Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Handafl er traust og fagleg starfsmannaveita með margra ára reynslu á markaði þar sem við þjónustum jafnt stór sem smá fyrirtæki. Mig langar að byrja á því að hrósa ykkur öllum sem hafið ákveðið að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn. Ég veit fyrir víst að sum ykkar áttu ekki einu sinni hlaupaskó áður en þið tókuð þessa framúrskarandi góðu ákvörðun um að vera með, aðrir eiga hægt um vik að stunda hreyfingu en láta það ekki stöðva sig heldur finna leiðir til þess að vera með. Fyrir einhverja þarna úti er það lítil áskorun að hlaupa marga kíló- metra án þess að blása úr nös, undirrituð tilheyrir svo sannarlega ekki þeim hópi þó að viljinn sé fyr- ir hendi. Sama hvaðan við komum og hvert við erum að fara eiga þeir það sameiginlegt sem taka þátt að búa yfir miklu hugrekki, áræðni og viljanum til að láta gott af sér leiða, ekki gleyma þessu þegar þið eruð alveg við það að gefast upp. Ég hef nokkrum sinnum á lífs- leiðinni staðið frammi fyrir íþróttalegum áskorunum og stundum verið við það að gefast upp. Ef þið þekkið þessa tilfinn- ingu þá getur verið ágætt að minna sig á eftirfarandi atriði Tilgangurinn Það koma tímabil þegar þú spyrð þig hvað í ósköpunum þú sért búin að koma þér í. Af hverju ertu að þessu og fyrir hvern? Vertu tilbúin með svar sem gefur þér orku. Eins og til dæmis: Ég er bæði að þessu til að styrkja mig og þau góðgerðarsamtök sem ég hleyp fyrir. Áheitin sem ég er búin að safna skipta máli. Sjáðu það fyrir þér Hvernig mun þér líða þegar þú ert búin(n) að hlaupa? Hvernig er tilfinningin? Hvernig ætlarðu að verðlauna þig? Þetta eru allt spurningar sem fá þig til að sjá fyrir endann á verkefninu og hjálpa þér við að halda einbeit- ingu. Hægðu á þér Ef þú ert komin(n) með blóð- bragð í munninn ertu að hlaupa of hratt. Ein mesta áskorun sem hlauparar standa fyrir er að hægja á sér og þá sérstaklega í upphafi hlaups. Það er hundleiðinlegt að vera gjörsamlega sprungin(n) eftir nokkur hundruð metra. Manstu eftir héranum og skjaldbökunni? Eftirleikurinn Til hamingju með áfangann, þú ert komin(n) í mark. Ekki gleyma að teygja og hugsa vel um þig. Ég mæli með því að kíkja í sund og fara jafnvel í heita og kalda pott- inn til skiptis. Ef þú hefur lítið sem ekkert hlaupið áður ertu núna bú- in að brjóta ísinn, haltu áfram að hlaupa þó að það sé ekki nema bara fyrir þig. rikka@k100.is Hugleiðingar um hlaup Fram undan er fjölmennasta hlaup ársins og segja skipuleggjendur að búast megi við 15 þúsund manns í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn. Þrátt fyrir að einungis tveir dagar séu til stefnu er ekki of seint að huga að því hvernig hægt er að láta sér líða sem best á meðan á hlaupinu stendur og ekki síst með hvaða hugarfari farið er í hlaupið. Krefjandi að fela Bubba Morthens Þetta var í fyrsta sinn sem Bubbi kom fram á Fiskidagstónleikunum og Friðrik Ómar hafði beðið hann að ljúka tónleikunum í ár og það yrði að vera óvænt. „Þannig að við æfðum í leyni með hljóm- sveitinni og tókum eitt rennsli,“ segir Bubbi. Frið- rik Ómar segir engan í verkefninu, nema hljóm- sveitina sem æfði með honum, hafa vitað af þessu. „Hann kom bara baksviðs þegar það voru tvö lög í hann. Við þurftum að koma honum frá Akureyri og upp í frystihús, í gegnum bæ sem var troð- fullur,“ segir Friðrik Ómar í spjalli við þátta- stjórnendur Magasínsins. „Það er krefjandi að fela Bubba Morthens. Ég skal alveg viðurkenna það. En það tókst. Þetta var meiriháttar og Bubbi stóð sig eins og hetja. Þetta var rosalegt móment,“ út- skýrir Friðrik Ómar. Bubbi hrifinn af störfum Friðriks Ómars Bubbi mætti svo á svið við mikinn fögnuð við- staddra og byrjaði á laginu Hiroshima. Í framhald- inu flutti hann ásamt hljómsveitinni lögin „Stál og hníf“ og „Rómeó og Júlíu“. Að því loknu komu Ey- þór Ingi, Friðrik Ómar og Matti Matt. inn á svið og saman fluttu þeir lagið „Mýrdalssand“. Bubbi hafði gaman af samstarfinu við Friðrik Óm- ar, en þeir höfðu ekki unnið saman áður. Hann segir Friðrik Ómar sporgöngumann og „mögulega einn besta tónleikahaldarann á Íslandi, sem hefur lagt nýjar línur“. „Djöfull ertu seigur gamli“ Bubbi lýsir því á einlægan máta hvernig lista- maðurinn efast um vinsældir og fylgjendur. Hann segist meðvitaður um trygga aðdáendur allt frá árinu 1980 en að sá hópur eldist og því sé erfitt að átta sig á fylgjendum tónlistarinnar í dag. „Þannig að þegar ég kom inn á sviðið, þar sem 30.000 manns tóku á móti mér, þá var ég auðvitað alveg kjaftstopp yfir móttökum. Það eru engin orð sem fá því lýst hvers konar móttökur ég fékk þarna.“ Hann segir það ólýsanlega tilfinningu þegar ung- lingar, krakkar og fullorðnir standi og syngi með hvert einasta orð sem flutt er og fagnaðarlætin eft- ir því. „Maður hugsar: ja hérna hér, djöfull ertu seigur gamli!“ segir Bubbi að lokum og hlær. hulda@k100.is Ljósmynd/Rigg ehf. Kjaftstopp Bubbi Morthens segir það forréttindi að syngja fyrir fjórðu kynslóð Íslendinga. Fiskidagurinn á topp 10 hjá Bubba Bubbi Morthens var óvæntur gest- ur á lokatónleikum Fiskidagsins mikla á Dalvík. Í Magasíninu, síð- degisþætti K100, sagðist Bubbi hafa komist óséður alla leið á sviðið íklæddur veiðigalla. Hann hrósaði Friðriki Ómari Hjörleifs- syni, tónleikahaldara og eiganda Rigg ehf., fyrir glæsilega tónleika og skipulagningu, en þetta voru sjöttu tónleikarnir sem Rigg ehf. bauð upp á. „Þetta var upplifun sem fer á topp 10 á mínum ferli, takk öll þið sem deilduð sviðinu með mér,“ segir hann í ummælum á Facebook hjá Friðriki Ómari að tónleikum loknum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.