í júlí,
2,8%. Það var hins vegar minnst á
Vestfjörðum og Norðurlandi
vestra, 0,9%. Atvinnuleysi var
óbreytt á landsbyggðinni milli
mánaða en jókst um 0,1% pró-
sentustig á höfuðborgarsvæðinu.
Þeim sem hafa verið atvinnu-
lausir í yfir tólf mánuði hefur
fjölgað á milli ára. Alls höfðu 890
verið án atvinnu í meira en ár í lok
júlí en á sama tíma í fyrra voru
þeir 836.
Betri staða sérfræðinga
Þegar litið er til einstakra at-
vinnugreina má greina fækkun at-
vinnulausra í fiskveiðum, upplýs-
inga- og fjarskiptastarfsemi svo og
í fjármála- og tryggingastarfsemi
frá júlí 2017 en aukningu í öðrum
atvinnugreinum. Mest aukning at-
vinnuleysis er í mannvirkjagerð,
ýmiskonar sérhæfðri þjónustu og í
gisti- og veitingastarfsemi. Sé
horft til starfsstétta fækkaði sér-
fræðingum á atvinnuleysisskrá
milli ára en mest fjölgun varð hlut-
fallslega meðal iðnaðarmanna og
véla- og vélgæslufólks.
Í nýrri skýrslu Vinnumála-
stofnunar um ástandið á vinnu-
markaði kemur fram að stofnunin
hafi gefið út 203 atvinnuleyfi til út-
lendinga í júlímánuði. Alls hefur
Vinnumálastofnun því gefið út
1.134 atvinnuleyfi það sem af er
ári.
4,8% útlendinga án atvinnu
Alls voru 1.454 erlendir rík-
isborgarar án atvinnu í lok júlí eða
um 32% allra atvinnulausra. Það
hlutfall lækkaði úr 33% allra at-
vinnulausra í júní. Hins vegar hef-
ur útlendingum farið fjölgandi á
atvinnuleysisskrá frá því síðasta
haust. Þessi fjöldi samsvarar um
4,8% atvinnuleysi meðal erlendra
ríkisborgara.
Fleiri án at-
vinnu en í fyrra
Um fjögur þúsund atvinnulausir
Morgunblaðið/Ómar
Atvinna Fleiri iðnaðarmenn eru nú á atvinnuleysisskrá en á sama tíma í
fyrra samkvæmt nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar fyrir júlímánuð.
Ágúst Valfells hefur verið ráðinn forseti tækni- og
verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík frá og með 1.
ágúst. Hann tekur við stöðunni af dr. Guðrúnu Sævars-
dóttur, sem hefur verið forseti deildarinnar frá 2011.
Ágúst lauk doktorsprófi í kjarnorkuverkfræði frá
University of Michigan árið 2000 og prófi í vélaverk-
fræði frá Háskóla Íslands 1993. Eftir doktorspróf vann
Ágúst hjá University of Maryland og Orkustofnun. Frá
árinu 2005 hefur hann unnið við kennslu og rannsóknir
við Háskólann í Reykjavík.
Ágúst hefur einkum fengist við rannsóknir á öreindahröðlum og orku-
málum.
Ágúst
Valfells
Ágúst forseti tækni- og verkfræðideildar HR