Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 40

Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeim fækkarsífellt rök-unum fyrir því að almenningur skuli neyddur til að halda úti fjölmiðlum í nútíma þjóðfélagi. Forðum tíð mátti finna rök fyrir slíku. En álykta má að eftir því sem þau rök urðu úrelt eða hurfu yrði slíkum rekstri hætt. Helstu rökin fyrir Ríkis- útvarpi voru þau að ein- staklingar hefðu ekki afl til að standa undir útvarpi í þessu stóra landi í miðri heimskreppu og sú fór ekki hjá Íslandi. At- vinnuleysi var landlægt og fá- tækt almenn og fáir kostir. Nú er þjóðin efnuð og meðallaun launafólks með því allra hæsta sem þekkist. En annað kom til. Tækniframfarirnar. Þær gerðu óþarft að beina fjármunum al- mennings að útvarpsrekstri. Fjöldi stöðva er nú rekinn. Þær eru í harðri samkeppni sín á milli, sem er eðlilegt og æski- legt. En algjörlega óþörf og óeðlileg samkeppni við nið- urgreitt Ríkisútvarp er það ekki. Á meðan Ríkisútvarpið var eitt um hituna stóð það sig prýðilega og var mikill fengur að starfsemi þess og menningarlegt tjón orðið ella. Allar þær for- sendur hafa breyst mikið. Stundum er látið eins og að milljarðamokstur ríkisins af fé almennings til Ríkisútvarpsins megi réttlæta með fréttaflutn- ingi þess. Lög skylda þá stofnun til hlutleysis í fréttaflutningi. Hún hefur aldrei tekið mið af þeim lögum og hefur síðustu áratugi lent í ógöngum og úti í mýri. Sá fréttaflutningurinn hef- ur alla tíð verið með verulegum skoðanahalla. Lengi létu menn hann yfir sig ganga. En á síðustu árum hefur illt gerst miklu verra og við bætist að stofnunin kann ekki að skammast sín. Þess utan er fréttamennskan á óþægilega lágu plani. Sífellt oftar gætir þess að fréttaflutningur þess- arar ríkisstofnunar sé borinn fram í æsistíl, eins og ómerkileg- asti götubleðill sé á ferðinni. Innlendar fréttir eru þar sem því verður við komið litaðar stjórnmálalegum fordómum. Þess gætir mjög í erlendum fréttum þar sem margir hlust- endur eiga eðlilega erfiðara með að átta sig á. Hrokafullar ríkisstofnanir sem þurfa ekki að slást fyrir daglegri tilveru sinni eru víða til. Jafnvel stofnanir sem hafa gott orð á sér sýna þá takta. Óum- deilt er að nokkur og stundum veruleg vinstrislagsíða er löngum á frægðarstöðinni BBC. Hún er þó eins og hvítskúraður engill við hlið vandræðabarnsins hér á landi. BBC hefur stundum misst sig, eins og þegar hún elti lögregluyfirvöld sem tóku lyga- laup sem gilda heimild, sem spunn- ið hafði upp alvar- legar ásakanir á þekkta borgara. Lögreglan baðst loks afsökunar á mistökunum sem höfðu skaðað hana mjög. BBC var einnig í bralli með spilltum löggæslumönnum sem settu á svið umfangsmikla húsleit heima hjá Cliff Richard í London. Söngvarinn var þá í Portúgal og átti sér einskis ills von þegar að fréttir BBC lík- astar senu úr glæpamynd birt- ust. Fjölmennt lögreglulið gerði innrás á heimili Cliffs og þyrlur sveimuðu yfir, allt í beinni. Söngvarinn brotnaði saman. Í framhaldinu fylltust fjölmiðlar af „upplýsingum“ og getgátum um glæpi hans. Söngvarinn herti upp hugann staðráðinn í að láta ekki þessa valdamiklu aðila eyði- leggja lífshlaup á seinasta hluta þess. (Hann verður 78 ára í októ- ber.) Cliff stefndi lögreglunni og BBC. Eftir 4 ár féll harðorður dómur gegn báðum aðilum. Lög- reglan ákvað strax að áfrýja ekki dómnum. Nú hefur verið til- kynnt að BBC muni heldur ekki gera það. Báðar þessar stofnanir hafa þegar greitt hundruð millj- óna (króna) í lögfræðikostnað sinn. Við blasir að þeim verður gert að greiða söngvaranum kostnað hans að hluta eða öllu leyti. (Um 6-700 milljónir króna.) Og því næst hefjast samningaviðræður á milli hans og stofnananna sem réðust að æru hans um miska- og skaða- bætur. Þegar allt kemur saman er ljóst að fjárhæðirnar sem al- menningur verður að leggja út verða himinháar. Í yfirlýsingu Breska ríkis- útvarpsins kemur fram „að eftir að hafa farið rækilega yfir fengna lögfræðilega ráðgjöf hafi stofnunin komist að þeirri nið- urstöðu að ekki standi raunhæfir möguleikar til þess að ætla að dóminum yrði hrundið og áfrýj- un myndi óhjákvæmilega þýða verulega aukinn lögfræðikostn- að frá því sem þegar er og ein- göngu auka þjáningar Sir Cliffs.