Morgunblaðið - 16.08.2018, Page 43

Morgunblaðið - 16.08.2018, Page 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Margar gerðir af innihurðum Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is | Opið kl. 10-18 virka daga Misty Dekraðu við línurnar CRUZ SAMFELLA Stærðir: S-3XL Verð 5.850 kr. Það er þetta með ell- ina. Mörgum, allt frá dögum Ciceros og fornra spekinga, hefur hún verið umhugsunar- efni, ekki síst þegar menn standa andspænis því að hún er óumflýj- anleg, jafnt fyrir ein- staklinga sem eru svo heppnir eða óheppnir að lifa lengi. Heil sam- félög höfðu ekki reiknað með viðlíka ósvífinni fjölgun „í þess- um málaflokki“ eins og það heitir nú á dögum; m.ö.o. reiknivélin og mannlegt innsæi, að ekki sé sagt meðlíðan, brást. Hvað er til ráða, því að öll viljum við lifa í fyrirmyndar-samfélagi meðal þjóðanna, því hamingjusam- asta samkvæmt einhverjum erlend- um útreikningum og með öðrum orðum í nútíma velferðarríki. Sam- viskan í brjóstum okkar kennir okk- ur það býst ég við. En þetta er snú- inn vandi, því að flestir þeir sem ráðskast með stjórnunarmál þjóð- arinnar hafa til dæmis mjög tak- markaða reynslu af að vera gamlir. Leggi eldra fólk orð í belg, orð sem ekki er samkvæmt pólitískri rétt- hugsun, er því slett til baka, að það ágæta fólk sé bara gamalt. M.ö.o. úrelt, ætti helst ekki að hafa kosn- ingarétt lengur. Því að við köstum ekki lengur fram af ætternisstap- anum, það er ekki viðeigandi. En látum okkur vera jákvæð. Fyrst það er svona, eins og dæmin sanna, samfélagslega óheppilegt að hafa eldra fólk og öryrkja nema neðst í launastiga þjóðfélagsins og að eldri borgurum er til dæmis refs- að fyrir að vera með fulde fem og atorkuþrá fram yfir gamaldags við- miðunartölualdur, verður að hugsa þetta mál upp á nýtt. Satt að segja virðist manni ekki samfélaginu veita af reynslu og ýmiss konar hæfni þeirra sem lengi hafa staðið við stokkinn. Í bland við orku æsk- unnar En sitthvað er hægt að benda á sem plástur, þar til komið er í veg fyrir sárið. Lykilorð nútímans heitir hagræðing – ekki alltaf útskýrð til annars en að gefa út- völdum hópum meiri arð af einhverri starf- semi. Hér geta eldri borgarar lagt svo mikið af mörkum og um leið haft eitthvað fyrir stafni annað en kvarta. Og eitthvað fyrir stafni. Takið til dæmis eftir því hvað við hjálpum bönkunum mikið. Við erum í raun orðin hreinræktaðir banka- starfsmenn með alla okkar heima- banka uppi í rúmi (reyndar eigum við víst að hreyfa okkur líka), svo að hægt sé að hagræða og fækka starfsmönnum, þannig að arð- greiðslurnar hækki. Þannig leggj- um við okkar af mörkum. Sama máli gegnir um svo margt sem til heilla horfir í nútímanum. Við hjálp- um til dæmis skattinum heilmikið með því að gera þetta allt með nokkrum tökkum, hagræðing sem örugglega lækkar þá skattana í staðinn. Eða hvað? Svo, ef við erum enn flugfær, þá flýtum við mikið fyrir í kraðakinu í fluginu með því að gefa sjálf út farseðlana; þó að við séum kannski ekki alin upp við allt þetta tölvustúss og ekki með til- tæka unglinga til að gera þetta fyrir okkur, þá er þó hægt að dunda sér við þetta svolítinn tíma dagsins, því að ekki viljum við borga meira fyrir það að vera eldri borgarar. Þannig