Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Nýjar
vörur!
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Una er virk á Instagram undir
nafninu unagram þar sem hún deil-
ir myndum og sögum af ferðalögum
sínum. Hún var á ferðalagi í tæpa
sex mánuði og ferðaðist til sjö
landa í Suður-Ameríku. Una heim-
sótti Úrúgvæ, Argentínu, Síle, Bóli-
víu, Ekvador, Níkaragva og Kól-
umbíu á ferðalagi sínu. Þá fór hún
einnig til Galapagoseyjanna þar
sem hún eyddi nokkrum vikum.
Una segist vera algjör fíkill í
ferðalög en hún hefur komið til 50
landa. „Eiginlega eru það engar
ýkjur að segja að undanfarin ár
hafi ég nýtt allan minn frítíma og
alla mína peninga í ferðalög, bæði
löng og stutt. Það var samt búið að
vera draumur hjá mér lengi að fara
af stað í opið bakpokaferðalag, með
flugmiða aðra leið þar sem loka-
áfangastaður væri óákveðinn.
Tækifærið kom þegar ég lauk
störfum fyrir NATO í Afganistan í
febrúar á þessu ári,“ segir Una.
Suður-Ameríka varð fyrir valinu,
en það var eina heimsálfan sem
hún átti eftir að heimsækja. Una
fór ein í ferðalagið, en hún ferðast
oft ein. „Flestir vinir mínir eru með
ung börn, auk þess sem ég ferðast
mun meira og á fjarlægari slóðir en
flestir gefa sér tíma til að gera. Oft
með stuttum fyrirvara líka. Svo það
er hálfvonlaust fyrir mig að sam-
ræma mínar ferðaáætlanir dagskrá
annarra. Ég komst að þeirri nið-
urstöðu fyrir löngu að ef ég ætlaði
alltaf að bíða eftir ferðafélaga
myndi ég aldrei ná að gera helm-
inginn af því sem mig langar til að
gera, en þar fyrir utan finnst mér
líka bara alveg frábært að ferðast
ein,“ segir Una.
Mikið frelsi í því að ferðast ein
„Því fylgir mikið frelsi, en líka
áskoranir, svo maður verður að
læra að treysta á sjálfa sig, sem er
gefandi lífsreynsla. Ég mæli með
því að flestir prófi að ferðast einir
síns liðs að minnsta kosti einu sinni
um ævina,“ segir Una. Hún segist
upplifa staðina sem hún er á hverju
sinni mun sterkar og betur þegar
hún er ein, því athyglin er öll á um-
hverfinu. „Svo er það staðreynd að
þeir sem eru einir á ferð eru mun
líklegri til að kynnast öðru fólki, fá
jafnvel heimboð til heimamanna
eða boð frá öðrum ferðalöngum um
að slást í lið með þeim,“ segir Una
en hún eignaðist marga vini á
ferðalagi sínu um Suður-Ameríku.
Hún segist hafa notað Instagram
mikið, bæði til að halda tengslum
við aðra ferðalanga, fá innblástur
frá þeim og segja sína eigin ferða-
sögu.
Náttúran í
Suður-Ameríku heillaði
Una segir að það hafi verið
margir hápunktar í ferðinni og erf-
itt að velja einhvern einn; þó hafi
náttúran heillað meira en borg-
irnar. „Ég get sagt að sterkustu
upplifanirnar átti ég úti í nátt-
úrunni, því þótt borgir geti verið
skemmtilegar eiga þær til að renna
svolítið saman og verða keimlíkar
með tímanum. Suður-Ameríka er
hins vegar engu lík í nátt-
úruundrum og þar eru margir stór-
kostlegir þjóðgarðar. Ég stundaði
mikla útivist, mest fjallgöngur en
líka fjallahjól, köfun og snorkl.
Uppáhaldssvæðin mín voru fjöllin í
Patagóníu, sem er syðst í Argent-
ínu og Síle, síðan fjallgarðarnir í
Perú, hinar ótrúlegu Galapagos-
eyjar og loks Karabíska hafið við
strendur Kólumbíu,“ segir Una.
Una þurfti að binda enda á ferða-
lagið í þetta skiptið því hún fékk
annað starf hjá NATO sem fulltrúi
Íslensku friðargæslunnar. Hún
mun því flytja til höfuðborgar
Georgíu, Tíblisi, um næstu mán-
aðamót. „Ég hlakka til að takast á
við nýtt starf og fá um leið tæki-
færi til að kynnast þessum heims-
hluta betur, á mörkum Austur-
Evrópu og Asíu, og veit að til dæm-
is er mjög mikið af fallegum
gönguleiðum í Kákasusfjöllunum í
Georgíu.“
Hún hefur þó ekki alveg sagt
skilið við Ameríku, í það minnsta í
huganum. „Ég var tilbúin að
ferðast alveg til ársloka þar. Ég sé
fyrir mér að snúa kannski aftur
þangað eftir nokkur ár, taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið í
Kólumbíu og halda áfram að fikra
mig upp eftir Mið-Ameríku og til
Mexíkó. En það verður bara að
koma í ljós, mér finnst best að gera
ekki of stífar áætlanir fram í tím-
ann, því lífið þróast oft öðruvísi en
maður sér fyrir,“ segir Una.
Skoða má fleiri myndir af ferða-
lögum Unu og verunni í herstöðinni
í Kabúl í Afganistan á Instagram.
Úr herstöðinni beint í bakpokaferðalag
Blaðamaðurinn Una Sig-
hvatsdóttir fór á flakk
um heiminn eftir að hún
lauk störfum hjá Atl-
antshafsbandalaginu í
Kabúl í Afganistan fyrr á
árinu. Una starfaði sem
upplýsingafulltrúi NATO
og friðargæsluliði í 13
mánuði. Fyrir það starf-
aði hún meðal annars
sem blaðamaður á
mbl.is.
Samfélagsmiðlar Una er dugleg að deila reynslu sinni á samfélagsmiðlum.
Ferðalög Una segir það gefandi lífsreynslu að ferðast ein í útlöndum.
Köfun Útivistin bíður upp á margt.
Eyðimörk Náttúran heillar meira en borgirnar.