Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 Nýjar vörur! Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Una er virk á Instagram undir nafninu unagram þar sem hún deil- ir myndum og sögum af ferðalögum sínum. Hún var á ferðalagi í tæpa sex mánuði og ferðaðist til sjö landa í Suður-Ameríku. Una heim- sótti Úrúgvæ, Argentínu, Síle, Bóli- víu, Ekvador, Níkaragva og Kól- umbíu á ferðalagi sínu. Þá fór hún einnig til Galapagoseyjanna þar sem hún eyddi nokkrum vikum. Una segist vera algjör fíkill í ferðalög en hún hefur komið til 50 landa. „Eiginlega eru það engar ýkjur að segja að undanfarin ár hafi ég nýtt allan minn frítíma og alla mína peninga í ferðalög, bæði löng og stutt. Það var samt búið að vera draumur hjá mér lengi að fara af stað í opið bakpokaferðalag, með flugmiða aðra leið þar sem loka- áfangastaður væri óákveðinn. Tækifærið kom þegar ég lauk störfum fyrir NATO í Afganistan í febrúar á þessu ári,“ segir Una. Suður-Ameríka varð fyrir valinu, en það var eina heimsálfan sem hún átti eftir að heimsækja. Una fór ein í ferðalagið, en hún ferðast oft ein. „Flestir vinir mínir eru með ung börn, auk þess sem ég ferðast mun meira og á fjarlægari slóðir en flestir gefa sér tíma til að gera. Oft með stuttum fyrirvara líka. Svo það er hálfvonlaust fyrir mig að sam- ræma mínar ferðaáætlanir dagskrá annarra. Ég komst að þeirri nið- urstöðu fyrir löngu að ef ég ætlaði alltaf að bíða eftir ferðafélaga myndi ég aldrei ná að gera helm- inginn af því sem mig langar til að gera, en þar fyrir utan finnst mér líka bara alveg frábært að ferðast ein,“ segir Una. Mikið frelsi í því að ferðast ein „Því fylgir mikið frelsi, en líka áskoranir, svo maður verður að læra að treysta á sjálfa sig, sem er gefandi lífsreynsla. Ég mæli með því að flestir prófi að ferðast einir síns liðs að minnsta kosti einu sinni um ævina,“ segir Una. Hún segist upplifa staðina sem hún er á hverju sinni mun sterkar og betur þegar hún er ein, því athyglin er öll á um- hverfinu. „Svo er það staðreynd að þeir sem eru einir á ferð eru mun líklegri til að kynnast öðru fólki, fá jafnvel heimboð til heimamanna eða boð frá öðrum ferðalöngum um að slást í lið með þeim,“ segir Una en hún eignaðist marga vini á ferðalagi sínu um Suður-Ameríku. Hún segist hafa notað Instagram mikið, bæði til að halda tengslum við aðra ferðalanga, fá innblástur frá þeim og segja sína eigin ferða- sögu. Náttúran í Suður-Ameríku heillaði Una segir að það hafi verið margir hápunktar í ferðinni og erf- itt að velja einhvern einn; þó hafi náttúran heillað meira en borg- irnar. „Ég get sagt að sterkustu upplifanirnar átti ég úti í nátt- úrunni, því þótt borgir geti verið skemmtilegar eiga þær til að renna svolítið saman og verða keimlíkar með tímanum. Suður-Ameríka er hins vegar engu lík í nátt- úruundrum og þar eru margir stór- kostlegir þjóðgarðar. Ég stundaði mikla útivist, mest fjallgöngur en líka fjallahjól, köfun og snorkl. Uppáhaldssvæðin mín voru fjöllin í Patagóníu, sem er syðst í Argent- ínu og Síle, síðan fjallgarðarnir í Perú, hinar ótrúlegu Galapagos- eyjar og loks Karabíska hafið við strendur Kólumbíu,“ segir Una. Una þurfti að binda enda á ferða- lagið í þetta skiptið því hún fékk annað starf hjá NATO sem fulltrúi Íslensku friðargæslunnar. Hún mun því flytja til höfuðborgar Georgíu, Tíblisi, um næstu mán- aðamót. „Ég hlakka til að takast á við nýtt starf og fá um leið tæki- færi til að kynnast þessum heims- hluta betur, á mörkum Austur- Evrópu og Asíu, og veit að til dæm- is er mjög mikið af fallegum gönguleiðum í Kákasusfjöllunum í Georgíu.“ Hún hefur þó ekki alveg sagt skilið við Ameríku, í það minnsta í huganum. „Ég var tilbúin að ferðast alveg til ársloka þar. Ég sé fyrir mér að snúa kannski aftur þangað eftir nokkur ár, taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í Kólumbíu og halda áfram að fikra mig upp eftir Mið-Ameríku og til Mexíkó. En það verður bara að koma í ljós, mér finnst best að gera ekki of stífar áætlanir fram í tím- ann, því lífið þróast oft öðruvísi en maður sér fyrir,“ segir Una. Skoða má fleiri myndir af ferða- lögum Unu og verunni í herstöðinni í Kabúl í Afganistan á Instagram. Úr herstöðinni beint í bakpokaferðalag Blaðamaðurinn Una Sig- hvatsdóttir fór á flakk um heiminn eftir að hún lauk störfum hjá Atl- antshafsbandalaginu í Kabúl í Afganistan fyrr á árinu. Una starfaði sem upplýsingafulltrúi NATO og friðargæsluliði í 13 mánuði. Fyrir það starf- aði hún meðal annars sem blaðamaður á mbl.is. Samfélagsmiðlar Una er dugleg að deila reynslu sinni á samfélagsmiðlum. Ferðalög Una segir það gefandi lífsreynslu að ferðast ein í útlöndum. Köfun Útivistin bíður upp á margt. Eyðimörk Náttúran heillar meira en borgirnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.