“ Þá var bætt við: „Það liggur þegar fyrir yfirlýsing BBC um að stofnunin harmar þær þjáningar sem Sir Cliff hef- ur gengið í gegnum. Þetta viljum við undirstrika við þetta tæki- færi. Við viðurkennum og gerum okkur fulla grein fyrir þeim áhrifum sem málið hefur haft á hann. BBC hlýtur að draga lær- dóm af því hvernig það flutti fréttir af þessum atburði og stofnunin mun hugsa rækilega um þá nálgun í framtíðinni, bæði um efni og umgjörð. Við við- urkennum að okkur varð á í ýms- um efnum jafnvel þótt þær stað- reyndir sem við sögðum frá hafi staðist.“ Við stöndum við frétt okkar sagði „RÚV“ þegar leik- araskapur um brott- kast blasti við öllum} Sumir kunna þó að skammast sín S turla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis, skrifaði góða grein í Morg- unblaðið sl. þriðjudag þar sem raktir voru nokkrir þættir úr hörm- ungasögu skipulagsmála í grennd við þinghúsið. Ég hef fjallað talsvert um hvernig verið er að rústa gamla miðbænum í Reykjavík og ekki hvað síst elstu byggðinni í Kvosinni. Um tíma virtist rofa til í skipulagsmálum borgarinnar. Fyrir nokkrum árum var ráðist í endurbyggingu gam- alla húsa á horni Lækjargötu og Austurstrætis og þar áður við enda Aðalstrætis. Nú er allt slíkt fyrir bí. Ásóknin í fermetra ræður för og virðist engin takmörk sett. Við Lækjargötu, á mest áberandi horni gömlu Reykjavíkur er verið að byggja gríðarstóra kassa ofan á einum elstu bæjarrústum landsins. Þar hafði áður verið liðkað til í skipulaginu svo hægt væri að byggja hús sem félli betur að umhverfinu en gamli Iðnaðarbankinn. En allt slíkt er gleymt hjá borgaryf- irvöldunum sem stóðu að því að við hinn enda Lækjargöt- unnar yrðu byggð hús sem láta helstu skipulagsmistök lið- inna áratuga líta út eins og snotur smáhýsi í samanburði. Ekki einu sinni helgir reitir fá að liggja í friði. Kirkjugarð- ur þar sem Reykvíkingar voru jarðaðir í hátt í þúsund ár er grafinn upp til að koma fyrir fleiri hótelfermetrum. Með því er um leið þrengt að húsum Alþingis með hætti sem ég get ekki ímyndað mér að nokkurt annað þjóðþing í þróuðu ríki myndi láta bjóða sér. Einhvern tímann lærði ég að ekki ættu að vera önnur listaverk við Austurvöll en styttan af Jóni Sigurðssyni til að undirstrika mikilvægi frelsishetjunnar. Við inngang Alþingishússins var þó nýlega reist sóvíesk stytta af fyrstu íhaldskonunni. Styttan er glæsileg þótt ég hafi efasemdir um staðsetninguna. Öllu verra er að gegnt íhaldskonunni liggur enn grjótið sem borgaryfirvöld létu henda fyrir framan Alþing- ishúsið. Grjót sem ágætur fyrrverandi þingmað- ur Samfylkingarinnar lagði til að yrði flutt í Landeyjahöfn. Annar fyrrverandi þingforseti, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, sá á sínum tíma þann kostinn vænstan að láta semja frum- varp um að Alþingi öðlaðist skipulagsrétt fyrir svæðið í kringum þingið. Það er löngu tímabært að það frumvarp verði að lögum. Illu heilli virðist þingið sjálft þó ætla að taka þátt í óförum miðbæjarins með því að láta reisa stóra, gráa stein- steypukassa undir skrifstofur þingsins. Vonandi verða þau áform endurskoðuð sem og önnur áform sem fela í sér eyði- leggingu þess litla sem til er af gamalli byggð í höfuðborg Ís- lands. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson Pistill Af umsátrinu um Alþingi og óförum miðborgarinnar Höfundur er formaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Í lok síðasta árs kom fram í frétt Velferðarvaktarinnar að 94% grunnskólabarna eða 40.859 börn stunduðu nám í sveitarfélögum sem ákveðið höfðu að afnema kostnaðarþátttöku grunnskólabarna í skólagögnum frá og með skólaárinu 2018 til 2019. Hlutafallið byggði Velferð- arvaktin á upplýsingum sem komið hafði verið á framfæri við Velferð- arvaktina og á opinberum vettvangi. Maskína gerði könnun fyrir vel- ferðarvaktina í júlí og ágúst 2017 en þá voru 38% grunnskólabarna við nám í skólum sem ákveðið hafði verið að veita ókeypis skólagögn. Talið er að við upphaf skóla- göngu í næstu viku muni 6% grunn- skólabarna greiða að hluta til eða að fullu fyrir skólagögn. Hugsanlegt er aðhlutfallið sé minna þar sem ekki fengust svör frá öllum sveit- arfélögum. Að sögn Sifjar Friðleifsdóttur, formanns Velferðarvaktarinnar er beðið niðurstöðu úr nýrri könnun Maskínu en hún er væntnaleg í næstu eða þar næstu viku. Sif segir að Velferðarvaktin hafi í nokkur ár beitt sér fyrir því að sveit- arstjórnir og skólayfirvöld í sveit- arfélögunum legðu af kostnaðarþátt- töku foreldra í grunnskólanámi. Barnaheill, Heimili og skóli og fleiri hefðu lagt sína krafta fram í barátt- unni. Sif segir Velferðarvaktina hafa bent á að gjaldtaka upp á tugi þús- unda fyrir skólagögn samrýmist hvorki anda Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna né anda grunn- skólalaga. Það sé mikilvægt að allir óháð efnahag geti tekið þátt í hefð- bundnu skólastarfi og þetta sé einn liðurinn í því. „Það er hægt að nýta betur skólagögn, minnka sóun og gera inn- kaup ódýrari. Þetta léttir fjárhags- lega undir með barnafjölskyldum og tekur álag af foreldrum,“ segir Sif. Barnaheill í baráttunni Barnaheill hefur frá árinu 2015 staðið fyrir vitundarvakningu og áskorunum til yfirvalda um að virða rétt barna til gjaldfrjálsrar grunn- skólamenntunnar, að sögn Mar- grétar Júlíu Rafnsdóttur, verk- efnastjóra innlendra verkefna hjá Barnaheillum. Margrét segir að í gjaldtökunni felist mismunun sem börn eigi rétt á vernd gegn. „Aðalatriðið er að hvetja alla til að stíga þetta skref til fulls og þá njóta öll börn landsins þess. Jafn- framt er mikilvægt að gjaldfrjáls skólagögn séu framtíðarfyr- irkomulag. Til þess að tryggja það þarf að breyta lögum um grunn- skóla,“ segir Margrét. Barnaheill setti á heimasíðu sína fyrir rúmu ári kort af Íslandi sem sýndi sveitarfélög sem höfðu veitt nemendum sínum ókeypis skólagögn. Kortið hættu samtökin að uppfæra þegar flest sveitarfélögin höfðu stigið skrefið til fulls. Skólagögn ókeypis í 94% grunnskólanna Morgunblaðið/Styrmir Kári Skólinn Ókeypis skólagögn koma barnafjölskyldum vel og létta álag. Grunnskólabörn og kostnaðarþátttaka Hlutfall grunnskólabarna sem búa í sveitarfélögum sem hafa afnumið kostnaðarþátttöku vegna skólagagna skólaárin 2017-2018* og 2018-2019** Sveitarfélag hefur afnumið kostnaðarþátttöku skólabarna Hefur ekki afnumið kostnaðar- þátttöku skólabarna (eða upp lýs- ingar ekki borist) Skólaárið 2018-2019 94% 6% Skólaárið 2017-2018 38% 62% Heimild: Velferðar- ráðuneytið. *Könnun Velferðarvaktarinnar frá 2017. **Skv. viðbótaruppl. sem Velferðar- vaktinni hafa borist eða birst hafa á opinberum vettvangi. Í lögum um grunnskóla segir að nemendur í skyldunámi skuli fá ókeypis kennslu, þjónustu, námsgögn og annað efni sem nemendum sé skylt að nota í námi og samræmist aðal- námskrá og lögum um grunn- skóla. Í sömu lögum kemur fram að grunnskólum sé ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota, svo sem rit- föng og pappír. Til þess að nemendur geti stundað nám þurfa þeir að nota ritföng, stílabækur, möppur, box og þess háttar. Barnaheill, Heimili og skóli, Velferðarvaktin, Samtök sveit- arfélaga og fleiri aðilar hafa beitt sér fyrir því um nokkurt skeið að grunnskólar virði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um gjaldfrjálsa grunn- skólamenntum og útvegi nem- endum ritföng og aðrar vörur sem þeir þurfa til þess að geta stundað nám án mikils kostn- aðar. Grunnskóli án kostnaðar LÖG UM GRUNNSKÓLA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.