Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Jóhannes segist hafa boðið gest- um reglulega heim til sín þar sem vörurnar voru prufaðar eftir kúnst- arinnar reglum. „Það var nóg til að brjóta ísinn. Það myndaðist alltaf mikil stemning þegar fólk setti saman réttina eftir þrepaskiptum leiðbeiningum. Það var líka litað út fyrir kassann enda leiðbeiningarnar einungis hugsaðar sem viðmið,“ segir Jóhannes, en að sjálfsögðu megi leika sér með hráefnið eins og hugarflugið leyfir. Einungis sé um að ræða leiðbeiningar sem gott sé að styðjast við til að hafa ferlið eins einfalt og kostur er. Þess má hins vegar geta að uppskriftirnar að for- réttunum eru þróaðar af dönskum kokki í samvinnu við Bocuse d’or á Íslandi. Margar af vörunum hafa verið framleiddar um árabil hjá Ora en einnig voru þróaðar nýjar vörur sem henta sérlega vel inn í forréttahugmyndina. Helsta nýj- ungin er fólgin í framsetningunni og hugmyndafræðinni að baki. „Markmiði er að kynna vörurnar fyrir yngri kynslóðinni, gefa henni hugmyndir um hvernig má nota þessar hágæðavörur með einföldum hætti og bera á borð forrétti sem líta út eins og færustu mat- reiðslumenn myndu gera og um leið bjóða upp á sannkallaða veislu fyrir bragðlaukana. Við erum að gera heiðarlega tilraun til að skapa okkar eigin forréttahefð eins og tíðkast erlendis. Margar af þessum vörum eiga sér sess meðal lands- manna en hér er skrefið tekið um- talsvert lengra og aðferðafræði á borð við það sem neytendur þekkja frá Einn, tveir og elda og Eldum rétt notuð.“ Hugmyndin er að þú getir ein- faldlega gripið forréttaboxið út í búð og án nokkurrar fyrirhafnar og með skotheldum leiðbeiningum boðið upp á spennandi og bragð- góða forrétti á bókstaflega fimm mínútum. Nú eru þrjú forréttabox komin í sölu í verslunum Hag- kaupa, en það eru Creamy Masago Bites, sem mætti kalla rjóma- kennda loðnuhrognabita, Crunchy Caviar Bites (stökkir kavíarbitar) og Lemony Cod Liver Bites (þorsklifrarbitar með sítrónu- bragði). Hvert forréttabox inniheld- ur þrjár vörur og einfaldar og þægilegar leiðbeiningar um hvernig skuli bera sig að. Líflegt vöruþróunarferli Allar þessar vörur eru Íslend- ingum að góðu kunnar en hafa þó ekki verið vinsæll kostur meðal yngri kynslóðarinnar en það stend- ur til bóta enda um að ræða frá- bæra vöru sem fellur vel að þörfum fólks – þá ekki síst þeirra sem hafa ekki mikinn tíma til að elda, langar að prófa spennandi hráefni eða hafa ekki allt pláss í heiminum til að elda margréttaðar kræsingar. Í vöruþróunarferlinu settum við okkur þrjár meginreglur sem fylgt er í einu og öllu. ● Eingöngu er unnið með hágæða íslenskt hráefni. ● Einfaldar og aðgengilegar upp- skriftir. ● Það skal taka neytandann innan við 10 mínútur að setja forréttinn saman. Umbúðahönnunin vekur jafn- framt athygli, en það var danskt fyrirtæki sem Ora starfaði með sem sá un hönnunina og var mark- miðið að leggja áherslu á uppruna hráefnisins og ferskleikann. Um- búðirnar voru meðal annars verð- launaðar á sýningu í París síðasta haust, sem þykir mikill heiður. Eins hlaut einn af forréttunum verðlaun sem Smávara ársins á sjávarútvegssýningunni í Boston og á sjávarútvegssýningunni í Brussel, sem jafnframt er stærsta sjáv- arútvegssýning í heimi, uppskar Ora verðlaun fyrir Vörulínu ársins, en þangað koma mörg þúsund kaupendur og framleiðendur hvað- anæva úr heiminum til að kynna vörur sínar og kynnast því nýjasta á markaði sjávarafurða. „Vörurnar hafa fengið frábærar viðtökur bæði meðal íslenskra neyt- enda og erlendra. Við hugsuðum vörulínuna aðallega til útflutnings en viljum samt leyfa íslenskum neytendum að kynnast þessum frá- bæru vörum. Það hefur komið á óvart hvað viðtökurnar hafa verið góðar, bæði meðal íslenskra neyt- enda og ferðamanna. Við höfum fundið mikinn áhuga meðal ferða- manna – þá ekki síst í Leifsstöð þar sem fólk er greinilega að taka vöruna með sér heim. Eins og áður segir var eitt af lykilmarkmiðunum að höfða til yngra fólks og þróa vöruhugmynd sem hjálpar nýjum neytendum til að kynnast þessum hágæðavörum og gefa þeim hugmyndir um hvern- ig megi nota þær með einföldum hætti þannig að úr verði sannkölluð veisla bæði fyrir auga og bragð- lauka. „Við unnum með frábæru fagfólki á öllum sviðum við þróun á vörunum og vöruhugmyndinni og gætum ekki verið ánægðari með útkomuna,“ segir Jóhannes að lok- um um þessa stórsnjöllu afurð sem vert er að prófa. Snjöll útfærsla Gaman er að sjá gamalgrónar íslenskar vörur í nýjum búningi. Forréttir á fimm mínútum „Það var strax ljóst í vöruþróunarferlinu að hér var á ferðinni nýjung sem bauð upp á svo miklu meira en gott bragð,“ segir Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri hjá Ora, um vörulínuna Iceland’s Finest, sem boðar nýja tíma í hérlendri forrétta- menningu. Um er að ræða vörur sem byggja á gömlum grunni en með framsetningu sem neyt- endur tengja við og gera tilveruna töluvert meira spennandi. Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.