getum við haldið áfram að telja upp margt skemmtilegt sem lætur tímann líða hjá okkur eða drepur hann eins og sumir orða það, með þeirri þægilegu tilfinningu að þetta sé til hagræðingar og að maður sé að gera gagn. Jafnframt fær maður ekki borgað fyrir þetta stúss, svo að það kemur ekki niður á vonandi verðskulduðum skömmt- uðum eftirlaunum. Svo er ýmislegt til tilbreytingar, svo að maður sé ekki daginn á enda hokinn yfir tölvunum að bjarga þjóðfélaginu. Til dæmis getur verið mjög upplífgandi að fara til læknis, þó að það geti tekið sinn tíma. En á biðstofunni hittir maður oft skemmtilegt fólk, alveg eins og í jarðarförum, sem oft eru vel lukk- aðar. Kannski má halda áfram með svona hótfyndni. En nú er komið að kjarna málsins. Eldra fólk hefur staðið andspænis ýmsu sem það á erfitt með að tileinka sér og finnst því sem það sé sett til hliðar í sam- félaginu. En hvað er það á móti þeirri nýju öld sem við stöndum andspænis, þegar á þjónustustofn- unum mæta manni einungis róbótar sem stama fram frösum á staðlaðri íslensku (eða ensku, sem er auðvit- að hagræðnara). Það er nefnilega næsta skref. Skyldi einhverjum fleirum ekki þykja þá sem þeim væri ýtt til hliðar í sínu samfélagi? Eða eigum við bara að láta hverjum degi nægja sína þjáningu og nota engin framtíðargleraugu? Þessum hugleiðingum er hér með kastað fram vegna þess að ég veit að okkar ágætu stjórnmálamenn sitja nú með sveittan skallann við að finna út úr því hvernig þeir eiga að standa við öll faguryrðin um bætta aðbúð fatlaðra og eldri borg- ara, hjúkrunarheimilin sem þeir ætla að byggja án þess til sé mann- skapur eða fé til að reka slík heim- ili. Það er ekki víst að það dugi til lengdar að bara hafa heimabanka, sem nú er allt kapp lagt á að halda að manni. Einn hagræðinn Að spara tíma fyrir fólk sem hefir nógan tíma? Eftir Svein Einarsson Sveinn Einarsson »En þetta er snúinn vandi, því að flestir þeir sem ráðskast með stjórnunarmál þjóðar- innar hafa til dæmis mjög takmarkaða reynslu af að vera gamlir. Höfundur er leikstjóri. Ég segi ekki að hernámið á stríðs- árunum og túristasprengjan nú séu að öllu leyti sambærileg, en því fer ískyggilega nærri. Hvort tveggja skall á við bágar aðstæður í kreppu og almenningur tók því fagnandi þegar uppgangur helltist yfir þjóðina. En sömu vandamál fylgdu her- náminu þá og túristunum nú. Hús- næðisskortur og himinhátt leigu- og íbúðaverð. Líka mikil fjölgun farartækja og vondir vegir. Dátarnir máttu ekki skilja byss- urnar við sig og túristarnir sleppa ekki bakpokunum fyrr en í vélinni á heimleið. Húsmæður höfðu vinnu af að þvo af hermönnum og nú blaktir rúm- fataþvottur af túristum um allt land. Í stríðinu spruttu upp staðir með Fish and chips. Nú verður vart þverfótað fyrir veitingastöðum sem bjóða allra landa mat fyrir allra handa fólk. Í stríðinu voru ferðatakmarkanir. Nú er það örtröðin sem takmarkar, bæði á vegum og við náttúruperlur. Í stríðslok átti þjóðin fúlgur fjár og kom því í lóg á stuttum tíma. Hvað verður nú? Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Þurrkur Víða blaktir þvottur af ferða- mönnum á snúrum landsmanna. Tvenns konar hernám Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.